Skák - 06.03.2012, Qupperneq 38
Gamlir samstarfsmenn úr þinginu.
árabil verið meðal sterkustu skákmanna
heims og að það væri einstakur heiður
fyrir krakkana að fá að mæta ástsælasta
skákmanni Islands á 20. öld.
Utanríkisráðherra lék svo fyrsta leikinn
fyrir Veroniku Steinunni Magnúsdóttur,
nemanda í Melaskóla. Veronika gerði
jafntefli við Friðrik og sama árangri náðu
Hrund Hauksdóttir, Sóley Lind Pálsdóttir
og Oliver Aron Jóhannesson.
Friðrik sigraði Vigni Vatnar Stefánsson,
Heimi Pál Ragnarsson, Hilmi Frey
Heimisson, Nansý Davíðsdóttur, Doniku
Kolica, Gauta Pál Jónsson, Dawid
Kolka og Felix Steinþórsson. Allar voru
skákirnar skemmtilegar og Friðrik fékk
tækifæri til að leika listir sínar. Dagur
Ragnarsson sýndi hinsvegar hvers vegna
hann er stigahæsti skákmaður landsins
undir 15 ára aldri, tefldi eins og herfor-
ingi og sveið fram snotran vinning.
Dagur Ragnarsson lagði Friðrik að velli. Kunnir kappar
fylgjast með
Fjöldi gesta lagði leið sína í Hörpu til
að fylgjast með goðsögninni tefla við
meistara framtíðarinnar, og enn fleiri
fylgdust með beinni útsendingu á netinu.
Skákskóli Islands og Skákakademía
Reykjavíkur stóðu að þessum vel
heppnaða og skemmtilega viðburði.
Valsmenn öruggir sigurvegarar á
Iceland Express-mótinu
Valsmenn unnu sannfærandi sigur á
Iceland Express-mótinu, Reykjavíkurmóti
íþróttafélaga í skák sem fram fór 27.
ágúst á Hlíðarenda. Lið Valsmanna, sem
skipað var fjórum Islandsmeisturum,
hlaut 16 stig af 18 mögulegum
Stórmeistarar og Halldór Einarsson í Henson
(aðeins Framarar náðu jafntefli gegn
stórveldinu) og samtals 24 vinninga af 28
mögulegum. Þróttarar uröu í 2. sæti með
16 stig og óhætt er að segja að það hafi
komið verulega á óvart. Þróttarar lögðu
t.d. Framara og KR-inga sem fyrirfram
voru taldir með mun sterkara lið. KR-
ingar urðu þriðju, Víkingar náðu fjórða
sætinu og Framarar enduðu í fimmta sæti.
Jón Viktor Gunnarsson stóö sig best allra
en hann var sá eini sem vann allar sínar
skákir. Jón L. Árnason hlaut 6,5 vinninga
og Jóhann Hjartarson hlaut 5,5 vinninga
í 6 skákum.
Reykjavíkurmeistarar Vals:
1. Héðinn Steingrímsson 5,5 v. af 7
2. Helgi Ólafsson 5 v. af 7
3. Jón L. Arnason 6,5 v. af 7
4. Jón Viktor Gunnarsson 7 v. af 7
Liðsstjóri og fyrirliði Valsmanna, Gunnar
Björnsson, tók kampakátur við bikarnum
í mótslok. Helgi Ólafsson bað urn orðió
í mótslok og bað fyrir kæra kveðju frá
Hemma Gunn, sem sagði Framara ávallt
sérstaklega velkomna í Valsheimilið til að
skoða bikaraskápinn.
Lokastaðan:
1. Valur 19 stig (24 v.)
2. Þróttur 16 stig (18,5 v.)
3. KR 11 stig (17,5 v.)
4. Víkingur 11 stig (16 v.)
5. Fram 9 stig (16 v.)
6. Fylkir 8 stig (13,5 v.)
7. Stelpuliðið 2 stig (4 v.)
8. Leiknir 1 stig (2,5 v.)
Leiknisliðið er efnilegt
Framkvæmd mótsins var í afar góðum
höndum Skákakademíu Reykjavíkur. Ljóst
er að þetta mót þarf að halda áfram og þá
helst á landsvísu.
Skákhátíð fjölskyldunnar á menn-
ingarnótt
Skákakademían stóó fyrir veislu á menn-
ingarnótt að Tjarnargötu lOa, þar sem
Akademían hafði bækistöðvar. Dagskráin
stóð í 9 klukkustundir og vakti mikla
athygli hjá þeim þúsundum sem lögðu
leió sína í miðborgina. Teflt var í blíðunni
fyrir framan Ráðhúsið, en inni voru
haldin fjöltefli, kynning á víkingaskák,
efnt til skákmóts og fleira skemmtilegt.
Einvígisborð Fischers og Spasskys frá
1972 var til sýnis og spilaðar voru klass-
ískar upptökur frá RUV með íslensku
skákefni, m.a. útvarpsþættir Guómundar
Arnlaugssonar.
Skákin blómstraði á menningarnótt og
mun Akademían alveg örugglega efna til
enn frekari hátíðahalda næst!
Maraþonskák fyrir börn Sómalíu
skilaði hátt í tveimur milljónum
Einhver stórkostlegasti skákviðburður
ársins 2011 fór fram í Ráðhúsinu helgina