Skák


Skák - 06.03.2012, Side 26

Skák - 06.03.2012, Side 26
Norðurlandamót öldunga í Reykjavík 10.-18. september 2011 Bragi Halldórsson / Aundanförnum árum hefur skákmótahald fyrir skákmenn, sem komnir eru yíir miðjan aldur, notið sívaxandi vinsælda víða í Evrópu. Reglulega eru haldin slík mót í Þýska- landi mánaðarlega víða um land og á Norðurlöndum eru slík mót tíð enda kjörinn vettvangur íyrir skákmenn af eldri kynslóðinni sem ekki eru lengur virkir í fremstu röð en vilja tefla sér til ánægju og yndisauka. Haldin er heims- meistarakeppni í flokki öldunga og þess skemmst að minnast að Ingvar heitinn Ásmundsson tefldi oft á slíkum mótum eftir að hann fór á eftirlaun og var raunar afar nærri því að sigra á einu slíku móti og verða þar með stórmeistari í skák á gamals aldri. Gunnar Finnlaugsson, sem lengi hefur búið í Svíþjóð, hefur lagt sitt af mörkum til að hvetja íslenska skákmenn til að taka þátt í sveitakeppni á Evrópu- meistaramótum og haft erindi sem erfiði. Hann átti mikinn þátt í því að SÍ ákvað að bjóðast til að halda Norðurlandamót öldunga hér á landi dagana 10.-18. september og eggja um leið marga sterka skákmenn á Norðurlöndum til að mæta til leiks á íslandi. Þökk sé honum íyrir sitt ötula frumkvæði og hvatningu. Mótið var að þessu sinni fjölmennara og betur skipað en nokkurn tíma fyrr. Tveir íyrrverandi Norðurlandameistarar, Norðmaðurinn Erling Kristiansen og finnski stórmeistarinn Heikki Wester- inen, voru mættir til leiks. Auk þeirra má nefna finnska stórmeistarann Yrjo Rantanen og Friðrik Ólafsson, sem ekki hafði teflt opinberlega síðan árið 2001, Danann J0rn Sloth, unglingameistara Danmerkur 1962, fyrrverandi heims- meistara í bréfskák 1975-1980 og marg- reyndan landsliðsmann íyrr á árum, Bent Sprensen, Danmerkurmeistara öldunga, Svíann Nils Ake Malmdin, Norðmennina Per Ofstad og Erling Kristiansen og náttúrlega sterkt heimavarnarlið með Gunnar Gunnarsson, íslandsmeistara 1966, Magnús Sólmundarson, Jón Þ. Þór, Ólaf Kristjánsson, Jóhann Örn Sigurjónsson og greinarhöfund í broddi fylkingar en þeir létu allir talsvert að sér kveða fyrr á árum auk margra annarra ónefndra þekktra andlita úr íslensku skáklífi. A þessu móti var leikgleði, vinsemd og virðing fyrir andstæðingnum við völd. Baráttuandinn var þó samur sem forðum tíð og teílt af fullri hörku. Afieikjum og ósigrum tóku menn þó af meira jafnaðargeði en þegar þeir voru yngri, - enda hvað munar svo sem um eitt tap enn á löngum ferli? Ánægjulegt var að sjá Friðrik aftur að tafli en framan af móti var ljóst að hann var nokkuð ryðgaður eftir langt hlé en þegar á leið rjátlaðist stirðleikinn af honum og hann fór að sýna gamla takta. Búist var að vonum við að baráttan um efsta sætið stæði milli hans og finnsku stórmeistaranna en ýmsir aðrir gátu þó átt til að blanda sér í þá baráttu. Svo fór að hinn geðþekki fyrrverandi menntaskólakennari, Jprn Sloth sem kenndi stærðfræði og rússnesku í menntaskóla í Árósum og er 67 ára, stóð að lokum uppi sem sigurvegari þegar Ólafur Kristjánsson gleymdi sér gegn honum og féll á tíma í örlítið lakari stöðu sem hann hefði átt að geta haldið. Við það skaust Daninn hálfu stigi upp fyrir Rantanen, sem var jafn honum að vinningum. Sigur Sloths var þó ekki í höfn fyrr en Per Ofstad vann skák gegn landa sínum Vidar Taksrud. Sloth var þó vel að sigrinum kominn því að hann tefldi af miklu öryggi og fór taplaus í gegnum mótið. Eg get ekki stillt mig um að víkja nokkrum orðum að eigin frammistöðu. í upphafi mótsins fór ég mikinn og var einn efstur með fullt hús eftir þrjár umferðir og með eístu mönnum lengi framan af. Þá fóru fjölmiðlar að hafa mikinn áhuga á mótinu í þeirri von að mikil tíðindi væru í uppsiglingu og REYKJAVIK ID.-I8. SEPTEMBER

x

Skák

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.