Skák - 06.03.2012, Blaðsíða 42
Evrópumót taflfélaga
Meistaradeildin
Evrópumót taflfélaga fór að þessu
sinni fram í Rogaska Slatina í
Slóveníu dagana 24. september til
2. október 2011. Tvær íslenskar sveitir
tóku þátt: Taflfélag Bolungarvíkur og
Taflfélagið Hellir. Hér að neðan rekja
tveir valinkunnir meistarar reynslu og
upplifun hvors félags fyrir sig.
Björn Þorfinnsson, Taflfélaginu Helli
Að mínu mati er EM taflfélaga besta og
skemmtilegasta mót ársins. Möguleikarnir
á því að næla sér í áfanga að einhverjum
titli eru afar góðir og ekki skemmir
nálægðin við flesta bestu skákmenn
heims fyrir.
Rogaska Slatina í Slóveníu er tíu þúsund
manna bær sem er þekktastur fyrir heilsu-
hótel og ýmiss konar meðferðir til að efla
holdið og andann. Þetta var því kjörinn
vettvangur fyrir skákmót af þessu tagi
enda voru öll hótel í göngufæri við skák-
staðinn og ró og næði til að einbeita sér
að skáklistinni.
Helsti lösturinn á mótshaldinu var sá að
teflt var í þremur mismunandi keppnis-
sölum á tveimur hótelum, sem gerði það
að verkum að ómögulegt var að fylgjast
meó nema hluta viðureigna í hverri
umferð. Gúanóið, þar sem neðstu liðin
tefldu, var talsvert frá aðalskákstaðnum
og þar voru aðstæður arfaslakar, kannski
eins og vera ber í gúanói. B-salurinn,
sem var fyrir liðin sem sigldu lygnan sjó
um og yfir mitt mót, var ágætur, vítt til
bæði lofts og veggja, en eini gallinn var
sá að hann var á þriðju hæð í hótelinu og
maður var því orðinn ansi andstuttur af
því að þramma margsinnis upp og niður
stigana í tilraun til að fylgjast einnig með
baráttunni á efstu borðum. Hinn út-
sjónarsami Þröstur Þórhallsson fann hins
vegar krókaleið með því að nota Iyftu í
samtengdu hóteli og eftir nokkrar vel
valdar beygjur í allar áttir komst hann inn
á skákstaðinn í gegnum neyðarútgang. F.g
var snöggur að gera þessa leið að minni.
Aðalsalurinn, sem var á jarðhæö í
gömlu og mikilfenglegu lúxushóteli, var
framúrskarandi flottur. Þar fóru fram
sjö efstu viðureignirnar í hverri umferð,
allar skákirnar í beinni útsendingu, auk
viðureignanna í kvennaflokki. Áhorfendur
voru sjaldséðir í hinum sölunum en
þarna var alltaf talsverð umferð af
áhorfendum, sérstaklega undir lok
mótsins. Þrátt fyrir annmarka með salina
var mótshaldið í heild til fyrirmyndar og
festi þá skoðun rnína enn frekar í sessi að
EM taflfélaga er mót mótanna.
Þaó kom í rninn hlut að fjalla um árangur
okkar Hellismanna. Nánast allir liðsmenn
áttu mjög gott mót, sérstaklega þeir
Sigurbjörn og Hjörvar Steinn, en helst
kom á óvart slakur árangur Hannesar á
fyrsta borði. Sjálfur hef ég aldrei orðið
vitni að því að Róbótinn, sem er gælunafn
Hannesar meðal yngri skákmanna, klikki
en ég býst við því að allir séu rnann-
legir - meira að segja róbótar. Gæfan var
ekki í liði með Hannesi í fyrstu umferð
þegar hann lék illa af sér og tapaði gegn
stigalágum Albana. í stað þess að fá tíma
til að sleikja sárin í næstu umferð og
vinna stig til baka inn í mótið var sjálfur
Ponomariov andstæðingurinn í næstu
umferð og síðan sterkir andstæðingar í
hverri einustu umferð allt til loka.
Svo ég snúi rnér aftur aó Hellisliðinu
vannst stór sigur á albönsku liði,
Veleciku, í fyrstu umferð, á'A-l'A, þar
sem Hannes tapaði og ég missti niður
jafntefli. I næstu umferð vorum við
komnir í aðalsalinn, í beina útsendingu,
og töpuðum stórt 5V2-V2 fyrir rússnesku
ofursveitinni Tomsk-400. Ykkar einlægur
náði jafntefli gegn sjálfum Motylev. I
þriðju umferð dundu ósköpin yfir þegar
við mættum TB-ingum. Það er frekar
þreytandi að fljúga langa leið til þess
eins að tefla við sömu andstæðingana
og heima fyrir. Það var hins vegar ekkert
annaó í stöðunni en að bíta í skjaldar-
rendur og berjast. Við bræðurnir gáfum
tóninn með sviptingasömu jafntefli í 8
leikjum og valhoppuðum svo saman
út í sólina. Þetta var önnur skák okkar
bræðra á Evrópumóti taflfélaga og er
þaó tveimur skákum of mikió. Stefán
og Hannes sömdu einnig um skiptan
hlut á 1. borði en fljótlega vorurn við
Hellismenn komnir í 3-1 með sigrum
Hjörvars og Róberts gegn Jóni Viktori
og Degi. Vestfirðingar eru þó þekktir
fyrir allt annað en að gefast upp og
Þröstur og Guðmundur jöfnuðu metin
með sigrum gegn Sigurbirni og Bjarna
Jens. Jafntefli, 3-3, var því niðurstaðan
eftir þessa bræðrabyltu. í 4. umferð
mættum við hollensku liði sern var
áþekkt okkur í styrkleika og unnum þar
góðan 4-2 sigur. Hannes átti slæman
dag og tapaði gegn 1M Pruijssers, sem
náði síðan stórmeistaraáfanga í mótinu.
Skömmu síðar jafnaði ég metin gegn
Islandsvininum IM van Delft og í kjölfarið
tryggðum við okkur sigur með þremur
góðum sigrum hjá Sigurbirni, Róberti og
Bjarna Jens. Hins vegar varð Hjörvar að
játa sig sigraóan í langri baráttuskák. I 5.
umferð mættum við belgíska liðinu KSK
Rochade, en því liði höfum við oft mætt
í þessari keppni. Við Hannes ákváðum
að vera andlega fjarverandi í þessari
viðureign og Belgarnir komust því
fljótlega í 2-0. Sigurbjörn minnkaði síðan
muninn með góðum sigri og Bjarni Jens
var hetja dagsins þegar hann sneri stein-
clauðu jafntefli í mikilvægan sigur. Eftir
langa baráttu urðu svo Hjörvar og Róbert
að sætta sig við jafntefli og því varð 3-3
jafntefli niðurstaðan. I sjöttu og næst-
síðustu umferð mættum við serbneska
liðinu Glasinac Sokolac, sem hafði á að
skipa tveimur sterkum stórmeisturum
á fyrstu tveimur borðunum. Úr varð
hörkubarátta en svo fór að við unnum
góðan 4-2 sigur. Hjörvar, Sigurbjörn og
Bjarni Jens unnu öfluga sigra en ég og