Skák - 06.03.2012, Qupperneq 12
Héðinn Steingrímsson
skákmeistari íslands 2011
Eiðar 15. - 23. apríl 2011
Halldór Grétar Einarsson
andsliðsflokkurinn á Skákþingi
íslands fór að þessu sinni fram á
Eiðum á Fljótsdalshéraði um páska.
Tíu af sterkustu skákmönnum landsins
tóku þátt. Landsliðsflokkurinn 2011 var
sá sterkasti í mörg herrans ár en þrír
stórmeistarar tóku þátt. Mótið var það
íyrsta sem haldið er á Austurlandi í 21
ár en síðast var þaó haldið þar á Höfn
í Hornafirði árið 1990. Það mót var
sögulegt því þá sigraði Héðinn Stein-
grímsson, yngstur allra, 15 ára. Það met
stendur enn, en fyrsta Islandsmótið var
haldið íyrir tæpri öld, árið 1913.
Þetta var í fyrsta skipti í áratugi sem keppt
var í tíu manna landsliðsflokki. áður hafði
yfirleitt verið teflt í tólf manna flokki.
Árin 2000 og 2006 var keppni í lands-
liósflokki með útsláttaríyrirkomulagi;
keppendur voru sextán. Stigahæstir og
sigurstranglegastir voru stórmeistararnir
Héðinn Steingrímsson (2554) og Henrik
Danielsen (2533).
Mótið byrjaði rólega og öll úrslit eftir
bókinni eða nálægt því. Eftir fimm
umferðir var komin nokkur mynd á
mótið:
1. Bragi Þorfinnsson 4,5
2. Héóinn Steingrímsson 4,5
3. Henrik Danielsen 4,0
Næstir komu svo Þröstur Þórhallsson og
Stefán Kristjánsson með 2,5 vinninga.
Það var því orðið Ijóst hverjir myndu
berjast um titilinn. Helstu tíðindin voru
góó byrjun Braga sem ætlaði greinilega
ekki að láta Héðin og Henrik stinga
af. Bragi var búinn að vinna Jón Árna,
Róbert og Ingvar Þór, gera jafntefli við
Þröst og vinna svo góðan sigur á Stefáni
Kristjánssyni í fjórðu umferð.
Hvítt: Stefán Kristjánsson
Svart: Bragi Þorfinnsson
4. umferð
Petroffs-vörn
l.e4 e5 2.Rf3 Rf6 3.Rxe5 d6 4.Rxf7!?
Ef til vill er þetta djarfasta fórn sögunnar
svona snemma tafls í landsliðsflokki.
Menn eins og Topalov og Short hafa þó
beitt þessari fórn, þannig að ekki getur
hún verið alvitlaus. íslandsvinurinn og
stórmeistarinn Sulskin frá Litháen á sex
skákir með þessari fórn og hefur unnið
fjórar, gert eitt jafntefli og aðeins tapaö
einni skák.
4. - Kxf7 5.d4 c5
Bragi viróist kunna þetta og velur það
framhald sem hefur gefist best íyrir
svartan.
5. - Rxe4 6.Dh5+ Ke7 7.De2 er slæmt
íyrir svartan vegna t.d. 7. - d5 8.Bg5 +
sem vinnur drottninguna. 5. - Be7 6.Rc3
He8 7.Bc4+ Be6 er önnur leið sem
kemur til greina fyrir svartan.
6. dxc5
6.Bc4+ d5 7.exd5 Bd6 er önnur leió, en
svartur má vel við una.
6. -d5!
Leysir helstu vandamál sín og tryggir
svörtum mun betri stöðu. Bragi jók
síóan yfirburði sína jafnt og þétt og vann
örugglega.
7. e5 Rg4 8.b4 Rc6 9-Be2 Rgxe5
10.Bb2 Rc4 ll.Bxc4 dxc4 12.DÍ3 +
Kg8 13-OnO Be6 l4.Hel Dd5 15.Dg3
Df5 l6.Rc3 h5 17.h4 Hh6 18.Re4
Rxb4 19-Hadl Rxc2 20.He2 Rb4
21.Hd4 Rd3 22.Bc3 Hg6 23.Rg5 Bxc5
24.Hxe6 Dxe6 25.Rxe6 Hxg3 26.Rxc5
Hg4 27.Re4 b5 28.f3 Hg6 29.Hd7