Skák - 06.03.2012, Blaðsíða 43
Róbert gerðum jafntefli. Hannes tapaði
svo íyrir GM Solak í hörkuskák.
í síðustu umferð komumst við svo aftur
í aóalsalinn og andstæðingurinn var
ofurlióið Ugra frá Rússlandi. Það voru
blendnar tilfinningar sem bærðust í
brjósti okkar þegar pörunin varð ljós.
Það var spennandi að tefla meðal þeirra
bestu í aðalsalnum en tveir liðsmenn
voru í dauðafæri við áfanga að alþjóð-
legum meistaratitli, þeir Hjörvar Steinn
og Sigurbjörn. Þeirra beió nú hið
erfiöa verkefni að þurfa að ná punkti
gegn ofurstórmeisturunum Malakhov
og Dreev, sem báóir skarta yfir 2.700
skákstigum. Sérstaklega var hlutskipti
Sigurbjarnar erfitt, en allt byrjanakerfi
hans með svart byggist á bókum sem
Dreev hefur skrifað og auóvitað höguðu
örlögin því þannig að Sigurbjörn stýrði
svörtu mönnunum. Þess utan eru
áfangaveiðar Sigurbjarnar ein samfelld
harmsaga. Enginn efast um getu kappans
en óheppnin er algjör. Ef hann hefur
ekki misst af lestinni með tapi í síðustu
umferð þá hefur hann náð tilskildum
árangri en áfanginn ekki gildur sökum
formsatriða, t.d. ónógur fjöldi titilhafa.
Satt best að segja vorum við liðsfélagarnir
ekki bjartsýnir fyrir hönd Sigurbjarnar en
hann svaraði því með því að tefla frábæra
skák sem tryggði honum skiptan hlut og
þar með fyrsta en ekki síðasta áfangann
að alþjóðlegum meistaratitli. Hannes
Hltfar var ekki dauður úr öllum æðum
og tefldi góða skák gegn Jakovenko en
sleppti honum með jafntefli að lokum.
Aðrir liðsmenn urðu að lúta í gras, einn
af öðrum, en þó ekki fýrr en í fulla
hnefana. 5-1 tap gegn ofurliði Ugra var
staðreynd en við gátum borið höfuðið
hátt.
Við vorum einnig bjartsýnir um að verða
fyrir ofan Bolvíkinga enda áttu þeir að
tefla við sterkt spænskt lið með Loek
van Wely á fyrsta borði í síðustu umferð.
Þeir unnu hins vegar stórkostlegan
sigur og skutust upp fýrir okkur í lokin.
Það er ekki annað hægt en að taka
hattinn ofan fýrir þeirri frammistöðu og
óska Vestfirðingum til hamingju með
árangurinn.
I vinningum talið var árangur liðsmanna
eftirtalinn:
1. Hannes Hlífar Stefánsson - 1 v. af 7
2. Björn Þorfinnsson - 3 v. af 7
3. Hjörvar Steinn Grétarsson - 3'/2 v.
af 7
4. Sigurbjörn Björnsson - 4“/2 v. af 7
5. Róbert Lagerman - 4 v. af 7
6. Bjarni Jens Kristinsson - 4 v. af 7
Sigurvegari mótsins var lið Saint-Peters-
burg Chess Federation með Peter Svidler
á fyrsta borði, sem var nokkuð óvænt því
ofurliðið SOCAR frá Aserbaídsjan var af
flestum talið langsigurstranglegasta liðið
enda með fýrrverandi heimsmeistarann
Kasimdzhanov á sjötta og síðasta borði!
Að lokum verð ég að minnast á afar
minnisstætt atvik sem átti sér stað í fýrstu
umferó í viðureign okkar gegn albönsku
liði.
Ég ákvað að tefla 1. e4 í fýrsta skipti og
svaraði í þokkabót l...c5 með hinum
vafasama gambít 2.b4!? Rökin fýrir þeirri
ákvörðun voru þau aó andstæðingurinn,
Paci að nafni, tefldi afar illa gegn öllum
gambítum. Sú varð reyndar raunin en
ég fékk aðeins eitt tækifæri til að fá ntun
betra tafl og þegar ég missti af því tefldi
Paci óaðfinnanlega og gaf engin færi
á sér. Ég gerði mitt besta til að forðast
öll jafnteflisleg afbrigði, sem er yfirleitt
vísasta leióin til taps, og sökk dýpra og
dýpra í sætið þegar andstæðingurinn
fann yfirleitt bestu leiðirnar og komst út í
kolunnið endatafl. Ég þvældist hins vegar
fýrir eins og ég gat og að lokum gerði
Albaninn mistök og upp kom þessi staða:
r nr m
■ ■
p ■ ■
'V m » ii 1
| M
|xB ■ ■ ■ jlj
1 y
Hérna lék ég Hf3 + og andaði léttar
enda er jafnteflið þar með tryggt. Leiki
svartur Klt4 byrja ég á aó ieika Hh3 +
og elti svo kónginn út um allt borð.
Andstæðingurinn sýndi hinsvegar engin
svipbrigði og drap hrókinn, náði sér í
biskup og tilkynnti að ég væri mát. Ég
verð að viðurkenna að ég átti ekki von
á feiknum gxf3 = B# og taldi auðvitað
að maðurinn væri að grínast og brosti
því vandræðalega til hans, enda hef ég
oft orðið vitni að betri bröndurum. Það
runnu hins vegar á mig tvær grímur
þegar mér varð ljóst að maðurinn var
ekkert að grínast! Eftir vandræðalega
þögn í nokkra stund sprungu liðsfélagar
Paci gjörsamlega úr hlátri og þá áttaði
andstæðingurinn sig og varð frekar
rjóður í vöngum. Þetta var með fýndnari
uppákomum sem ég hef lent í við skák-
borðið en óneitanlega hef ég ítrekað
spurt mig hvernig ég gat næstum því
tapaó fýrir manni sem ætlar að vekja upp
biskup áf3!
Skák mótsins af hálfu okkar Hellis-
manna var tefld í síðustu umferð, þegar
Sigurbjörn hafði svart á móti ofurstór-
meistaranum Aleksey Dreev.
Hvítt: Aleksey Dreev (2711)
Svart: Sigurbjörn Björnsson (2349)
Evrópumót taflfélaga, 7. umferð, 1.
október 2011
Þessi skák var tefld í lokaumferð
Evrópumóts taflfélaga sem fram fór í
Rogaska Slatina í Slóveníu síðasta haust.
Fyrir mig var þetta merkileg skák fýrir
margra hluta sakir, fyrir það fýrsta var
þetta áfangaskák, í öðru lagi var ég í
fyrsta skipti að tefla við mann með yfir
2.700 stig (á þeirn tíma sem skákin fer
fram) og í þriðja lagi var ég að tefla við
þann mann sem þekkir byrjunina sem ég
tefli með svörtu sennilega best af öllum
skákmönnum heimsins.
I.d4 d5 2.c4 c6 3.Rf3Rf6 4.e3
Á undanförnum tveimur árum hefur
Alexey Dreev gefið út tvær magnaðar
bækur urn Semi-Slav byrjunina. Því kom
það mér í raun ekki svo mikið á óvart að
hann skyldi velja akkúrat þetta afbrigði
gegn mér, því nú sneiðir hann frarn
hjá afbrigðunum sem hann fjallaði um
í bókunum sínum, Moskrm og Anti-
Moskvu afbrigðunum sem hefjast eftir
4.Rc3 e6 5.Bg5 og Meran eða Anti-Meran
afbrigðunum sem hefjast eftir 4.Rc3 e6.
4...BÍ5
Nú beinist byrjunin yfir í Slow-Slav, en
ég tel að 4... Bf5 sé besti leikurinn í
þessari stöðu og að það sé frekar hæpið
að leika 4.. ,e6 því þá getur hvítur valið
úr nokkrum frekar óþægilegum leiðum.
Sú besta er sennilega að bíða með
riddarann á bl, leika b3, Bb2, Bcl3, 0-0