Skák - 06.03.2012, Side 75
nakin og pissuðu bara þar sem þau
voru stödd þannig að þvagiö rann eftir
fótleggjunum. Einn daginn sá ég rottu
gæða sér á eigum og mat fjölskyldunnar.
í þessari ferð fór ég í alls kyns hliðar-
götur og sund þar sem allt var skítugt og
illa farið. Einn daginn sá ég ungan mann
sem leitaði að mat innan um rusl. Hann
var með plastdisk í hægri hendi sem á
voru gamlir uppþornaðir sósuafgangar.
Eg hugsaði með mér að þessum manni
þyrfti ég að gefa svolitla peninga en ein-
hvern veginn gekk ég bara áfram. Villtir
hundar, rottur og skorkvikindi voru
einnig í matarleit á þessum sama stað
eftir að skyggja tók. lndverjar fara bara
að hlæja að þeim vandamálum sem við
berum á borð og held ég að þessi ferð
hafi breytt mér. Með því að feróast er
hægt að vaxa sem manneskja og sjá hluti
í nýju ljósi.
Á Indlandi er sagt sem svo að hið slæma
sem fólk verði fyrir sé í raun gott þar sem
það sé þá að borga fyrir fyrri syndir. í lok
feróarinnar hitti ég konu í Nýju-Delhi
sem var á götunni. Hún sagðist þurfa
aó betla til að þrauka og eiga erfitt með
að sjá tilgang með lífinu. Það sem ég
kann vel við á Indlandi er hinn andlegi
hugsunarháttur. Fátækt fólk er afar
vinalegt og hógvært þó svo að það lifi á
götunni eins og dýr frá sjónarhóli Vestur-
landabúa. Vegna kreppunnar á íslandi
er erfitt að lifa venjubundnu lífi við að
sjá fyrir heimili og fjölskyldu. Mig grunar
að ég hafi lært að leita leiða til að leysa
vandamál og vera þakklátur fyrir það
sem mér hefur tekist að afreka í lífinu og
þau tækifæri sem mér hafa verið veitt í
gegnum skákina.
Hvítt: Henrik Danielsen
Svart: Himansku Sharma
l.RB
Fyrir skákina gat ég ekkert undirbúið
mig, en 2-3 tímar fóru í útlendingaeftir-
litið áður en skákin hófst. Himansku
Sharma hefur auga fyrir taktík en
einhverja veikleika er að finna í
stöðuskilningi hans. Mjög mikilvægt var
að vinna skákina því þar með yrði ég í
lykilstöðu fyrir síðustu umferð.
I...d5 2.g3 c5 3.Bg2 Rc6 4.0-0 e5 5.d3
Bd6 6.Rc3 Rge7 7.e4 d4 8.Rd5 Rxd5
9.exd5 Re7 lO.Hel f6 11.c4
dxc3? Mistök. Mikilvægt er að gefa ekki
eftir miðborðið.
12.bxc3 0-0 13.Rd2 b5 l4.Db3 Hb8
15.Re4 a5 I6.a4 b4 17.Be3 bxc3
18.Dxc3 Rxd5 19-Dc4 Be6 20.Rxd6
Rf4 21.gxf4 Að sjálfsögðu sá ég 21. Dxc5
Rxd3 22.Dc6 Rb4 en hins vegar sá ég ekki
23. Dc3 Dxd6 24.Bc5.
21.. .Bxc4 22.Rxc4 exf4 23.Bxf4 Hb4
24. Hadl h5 25.Bd6 Hxa4 26.Bc6
26. Bxf8 Kxf8 27.Bc6 Ha2 28.He8+ Dxe8
29. Bxe8 Kxe8 ætti að vinnast.
26.. .Hb4 27.Be7
27. Bxf8 Dc8 28,Bxc5 Dxc6 29.Bxb4 axb4
30. Hbl vinnur.
27.. .Dc8 28.Bd5+ Kh7 29.Be6 Da8
30.BÍ5+ g6 31.Be4 Dc8 32.Rd6 Dg4+
33.Bg2 Hbb8 34.Bxf8 Hxf8 35.Hbl
h4 36.He4 Dg5 37.f4 Dg4 38.h3 Dg3
39-He7+ Kh6 40.Hfl Dxd3 41.RB+
Hxf7 42.Hxf7 c4 43.Khl f5 44.Hc7 c3
45.HÍ3 Ddl+ 46.Kh2 c2 47.Hfc3 Del
48.H7c4 a4 49-Hxc2 Dg3+ Ég helcl að
endataflið sé jafntefli en stöðuna er erfitt
að tefla í tímahraki.
50.Kgl Del+ 51.Bfl De3+ 52.HÍ2
Db3 53.Hc6 a3 54.Ha6 De3 55.Ha8
Kg7 56.Bg2 Kf6 57.Ha6+ Kg7 58.Bfl
Kh6 59-Hc6 Kg7 60.Hcc2 Kf6 6l.Bg2
Kg7 62.Khl Db3 63.Bfl Kh6 64.Hcd2
De3 65.Kgl Dg3+ 66.Bg2 De3
67.Hde2 Dd3 68.Khl Ddl+ 69-Kh2
Dd3 70.Hd2 De3 71.Hc2 Dg3 +
72.Khl Db3 73-Bfl De3 74.Hce2 Dg3
75.Bg2 De3 76.Ha2 Db3 77.Kgl De3
78.Bfl Dg3+ 79-Khl De3 80.Had2
Dg3 81.Hde2 Dc3 82.Kgl Dg3 +
83.Khl Dc3 84.Bg2 Dd3 85.BÍ3 Dc4
86.Bg2 Dd3 87.Kgl Ddl+ 88.Kh2
Dd3 89.Bfl Dg3+ 90.Khl Dc3
Augljóslega hefði ég getað teflt þessa skák
betur - en vegabréfsvandamál, veikindi og
hæfileikaríkir ungir skákmenn eru erfið
blanda. 1/2-1/2
Guðmundur Kjartansson
Síðasta ár gekk ekkert sérstaklega vel
hjá mér í skákinni, ekki frekar en árið á
undan. Ég átti þó einstaka góðar skákir
og það var ágætt að vinna Haustmótið í
október. En svo átti ég fínt mót í Hastings
um claginn; þó að ég hafi verið langt
frá því að tefla fullkomlega fann ég fyrir
meira sjálfstrausti og fannst ég vera
einbeittari en oft áður. Líklega hefur
það haft eitthvað með nýlega ákvörðun
mína að gera, en eftir þetta misseri í
verkfræðinni tók ég þá ákvörðun að
hætta eða að minnsta kosti taka mér
pásu frá háskólanum til að einbeita mér
að skákinni. Sumir virðast komast upp
með að sameina nám og skák (eða aðrar
íþróttir) en ég helcl að ég hafi tekið rétta
ákvörðun, þar sem þetta var búið að
liggja í loftinu í smátíma. Ég ætla því að
nota tímann núna til að tefla og stúdera,
og vonandi get ég ferðast eitthvað á
þessu ári. Næsta markmið mitt er líklega
að verða stórmeistari og væri fínt að ná
því innan tveggja ára þó aó ég sé fyrst og
fremst að hugsa um að bæta mig jafnt og
þétt. Annað markmið gæti líka verið að
vera valinn í ólympíuliðið á þessu ári, þó
að það sé ekki forgangsatriði. Allavega
var ég nokkuö sáttur með taflmennskuna
úti í Hastings. Sérstaklega síðustu þrjár
skákirnar, líka síðustu skákina þó að ég
hafi tapað henni að lokum. Hér er skákin
á móti Hebden:
75