Skák


Skák - 06.03.2012, Page 66

Skák - 06.03.2012, Page 66
Einkennilegar tilviljanir - Um kynni mín af Bobby Fischer Bragi Kristjónsson Eftir stúdentspróf frá Verzlunar- skólanum árið 1958 var eg eiginlega búinn að fá nóg af skólanámi urn hríð. Hafði líka kynnzt mörgu skemmtilegu fólki með bóhemíska tendensa, sem lokkuðu og gaman var að hrærast með. Jökull Jakobsson var mágur minn á þessum árum, gríðarlega ritleikinn og góður höfundur og var um þær mundir ritstjóri Vikunnar, sem breytt haföi verið úr heimilisblaði húsmæðra í hálfgert menningartímarit og hann gabbaði mig til starfa fyrir Vikuna og undi eg þar ágætlega í 2-3 ár með frábærum starfs- félögum: Karli Isfeld rithöfundi, Hrafni Pálssyni hljómlistarmanni, Jónasi Jónas- syni útvarpsmanni, Ásbirni Magnússyni auglýsingastjóra og ferðafrömuði, Þor- geiri Þorgeirsyni rithöfundi, Ólafi Gauki tónlistarmanni og fleiri ágætum mönnum og konum, þ.á m. var sendill hjá okkur um hríð Stefán Friðfinnsson, seinna forstjóri íslenzkra aðalverktaka. Það var gott og skapandi að vinna með þessum sómamönnum og eg skrifaði heilmikið þessi árin fyrir blaðið. Einn þeirra ágætu manna sem eg kynntist var Jón Böðvarsson íslenzkufræðingur og frömuður um túlkun Islendingasagna, sem frægt er. Hann var í hlutastarfi íyrir hótelstjóra á Hótel Skjaldbreió og ein- hverntíma kom hann að máli við mig og spurði mig, hvort eg vildi verða nætur- vörður á hótelinu í ígripum. Þótti mér það spennandi og sló til og gegndi því samhliða blaóamennskunni um nokkurt árabil. Þar kynntist eg ýmsum afbragðs- mönnum, sem unnu við hið sama, t.d. Ara heitnum Jósefssyni skáldi og snillingi, Jóni frá Pálmholti, Guðbergi Bergssyni og ýmsum fleirum. Var oft líf og fjör á Skjaldbreið þegar svöng skáld og snill- ingar komu í heimsókn að næturþeli, og við söddum sárasta hungrið með mat úr búri hótelsins. Má þar nefna Alfreð Flóka teiknara, skáldin Stefán Hörö Grímsson og Dag Sigurðarson og fleiri. Um 1960 vildi Jóhannes Jósefsson glímu- kappi selja Hótel Borg og varð úr, að okkar góði hótelstjóri, Pjetur Daníelsson varð einn þeirra fimm, sem keyptu hið fornfræga glæsihótel. Fluttum við nætur- verðirnir þá yfir meó honum þangað og var það mikill munur aó koma af Skjald- breið á fínasta og bezta hótel landsins. Það var á Hótel Borg, sem eg hitti Bobby Fischer í fyrsta skipti. Hann kom á skákmót í Reykjavík árið 1960 og gisti á Borginni. Innskot ritnefndar. Bobby Fischer tók þátt í skákmóti á Islandi í október 1960-þá 17 ára gamall. Um þetta mót er fjallað í Tímaritinu Skák, 7. tbl., nóvember 1960. Fischer var boðin þátttaka í minningarmóti Eggerts Gilfers, sem haldið var í seþtembermánuði sama ár. En vegna misskilnings í sambandi við tíma mótsins kom stórmeistarinn ekki hingað til landsfyrr en í lok þess! 66

x

Skák

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.