Skák


Skák - 06.03.2012, Síða 68

Skák - 06.03.2012, Síða 68
skákbækur á rússnesku eða eitthvað, sem hann girntist, keypti hann það og greiddi með bros á vör, en alltaf gaf eg honum samt nokkuð ríflegan afslátt og kunni hann vel að meta það. Annars leitaði hann mest að bókum um ein- staklinga, sem höfðu þurft að hrekjast frá heimalöndum sínum vegna ofsókna stjórnvalda íyrir skoðanir sínar og fann ótrúlega margar bækur, sem hann keypti af þessu tagi hjá okkur. Fischer bjó þessi árin við Skúlagötu og var oft á heimferð milli 10 og 11. Ef eg var í búðinni kom hann oft inn og hélt áfrarn leit sinni að lesefni, einnig hafði hann mikinn áhuga á ýmsurn bandarískum teiknimyndaseríum, einkurn ef þær fjölluðu um sama efni og ofangreint. Ef hann var í stuði, spilaði hann oft fyrir mig einhverjar glefsur úr BBC um hann og hans geðveiki og rugl, sem hann gaf lítió fyrir og sagði mér líka frá viðureign sinni við svissneska banka og gullstangir, sem hann átti þar og „bjánana" í Lands- bankanum, sem hann var ekki par hrifinn af. Hann var yfirleitt ekki hrifinn af því þegar útlendingar viðruðu sig upp við hann, en eitt sinn var í búðinni erlendur maður sem greinilega hafði hitt Fischer áður. Þessi maður reyndist þá vera forseti skáksambands Filippseyja, og höfðu þeir hitzt fyrir mörgum árum. Varð með þeirn fagnaðarfundur og bauó maðurinn honum í mat á hóteli sínu. Ef það kom fyrir, að íslendingar gengu að honum og báðu hann að árita eitthvað, kort eða bækur eftir hann, brást hann ljúfmann- lega við því, en svo var það líka búið, ef fólk ætlaði að tala meira við hann, sneri hann sér bara að öðru. Þegar Sæmi rokk, sem átti, eins og allir vita, drjúgan þátt í að bjarga Fischer hingað, var í burtu í fríum, tókum við í búðinni að okkur að taka við og geyma póstinn fyrir Fischer, því paranoia hans var slík, að hann vildi ekki fá póstinn heim til sín. Einhverju sinni kom hann og spurði hvort nokkur póstur hefði borizt, en Sæmi var í burtu. Þá rétti Ari Gísli sonur minn honum póstinn, þ.á m. stórt umslag með einhverju hörðu innan í. Þá segir Fischer: „Bloody Jews, a bomb, take care, I am going outside, while you open it.“ Svo opnaði Ari Gísli umslagið og reyndist þar engin sprengja vera, heldur eitthvert tréleikfang frá kunningja hans í Bandaríkjunum. Honurn fannst allt í lagi að Ari Gísli spryngi í loft upp, en vildi síður lenda í því sjálfur. Eg ætla ekki að rekja hér ummæli Fischers um Bandartkjamenn eða gyðinga, það er flestum kunnugt og óþarfi að rifja það upp hér. En það þýddi ekkert að andmæla honum, þá bara reiddist hann og stikaði burt og sást ekki í nokkra daga á eftir. Stundum hafði hann orð á því, hvort hann ætti ekki að hjálpa mér að fara í gegnum himinháa bókastaflana, sem voru á gólfum og borðurn, en einhvernveginn tókst mér að afstýra því með lagni. Hann var vanur að fá sér sæti á afviknum stað í búðinni meðan hann gluggaði í bækur og meðal þess, sem erlendar sjón- varpsstöðvar höfðu áhuga á, var að sjá „stólinn, sem Fischer hefði setið í“ og hugsa ég, að þetta sé mest myndaði stóll í heimi. Stundum fékk gamli meistarinn sér jafnvel lúr í stólnum góða. Núnú, eg ætla nú ekki að hafa þetta lengra að sinni, en verð bara að viðurkenna að okkur gekk bara bærilega vel að komast af hvor við annan og aldrei kom til alvarlegs ágreinings milli okkar. Einhverntíma var hann í banastuði og sagði: „Bragi, you have become a celebrity, because 1 am visiting your shop, are you aware of that?“ Eg man ekki, hverju eg svaraði. Þegar Fischer var orðinn dauðveikur og vildi ekki þiggja úrræði læknavísindanna, sat hjá honum góður vinur minn, Magnús Skúlason læknir. Þetta var daginn sem hann dó. Fischer var aldrei fyrir líkamlega snertingu, en að þessu sinni, þegar Magnús sat hjá honum og strauk honum um hendurnar, Fischer í hálfgerðu óráðsdái, sagði Fischer: „Nothing eases suffering like human touch.“ Skömmu síðar dó hann, þessi undramaður skákheimsins, sem sneri öllu á haus öðru hvoru með sjúklegum uppátækjum og snilli sinni. Hvítt: Arinbjörn Guðmundsson Svart: Robert James Fischer Reykjavík, október 1960 l.d4 Rf6 2.RÍ3 d5 3.e3 g6 4.c4 Bg7 5.Rc3 0-0 6.Db3 e6 7.Be2 Rc6 8.Dc2 dxc4 9-Bxc4 e5 10.dxe5 Rg4 11.0-0 Rcxe5 12.Rxe5 Rxe5 13 Be2 c6 I4.f4 Rg4 15.h3 Bf5 I6.e4 Dd4+ 17.Khl Rf2 + 18.Hxf2 Dxf2 19.exf5 Bxc3 20.bxc3 Hae8 21.Bd3 Hel+ 22.Kh2 Dgl + 23.Kg3 Hfe8 24.Hbl gxf5 25.Bd2 Hxbl 26.Dxbl Dxbl 27.Bxbl He2 0-1
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Skák

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.