Skák


Skák - 06.03.2012, Síða 32

Skák - 06.03.2012, Síða 32
Skákæskan Stefán Bergsson / Arió 2011 var mikið uppgangsár í æskulýðsstarfi skáklireyfingarinnar. Helst ber að nefna fjölgun iókenda, en jafnframt voru haldnir margir glæsilegir skákviðburðir fyrir börn og unglinga. Hvort sem litið er til skákæfinga taflfélaganna, námskeiða Skákskóla Islands og Skákakademíu Reykjavíkur, fjölda grunnskóla sem sinna skákkennslu eða þátttöku í barna- og unglingamótum, þá voru mun fleiri börn en áður sem tefldu. Astæóurnar fyrir þessari fjölgun eru eflaust nokkrar, en sá sem þetta ritar telur tvær ástæöur skipta mestu máli. Önnur er sú að fleiri og fleiri hafa áttað sig á mannbætandi áhrifum skákiðkunar. Þessu til stuðnings má nefna frábær viðbrögð reykvískra skólastjórnenda við erindi Skákakademíu Reykjavíkur vorið 2011 þegar grunnskólunum var boðið að skákkennsla hæfist samkvæmt stundatöflu 3.-bekkinga um haustið. Þaó gekk eftir og er nú kennd skák í um 30 skólum Reykjavíkur við góðar undirtektir kennara, foreldra og stjórnenda. Þannig nýtur skákin velvildar skólastjórnenda og kennara sem hafa áttað sig á hversu vel skákin getur reynst til að efla þroska og námsfærni nemenda. Hin ástæðan fýrir fjölgun iðkenda er sú hversu margir koma aó æskulýðsstarfinu. A árum áður voru yfirleitt fáir aðilar sem héldu uppi unglingastarfi og skákkennslu barna og ungmenna. Nú koma mun fleiri nálægt starfinu; grunnskólakennarar, skákkennarar taflfélaganna, foreldrar og formenn, kennarar Skákskólans og fleiri og fleiri. Færst hefur í aukana að einstaka sterkir skákmenn taki yngri skákmenn í einkatíma sem er mikið fagnaðarefni. Allir eru að stefna að sama markmiðinu; bera út fagnaðarerindið og auka jafn- framt styrkleika okkar bestu yngri skákmanna. Arangur okkar bestu skákungmenna á árinu 2011 var hinn ágætasti. Auð- vitað ber þar hæst árangur Hjörvars Steins Grétarssonar sem tefldi á 1. borði meö landsliði Islands og varð Noróur- landameistari í skólaskák í elsta flokki. Hjörvar er yngri skákmönnum mikil fyrirmynd og gott dænii um hversu vel skákin getur þroskað einstakling. Asamt taflmennsku er Hjörvar ltinn ágætasti námsmaöur og gefur mikið af sér til yngri skákmanna. Þannig hefur Hjörvar kennt skák hjá Skákdeild Fjölnis, Skákakademíu Reykjavíkur og tekið þá allra efnilegustu 10 ára og yngri í einkatíma. Einnig ber að nefna Norður- landameistaratitil Hallgerðar Helgu Þorsteinsdóttur, en hún er ein af hinum ungu skákkonum sem tefla með ólympíulandsliði kvenna. Framtíðin er björt í kvennalandslióinu ef litió er til ungs aldurs meirihluta liðsins. Framtíóin er björt hjá okkar allra yngstu skákmönnum eins og árangur í yngsta flokknum á NM í skólaskák 2012 sýnir svo glöggt en Vignir Vatnar Stefánsson hlaut silfur þrátt fýrir að eiga tvö ár eftir í flokknum. Vignir Vatnar og Nansý Davíðs- dóttir njóta einkakennslu færustu þjálfara okkar og njóta nú þegar feiðsagnar Helga Ólaíssonar, stórmeistara og skólastjóra Skákskólans. Fleiri börn fædd eftir 2000 hafa sýnt miklar framfarir og er það verðugt verkefni allra þeirra sem koma að þessari efnilegu 2000-kynslóð að hlúa þannig að henni að úr verði meistarar framtíðarinnar. Skal þá hin mesta áhersla lögð á samvinnu og svo má ekki gleyma því að krakkar eiga að hlakka til að fara að tefla, eða eins og faðir efnilegs drengs sagði nýlega: „Svo má ekki gleyma því að skákin þarf aó vera skemmtileg." í þessum pistli um æskulýðsmál verður sagt stuttlega frá helstu skákmótum barna og unglinga árið 2011. Einnig er hér að finna skemmtilegt viðtal við kennarann Tómas Rasmus sem hefur nýtt skák í kennslu barna og unglinga í á fjórða áratug. Virðing Réttlæti Helstu mót ársins 2011 Stefán Bergsson íslandsmót barna 2011 Dawid Kolka íslandsmeistari íslandsmót barna 2011 fór fram laugardaginn 8. janúar í Salaskóla. Sett var glæsilegt þátttökumet á rnótinu þegar yfir 100 börn tóku þátt. Meöfram mótinu stóð Lenka Ptacnikova fyrir skemmtilegu peðaskákmóti fýrir leikskólabörn og þá yngstu í grunnskóla. Hart var barist í þeim átta umferðum sem tefldar voru. Eftir mikla spennu í lokaumferðunum stóð Dawid Kolka í Helli uppi sem sigurvegari en hann var sá eini sem sigraði í öllum sínum skákum. I öðru sæti varð Vignir Vatnar Stefánsson, TR, og í því þriója Hilrnir Hrafnsson, Fjölni. Hilmir, Dawid íslandsmeistari og Vignir Vatnar. íslandsmót grunnskólasveita, stúlknaflokkur Rimaskóli íslandsmeistari Tíu stúlknasveitir mættu til leiks á Islandsmóti grunnskólasveita í stúlknaflokki sem fór fram í byrjun febrúar. Stúlkurnar í Rimaskóla sýndu umtalsveróa yfirburði og unnu allar umferðirnar örugglega og hlutu 23 vinn- inga af 24 mögulegum. Rimaskóli er ekki óvanur því að sigra á þessu íslandsmóti því skólinn vann sex ár í röð á árunurn 2003 - 2008. Verðlaunasveitir: 1. RimaskóIi 23 vinningar af 24 2. Engjaskóli A 6 v. 3. Álfhólsskóli A 14 v.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Skák

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.