Skák


Skák - 06.03.2012, Page 9

Skák - 06.03.2012, Page 9
Noregi, og Christin Andersen, Svíþjóð. Mótið var haldið í minningu Inga R. Jóhannssonar. Voru af því tilefni veitt sér- stök verðlaun fyrir þann skákmann sem best stóð sig í samanburði við skákstig. Áðurnefndur Oliver krækti í þau verðlaun sem dóttir Inga, Sigríður Ingibjörg, veitti. Að mótslokum Skal nú gripið niður í skrif Gunnars Björnssonar, forseta Skáksambandsins: „Skákstaðurinn í Ráðhúsinu er virkilega góður og erlendu gestirnir mjög ánægðir með hann. Auðvitað fylgja honum vissir ókostir enda um að ræða opinberan stað og vinnustað aó auki. En að flestu leyti er þessi skákstaður til mikillar fyrir- myndar og t.d. hælir Ivan Sokolov honum mikið. Ef hins vegar fjölgar enn gæti Ráðhúsið lent á endastöð. E.t.v. mætti koma allt að 200 keppendum þarna fyrir meó því t.d. að loka öórum innganginum í salnum en lengra verður ekki gengið. Harpan gæti auðvitað verið kostur.“ Orð eru til alls fyrst © Hvítt: Guðmundur Kjartansson (2327) Svart: Björn Þorfinnsson (2419) Þessi skák var tefld í 3- umferó Reykjavík Open 2011. Undirritaður átti gloppótt mót en eftirfarandi skák yljaði mér um hjartaræturnar enda gegn sterkum and- stæðingi. Rauði þráður skákarinnar er sá að hvítur fer á peðaveiðar snemma tafls og rígheldur svo í peðið út skákina sem kemur illa niður á liðskipan hans. Nokkur tækifæri gefast til að gefa peðið til baka og blíðka goðin en Guðmundur grípur þau ekki og því fór sem fór. I.e4 e5 2.Rf3 Rc6 3-Bb5 f5 Jaenisch- gambíturinn er uppáhaldsafbrigði stórvinar míns, Rúnars Berg, og kann ég honum bestu þakkir fyrir að skóla mig til í þessu „djöflasystemi“. Við fyrstu sýn lítur út fyrir að um fífldirfsku sé að ræða en gambíturinn byggist á traustum grunni og er orðinn algengt vopn hjá sterkustu skákmönnum heims. HSORKAHF Helsti talsmaður afbrigðisins er Aserinn Radjabov en einnig vakti talsverða athygli þegar Ivanchuk sigraði Anand nýlega með því að beita bragðinu. 4.d3 Algengasti svarleikurinn og sá traustasti. 4. - Rc3 er annar góður mögu- leiki. 4.. .fxe4 5.dxe4 Rf6 6.De2 Sjaldgæfur leikur. Aðalafbrigóið er 6.0-0 Bc5 7.Dd3 d6 8.Dc4 og staðan er í góðu lagi hjá báóum! 6.. .Bc5 7.Bxc6 bxc6 8.Rxe5 Guðmundur er fullgráðugur og núna fær svartur skjóta liðskipan í skiptum fyrir peðið. 8...De7 9-Rd3 Ba6 10.f3 0-0 ll.Be3 Bxe3 12.Dxe3 Hab8 Svarturheíúr virkjað alla mennina sína. 13.Dc5 d6 l4.Da3?! 14.Dxc6 var vænlegra. l4...Bxd3 15.cxd3 Hxb2 16.0—0 og staóan er afar tvísýn. Hvítur er peði yfir en á eftir aó klára liðskipan og svartur þarf því að halda vel á spöðunum í næstu leikjum. l4...Bxd3 15.cxd3? Eftir þennan leik er hvítur í vondum málum. Nauðsynlegt var að gefa b2-peóið. 15.Dxd3 Hxb2 l6.Rc3 Rh5 og svartur stendur eitthvað betur. 15...Rd5! I6.d4? Annar slæmur leikur en staðan var orðin mjög eríið. Sennilega hraus hvítum hugur við að hleypa riddaranum inn á e3. l6.Rd2 Re3 17.Ke2 Rxg2 18.Hhgl Rf4+ og staóan er ekki gæíúleg. !6...Dg5! 17.0-0 Re3 18.HÍ2 Hxf3! 19-Rd2 og hvítur gafst upp án þess að bíða eftir svari svarts. I nœstsíðustu umferð lagði Hallgerður Hollendinginn Spaan að velli í vel tefldri skák. Hvítt: Nathanael Spaan Svart: Hallgerður Helga Þorsteins- dóttir 1. e4 c6 2. d4 d5 3. e5 Bf5 4. Rc3 e6 5. g4 Bg6 6. Rge2 c5 7. Be3 Rc6 8. dxc5 h5! Það er mikilvægt að brjóta upp peðasókn hvíts á kóngsvæng. 9- Rd4 Dc7 10. f4 hxg4 11. Dd2 Rh6 12. 0-0-0 a6 13. Ra4 Rxd4 14. Bxd4 Rf5 15. Bg2 9

x

Skák

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.