Skák


Skák - 06.03.2012, Side 21

Skák - 06.03.2012, Side 21
Fimm efstu í Morgan Kane-mótinu; Tómas, Hrannar, Gunnar Freyr, Hrafn og Róbert. samtímis og 36 manns tóku þátt. Það þykir gott á mánudegi klukkan 13:00. Skandinavíski leikurinn var skylda. Markmið félagsins hefur ávallt verið aó bjóða áhugafölki að koma og tefla sér til ánægju og gaman er þegar fólk sern æfði á unglingsaldri, en hefur bugsanlega dottió út vegna veikinda, kernur aftur að borðinu og tekur þátt í mótum. Þess má geta að nokkrir gestir athvarfsins nýta það með þeim hætti að koma og taka nokkrar skákir nánast daglega. Ekki skemmir það heldur fyrir þegar þrautreyndir keppnismenn ganga til liðs við félagið, enda eru allir jafnir þegar sest er að borði og hvorki spurt um andlegan né líkamlegan heilsufarsferil! Velvilji forvígismanna Skáksambands Is- lands og síðar Skákakademíu Reykjavíkur í garð félagsins hefur hjálpaó mikió og hvatt liðsmenn til dáða, enda munar gríðarlega um að fá svo jákvæð viðbrögð sem félagið hefur fengió í gegnum tíóina. Má til sanns vegar færa aó skákvinir Vinjar hafi heldur betur átt sterka innkomu þegar lá fyrir að starfseminni yrði hætt í Vin og safnað var liði - og fjármagni - athvarfinu til bjargar. Björn Sölvi Sigurjónsson, FIDE-meistari og snillingur á svo margan hátt, sem bar titilinn „jókerinn“ í lióinu, lést í desember síðastliðnum. Þaó fékk mikið á félagsmenn en hans var minnst með glæsilegu minningarmóti á Skákdeginum hinn 26. janúar, en þá hefði kappinn orðið 63 ára. Björn kom einmitt sterkur inn eftir mjög langt hlé þegar félagið var stofnað. Vinjargengið er þakklátt því skák- áhugafólki, á öllum aldri, sern hefur komið og tekið þátt í viðburðum í athvarfinu undanfarin ár. Það er ljóst að baráttan gegn fordómum í garð fólks meó geðraskanir hefur unnið stóra sigra með skákinni því foreldrar hika ekki við aó skutla börnum sínum á mót í athvarfið og sækja þau kannski þremur tímum seinna að því loknu. Þetta hefði verið óhugsandi fyrir nokkrum árum. Yngsti meölimur Skákfélags Vinjar er hún Lea, sem er tv'ítug. Elstur er hann Arni, sem er áttatíu og sjö ára og gefur ekki tommu eítir. Skákáhugafólki er velkomið að koma við á Hverfisgötunni á mánudögum og taka nokkrar bröndóttar við félagsmenn. Og ekki má gleyma Vinjar-mótunum, sem óhætt er að rnæla með. Þau eru vinsæl enda góður andi í húsinu! Gens una sumus. Björn Sölvi heitinn heilsar borgarstjóranum, Jóni Gnarr, á jólamóti Vinjar 2010 21

x

Skák

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.