Skák


Skák - 06.03.2012, Side 36

Skák - 06.03.2012, Side 36
Tómas Rasmus meö Norðurlandameisturum Salaskóla fyrir nokkrum árum. Tómas hefur ásamt fleirum ræktað öflugt skákstarf í skólanum. virði að hafa skólastjómendur sem sjá tœkifœri til að auka þroska nemenda með slíku starfi. Af hverju fórstu að kenna skák? Eg heillaðist af skákinni ca. 6 ára gamall og hefur skákin verið partur aflífi mínu í ein 50 ár (vá, hver er orðinn gamall!). En ég vildi að drengirnir mínir (égá tvo syni) cettu kost á ekki síðri tœkifœrum en égfékk í cesku, þannig að ég reyndi að skapa aðstceður íþeim skólum sem þeirgengu íþannig að þeir gcetu hlómstrað á sem flestum sviðum. Vitað er að allirgeta eitthvað en enginn getur allt sem eru kjörorð svokallaðrar fjölgreindakenningar. Því er mikilvcegt að bjóða upp á sem mesta fjölbreytni í skólastarfi svo að sem flestirfái að njóta sín. Hvað með taflmennsku sjálfur, hversu góður ertu (stigatala)? Eg var ungur og efnilegur í Kópavogi fyrir svona 50 árum en nú er ég bara efnilegur ellismellur. Hcest komst ég í 1750 íslensk skákstig en er í dag með í kringum 1500 stig. Tefldi síðast kappskák fyrir um 6 árum. Hvaða áhrif hefur skákáhersla Salaskóla á skólastarfið og ímynd skólans? Eg myndi segja mjögjákvceð áhrif. Skólinn er þekktur fyrir mikla breidd í skákinni og höldum við reglulegar cefingar og einnig stcerri viðburði. Á haustin setjum við upp sveitakeppni milli bekkja. Síðan eru einstaklingsmót á vormisseri og taka yfir 30% aföllum nemendum skólans þátt íþeim mótum. Nokkrir foreldrar hafa síðan lýst þvíyfir að skákstarfið hjá okkur hafi verið ein afástceðum þess að þeirfluttu í Salahverfið. Telurðu að skák efli krakka í námi? Hvernig þá og hvaða þætti helst? Já. Skákin er tilgóðs áýmsa vegu. Eykur einbeitingu - styrkir sjálfsaga - þjálfar rökhugsun - hjálpar mörgum félagslega - styrkir sjálfsmynd þeirra sem ná árangri og hvetur til bcetingar á árangri á öðrum sviðum. Hjálpar krökkum að hugsa um orsök og afleiðingu gerða sinna - sem sagt mann- bcetandi á flestan hátt. Telurðu að skák eigi að vera partur af námi allra nemenda? Eða sérstaklega á einhverjum aldursstigum?Já, mérfinnst skynsamlegt að kenna skák strax í 1. og 2. bekk grunnskólans. Halda síðan áfram með þá sem heillast af skákinni. Best efskákin verðurpartur aflífi þeirrci alla cevi. Það er ekkert sem ég veit um sem er betra mótvcegi gegn tölvuleikjum og vídeóglápi. Hvernig er skipulagi skákkennslu í Salaskóla háttað? Við reynum að koma þessu að íyngstu bekkjunum. Dreifum skáksettum í kennslustofur og höldum reglulegar cefingar einu sinni í viku. Síðan erum við svo heppin að skák- styrktarsjóður Kópavogs stendurfyrir sérstakri skákakademíu áföstuclögum í Breiðabliksstúkunni fyrir þá sem eru lengra komnir. Það verkefni er unnið í samstarfi við Skákskóla Islands og er Helgi Ólafsson, stórmeistari og skóla- stjóri Skákskóla Islands, sá maður sem berþað starf uppi. Það er alveg ómetanlegt að krakkarnir geti dýpkað sig með aðstoð stórmeistara. Egget komið þeim á flot en síðan verða þau að fá meiri dýpt hjá einhverjum sterkari og aldeilis frábcert að hafa tnann eins og Helga. En í Salaskóla höfum við notið krafta margra góðra manna í gegnum árin. Fyrstu árin var Smári Rafn Teitsson með okkut; síðan Hrannar Baldursson og í vetur erum við svo heppin að Sigurlaug Regína, formaður Taflfélags Reykjavíkur, starfar með okkur sem almennur kennari. Hver er besti skákmaðurinn sem þú hefur kennt? Það er erfitt að benda á einhvern sérstakan en krakkarnir sem náðu heimsmeistaratitlinum í liðakeppni undir 14 ára árið 2007 eru og voru hreint frábærir. Patrekur Maron Magnússon, Jóhanna Björgjóhannsdóttir, Páll Andrason, Guðmundur Kristinn Lee og Birkir Karl Sigurðsson. Ari síðar tóku þau Norður- landatitilinn og var þá Eiríkur Örn Brynjarsson í liðinu í stað Birkis Karls. En ég œtla ekki að eigna mér heiðurinn afþví að hafa kenntþeim alla þá speki sem þau náðu. Þetta er samspil margra þátta og nutu þau góðs afSkákskóla íslands ogþví einvala liði sem hefur unnið með okkur í Salaskóla. Ég er hins vegar til í að eigna mér heiðurinn afað hafa skapað þá umgjörð sem hjálpaði til að þau næðu slíkum þroska. Efnilegustu skák-krakkarnir í Salaskóla ídageru, af unglingunum, BirkirKarl Sigurðsson og úryngri hópnum Hilmir Freyr Heimisson en þeir hafa tekið stór- stígum framförum í vetur. Margir aðrir eru orðnir virkir og tefla um 10 krakkar reglulega í hinum ýmsu skákklúbbum. Muntu halda ótrauður áfram í skákkennslunni um komandi ár? Menn hafa oft brunnið út í þessurn bransa en þú verið merkilega lengi, einhver galdur við það hversu lengi þú hefur sinnt þessu? Ég á eftir kannski 10 árí starfi sem kennari og held áfram að vesenast nokkur ár í viðbót. En galdurinn er að hafa gaman afþessu og njóta þess að mceta í vinnuna. 56

x

Skák

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.