Skák - 06.03.2012, Qupperneq 70
Af valkyrjum og víkingum
/
t vil ek, sagði Snorri, og meinti þá
út til íslands. Svo fór hann utan
frá Fróni. I dag þegar Mörlandinn
hefur lengi talist þjóð meðal þjóða er
óhætt að miða við fósturjörðina og
segja út þegar farið er frá íslandi. Útrás
íslenskra skákmanna ber hvorki með sér
gripdeildir né fjármálasvik og pretti. Hún
er einfaldur þorsti í skákvetni úr öðrum
uppsprettum en hér er að finna. Allt er
heima dælt. Þetta vita skákmenn vel og
sérstaklega okkar fremsta fólk. Afreks-
fólkiö. Það þarf að reyna sig erlendis og
víkka sjóndeildarhringinn.
Skáksamband íslands (SÍ) hvetur
íslenskt afreksfólk til slíkra ferða og
styður samkvæmt ákveðnu regluverki.
Sótt er um beint til SÍ með því að fylla
út rafrænt eyðublað á heimasíðu þess.
Styrkbeiðnirnar berast til styrkjanefndar
sem fer yfir þær og ráðleggur stjórn sem
hefur endanlegt úrskurðarvald.
Útrás íslenskra skákmanna var nokkur
á árinu 2011 og íyrstu mánuðum ársins
2012. Eftirfarandi einstaklingar hlutu út-
hiutun úr styrktarsjóði SÍ:
Chennai Open Indlandi janúar 2011
Guðmundur Kjartansson
EM einstaklinga Aix les Bains í Frakk-
landi mars-apríl 2011
Bragi Þorfinnsson
Hannes Hlífar Stefánsson
Lenka Ptácníková
First Saturday í Ungverjalandi júní
2011
Daði Omarsson
Nökkvi Sverrisson
EM félagsliða í Rogaska Slatina í
Slóveníu september 2011
Sigurbjörn Björnsson
Róbert Lagerman
Björn Þorfinnsson
Guðmundur Gíslason
London Classic desember 2011
Björn Þorfinnsson
Guðmundur Gíslason
Bjarni Jens Kristinsson
13. Opna alþjóðlega æskulýðsmótið í
Saint-Ló Frakklandi júlí 2011
Sóley Lind Pálsdóttir
EM undir 18 ára í Albena í
Búlgaríu september 2011
Jóhanna Björg
Hastings 2012 janúar 2012
Guðmundur Kjartansson
Liberec Open-skákmótið í Tékklandi
október 2011
Elsa María Kristínardóttir
Hrund Hauksdóttir
Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
Tinna Kristín Finnbogadóttir
Sigríður Björg Helgadóttir
Það er sérstakt fagnaðarefni að þátttaka
kvenna í skáklífi landans hefur aukist
síðustu misseri. Mátum segir svo hugur
að íslenskar skákvalkyrjur eigi eftir að
verða áberandi á útrásarknörrum og
vinna marga góða sigra.
Stórmeistararnir okkar, þeir sem atvinnu
hafa af listinni, hafa ekki setið auðum
höndum og sótt heim mót og tekið þátt
í deildarkeppnum á meginlandinu. Það
er alltaf gaman að fylgjast með landanum
reyna sig ytra og yfirleitt er hægt aó
fylgjast með viðureignunum meóan þær
fara fram.
Styrkir til skákmanna eru tíundaðir í
ársskýrslu SÍ en hér í þessu greinarkorni
höfum við safnað saman frásögnum
nokkurra þeirra sem voru svo vinsam-
legir að deila ferðasögum meó lesendum
Tímaritsins. Við þökkum þeim og biðjum
ykkur vel að njóta!
Davíð Ólafs-
son landsliðs-
þjálfari kvenna
Liberec Open - æfingaferð kvenna-
landsliðshóps
Sex þátttakendur úr æfingahóp kvenna-
landsliðs tóku þátt í Liberec Open-
skámótinu 22.-29. október síðastliðinn
og fór undirritaður með sem þjálfari.
Mótið sem er partur af Czech Tour-
mótaröðinni reyndist afár skemmtilegt og
er mjög góður kostur íyrir skákmenn allt
frá mjög stigalágum upp í u.þ.b. 2200-
2300 stig. Mótsstaðurinn sjálfur hjálpar
einnig verulega til að gera upplifunina af
mótinu góða. Liberec er bær í u.þ.b. 100
km fjarlægð frá Prag og er bærinn allur
hinn þægilegasti. Hótel Liberec, sem
við gistum á og teflt var á, er algjörlega í
miðbænum og stutt aó ganga til að finna
allt sem maóur þarfnast. Bærinn er mjög
hreinlegur og snyrtilegur og hefur upp á
margt að bjóða. Hér er t.d. innisundlaug
með margar vatnsrennibrautir, bíó, keila
og ýmislegt sem hægt er að gera sér til
dundurs. Matur er frekar ódýr og verðlag
almennt mjög gott. Þaó er því ekkert því
til fyrirstöðu að mæta á svæðió með alla
fjölskylduna. Einnig eru í bænum helstu
verslanir sem allir þarfnast til að fata
sig upp, svo sem H&M, C&A auk fjölda
annarra verslana og verðið er miklu betra
en við eigum að venjast.
Mótið var mjög góður skóli íyrir stelp-
urnar sem fengu þarna tækifæri til að
tefla á fínu móti með stuðningi þjálfara.
Flestar stelpurnar eru búnar að til-