Skák - 06.03.2012, Side 74
sem ég heyrði Helga Ólafs eitt sinn segja:
2-3 síðustu umferðirnar skipta öllu máli
í mótum.
I áttundu og næstsíðustu umferð mætti
ég Indverjanum N. Surendran (2207) og
tefldi ég Kóngsindverska vörn, þar sem ég
náði að plata hann í byrjuninni og vann
þægilegan sigur. Fyrir lokaumferðina gat
ég vel við unað, kominn með samtals 5,5
vinninga eftir 8 skákir og þurfti bara að
ná hálfum vinningi úr síðustu umferðinni
til að fara glaður og ánægður heim. Ég
var alveg sáttur við að fá enska landsliðs-
manninn Nicholas Pert með hvítu og læt
skák okkar fylgja hér á eftir.
Hvítt: Guðmundur Gíslason (2318)
Svart: Nicholas Pert (2563)
London Chess Classic 2011 (9)
l.d4 Rc6 2.Rf3 d5 3.e3 Bg4 4.c4 e6
5.Rc3 Rf6 6.Da4 Bxf3 7.gxf3 dxc4 8.f4
N.Var búinn að ætla að nota þennan leik
lengi og fannst það tilvalið núna.
8.. .Bb4 9-Bg2 Rd5 10.0-0 í mínum
stúderingum var ég bara búinn að skoóa
10.. .0-0.
10...a6!? ll.Re4 b5 12.Ddl 0-0 13.Rg3
Rce7 I4.e4 Rf6 15.Be3!? Kannski er
15.a3 betri: 15...Ba5 l6.Be3 c6 17.Df3
Bb6 18.Hfdl Dc7 19-Hacl c5 20.dxc5
Bxc5 21.e5 Rfd5 22.Bxc5 Dxc5 23.Re4
Db6 24.Dg4 með spil fyrir peðið.
15...c5 I6.a3 cxd4 17.Bxd4 Ba5
18.Bxf6 Dxdl 19-Haxdl gxf6 20.Rh5
Had8 21.Rxf6+ Kg7 22.e5 Hxdl
23-Hxdl Rg6 24.Bb7 Rxf4 25.Bxa6
Rd3 26.Bxb5 Rxb2 27.Hcl!
F.ini leikurinn (27.Hd4 c3! 28.Hg4+
Kh8 29.Hh4 Hg8 + ! 30.KÍ1 (30.Rxg8 c2!
31-Rfó cl —D+ 32.B/1 h6 og vinnur.
Framhaldið gæti orðið 33Hg4 Dc8
34.Ba6Df8 meó hugmyndinni Bd8)).
27.. .C3 28.Kfl Kg6 29.Re4! Tryggir
jafntefli.
29.. .KÍ5 30.Rxc3 Hc8 31.Re2 Hxcl +
32.Rxcl Kxe5 33.Rb3 Bb6 34.Ke2
Kd5 35.Rd2 h6 36.Be8 f6 37.a4 Rc4
38.Rxc4 og hér bauð Pert jafntefli sem ég
tók eftir smá umhugsun.
V2—V2
London Chess Classic er mjög áhugavert
mót og mæli ég eindregið með því þó að
kostnaðurinn sé frekar í hærri kantinum.
Kostnaðurinn nam samtals 191 þúsund
krónum hjá mér og gisti ég samt í eins
manns herbergi á London Town Hotel.
Eins og með flest mót snýst þetta mest
um að maður sé búinn að ákveða sig
með miklum fyrirvara og geti þannig náð
niður kostnaði sem snýr að flugi, gistingu
og þátttökugjöldum.
Skákmenn:
Að hafa ánægju af að tefla, geta notið þess
að vera nálægt sterkustu skákmönnum
í heiminum og eiga sér draurn um að sá
dagur komi að maður sitji andspænis
þeim - það gefur mér enn meiri orku,
elju og vilja til að leggja meira á mig til
að sá draumur geti orðið að veruleika.
Allt er hægt ef vilji, ástundun og jákvætt
hugarfar er fyrir hendi. Eitt er víst - skák
er skemmtileg!
Hnífsdal 28.12.2011
Með skákkveðju,
Guðmundur Gíslason (Gummi Gísla)
Vegabréf, veik-
indi og efnilegir
skákmenn á
Indlandi
Henrik Danielsen
Síðasta ferð mín til Indlands í janúar
var erfið og olli vonbrigðum hvað tafl-
mennskuna varðaði.
Ferðin var hins vegar þroskandi, ég upp-
lifði margt sem hafði mikil áhrif á mig og
fer í reynslubankann. Tók þátt í tveimur
skákmótum á þremur vikum, einu í
Chennai og öðru í Nýju-Delhi.
Nokkru áður, í nóvember 2011, fór ég til
Indlands sem ferðamaður, en í Indlandi
þarf maður sérstakt leyfi í vegabréfið sé
ætlunin að koma aftur til landsins innan
tveggja mánaða frá síóustu heimsókn.
Þetta sérstaka leyfi þarf að fá staðfést
innan 14 daga ffá komu. Ég varð að fara
nokkrum sinnum á skrifstofu útlendinga-
eftirlitsins án þess að fá tilskilið leyfi
og eyddi í það fjórum eftirmiðdögum,
tveimur til þremur tímum í senn, fyrir
umferðir á mótinu og skapaði það mikið
og óþarfa álag. Þetta, ásamt veikindum
og ungum og efnilegum andstæðingum,
hafði slæm áhrif á taflmennskuna.
Veikindin þarfnast ekki frekari skýringa
en ég skildi Iljótlega hvað rússneskur
stórmeistari átti við þegar hann sagði:
„Maður þarf að byrja vel til að enda ekki í
drullunni.“
Á Indlandi er nefnilega mikill fjöldi ungra
skákmanna sem, innblásnir af Anand
heimsmeistara, stefna á atvinnumennsku.
Þeir hafa engu að tapa og æfa sig 9-10
tíma á dag og tefla eins og 2400 til 2500
stiga menn þrátt fyrir að hafa aðeins 2100
til 2200. Og í þessari heimsókn voru það
greinilega mín örlög að tefla við slík efni.
Ég stóð til vinnings í mörgum skákanna
en einhvern veginn var heppnin ekki
á mínu bandi að þessu sinni. Raunar
var ljóst að fleiri stórmeistarar áttu í
svipuðum erfiðleikum. Karma er mikil-
vægur hluti af hindúatrú og þýðir að allar
gjörðir okkar í fyrri lífum hafi áhrif á það
næsta.
Þegar maður ferðast til Indlands rekst
maður á hluti alls ólíka því sem við
eigum að venjast á Vesturlöndum.
Fátækt fólk sem á heima á götunni með
allar sínar eigur. Ég horfði á fjölskyldu
sem svaf á gangstéttinni. Börnin voru
Kl'S'T
LÖGMENN
Austurstræti 10a, Reykjavík
Sími:551 6412