Skák


Skák - 06.03.2012, Síða 51

Skák - 06.03.2012, Síða 51
vinnslutíma þegar eldri heilar eru bornir saman við þá yngri, í stað þess að mæla bara það sem fljótlegt er á forsendum yngri heila. Mælingar á fjölþættri greind virðast benda til þess að eldri heilar séu hinum yngri ekki eftirbátar þegar á heildina er litið. Þvert á móti veiti vís- dómur reynslunnar þeim jafnvel forskot varðandi nákvæmni og sköpunargáfu við úrlausn vandamála. Þá er í seinni tíð orðið ljóst að mannsheilinn getur tekið jákvæðum breytingum fram á gamals aldur, aðlögunarhæfni hans til að mynda nýjar tengingar kemur æ betur í ljós. Þegar við bætist yfirvegun hins eldri heila við áhættutengda ákvarðanatöku, er ekki ástæða til annars en aö eldri skákmenn gangi hnarreistir til leiks við þá yngri. Þessar vangaveltur minna jafnframt á nytsemi þess að eldri skákunnendur miðli hinum yngri af visku sinni og skilningi á notagildi nýrrar þekkingar. A móti veitir hinum eldri ekki af því að fá tilsögn í notkun tölvuforrita á borð við ChessBase og Houdini, svo að eitthvað sé nefnt. Hvorirtveggju hafa gagn af góðri aldursdreifingu í æfingum og keppni, hvorirtveggju búa yfir dýrmætum eigin- leikum sem vert er að samnýta. Öldrun er úrelt hugtak Lífaldur sem viðmió deyfir sýn sam- félagsins á mikilvæga auðlind sem felst í mannlegum þroska. Þetta viðmið telur þeim einstaklingi, sem korninn er á efri ár, trú um að reynsla hans sé takmarkandi þáttur í lífinu en ekki takmark til að ná árangri. Þessu viðhorfi verður að breyta en uppgjörið við aldursfordóma og baráttan fyrir félagslegu réttlæti felst ekki í því að hverfa til gildismats fornra samfélaga heldur að meta sérhvern ein- stakling að verðleikum, óháð aldri. Margt bendir til þess að möguleikarnir á því að örva og efla hinn fúllorðna heila séu stórfelldir. Þegar eldra fólk er viðurkennt sem mikilvægur hluti samfélags, atvinnulífs og félagslífs á borð við skákiðkun, losnar jákvæð orka úr læðingi. Sú upplifun að njóta viðurkenningar annarra er til dæmis einhver miklvægasti heilsufarsþátturinn í lífi okkar allra. Þannig má með einfaldri viðhorfsbreytingu auka lífsgæði í samfélaginu og spara útgjöld í heil- brigðis- og félagslega kerfinu. Hér virðist kjörió að nota skákina sem viðspyrnu, hvetja fólk til að gerast upp- litsdjarfara og setja sér ný markmið fram eftir öllum aldri. Ósjálfrátt koma upp í hugann orð skákunnanda á sjötugsaldri sem kveðst hafa sett sér þaó markmió að verða elstur manna stórmeistari í skák. Verðugt markmið og skemmtilegt! Þá er ekki síður uppörvandi að fylgjast með því hvernig fyrrverandi íslandsmeistar- arnir og snillingarnir Björn Þorsteinsson og Gunnar Gunnarsson knésetja Elli kerlingu í hverri kappskákinni á fætur annarri og hafa sjaldan notið sín betur á hvítum reitum og svörtum. Miklu skiptir að laða eldra fólk til skákiðkunar í krafti einlægni, viróingar og gleði. Láta það finna að það getur líka verið efnilegt - eða sagði ekki þjóð- skáldió að hér svæfi hetja á hverjum bæ? Fullyrða má að íslensk þjóð eigi sér því aðeins bjarta framtíð að hún læri að meta eldri k)'nslóðina að verðleikum og beri gæfu til að nýta sér atgervi hennar í leik og starfi. Gens una sumus - eða eins og Hermann, fjárbóndi og formaður Goðans, myndi orða það: Við erum öll af sama sauða- húsi. Höfundur er framkvcemdastjóri Eflis almannatengsla ogfélagi í Goðanum. Heimildir: Einar B. Baldursson, 2007 - Öldrun, vandi eóa vannýtt auðlind? Grein í Mbl. Elkhonon Goldberg, 2005 - The Wisdom Paradox. Simon&Schuster UK Ltd. Norman Doidge, 2007 - The Brain that Changes Itself. Penguin Books Ltd. 51
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Skák

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.