Skák - 06.03.2012, Side 78
Um skáklistina og
Friðrik okkar Ólafsson
í tilefni skákdagsins 26.01 2012
Enginn íslendingur fyrr eða síðar
hefur staðið jafn lengi á tindi
frægóarinnar og Friðrik Ólafsson
stórmeistari. Þegar ég var lítill drengur
heima á Brúnastöðum man ég fyrst eftir
umræðunni um hann. Þjóðin stóð á
öndinni og heimsbyggðin tók að tala um
þennan unga mann sem einn efnilegasta
skákmann veraldar. Og við bræðurnir
tókum að tefla og mikill áhugi reis fyrir
skákinni á fslandi. Þegar Friðrik Ólafsson
tefldi í janúar 1956 í Ffastings á Englandi
á stórmeistaramóti má segja að hann hafi
náð því sem stundum er nefnt „gegnum-
brot“. Hinn ungi maður kom, sá og
sigraði.
Skákin er oft tengd kænsku í pólitík
og stórorrustu. Margir hafa minnst á
sigurvegarana tvo sem unnu sína stærstu
sigra í Hastings - að vísu með fast að
þúsund ára millibili - þá Friðrik Ólafs-
son og Vilhjálm 1. Englandskonung sem
nefndur var bastarður eða sigurvegari.
Hann kom með her sinn til Hastings frá
Normandí og lagði undir sig England.
Vilhjálmur var skákmaður og hefur því
kunnað þá rökhugsun sem skákinni
fylgir og að stilla upp í hernaði og beita
sínum hermönnum til sóknar. Hann kom
með skákina með sér frá Normandí til
Hastings og skákin er talin hafa borist
til Islands ekki síst frá Englandi með
Skálholtsmönnum, þeim Þorláki og Páli
sem báðir urðu biskupar. Því er ekki að
undra að Guðmundur G. Þórarinsson
telji taflmennina sem fundust í Lewis vera
frá Skálholti, geróa af listakonunni Mar-
gréti högu. Friðrik hafói að vísu getið sér
orð nokkrum árum fyrr þegar hann varð
Islandsmeistari 1952, fyrir sextíu árum.
Hann varð svo Norðurlandameistari og
stórmeistari nokkru síðar. Svo gleymir
enginn því þegar þeir Bent Larsen og
Friðrik mættust, þá reis þjóðernisbylgja
svipuð því sem gerist þegar strákarnir í
handboltanum standa sig best. Friðrik
er einn af meisturum skáklistarinnar
og það er alltaf jafn gaman að fylgjast
með þessum prúða og hógværa manni
við taflborðið. Stíllinn stórbrotinn - allt
í einu breytist rólegur sólskinsdagur á
skákborðinu í eldgos eða stórorrustu.
Ahorfendur fylltust ákafa og spurðu:
Hvert er Friðrik nú að fara? - en leik-
fléttan var aldrei langt undan. Hann fyllir
enn áhorfendastúkurnar eins og segul-
stál, hinn síungi öldungur.
Eg minntist á pólitík, en Friðrik hefur
haft meiri áhrif á sögu Islands en margur
áttar sig á. Hann setti Island á kortið
meðal þjóðanna með framgöngu sinni
og fullyrða má að einvígi aldarinnar
sem fram fór í Reykjavík 1972 hafi verið
valinn staður hér af því að Island var virt
meðal stórveldanna og skákþjóðanna. Þar
tókust stórveldin, rússneski björninn og
bandaríska tígrisdýrið, á og einvígið hafði
pólitísk áhrif milli austurs og vesturs.
Bobby Fischer og Boris Spassky voru
stríðsmenn stórveldanna í mögnuðustu
pólitík og uppgjöri á skákborðinu milli
risanna tveggja. Arið 1978 varð Friðrik
forseti FIDE og leiðtogi skákmanna á
veraldarvísu.
I.eiða má að því ltkur að einvígið og
frægð Friðriks og drengskaparorð sem
af íslendingum fór hafi átt þátt í því að
stórveldin áttu með sér annan fund á
Islandi. Þaó var þegar þeir Ronalcl Reagan
og Mikhaíl Gorbatsjov héldu fundinn
í Höfða árið 1986 - frægasta og mikil-
vægasta fund heimsins. Þær sömu þjóðir
og áttu snillingana í einvígi aldarinnar.
Stærsti alþjóðlegi viðburður síðustu
aldar sem setti Island í sviðsljós frióar og
afvopnunar.
Þegar Bobby Fischer var frelsaöur úr
herfjötrum ofsóknar valdi hann að gerast
Islendingur, ekki síst vegna þess að
skáklistin blómstraði á þessari litlu eyju.
Skákir hans veróa teflclar eftir þúsund ár
og hér liggur meistarinn í mjúkri mold
Guðni Ágústsson
fostur-
jarðarinnar okkar.
Enn höldum við hátíð, komum saman
skákmenn. Nú á Skákdeginum sem er
afmælisdagur Frióriks Olafssonar, hinn
26. janúar. Hátíð allra um allt land,
stúlkur og drengir standa þennan dag
í mínum sporum eins og forðum og
heillast af skákinni - gera hana að vini
og lífsfélaga. Sá sem gerir skákina að leik
í lífi sínu er aldrei einn. Fátt tengir kyn-
slóðirnar betur saman en skákin. Stelpur
og strákar tefla, ungir og aldnir gleðjast
yfir skák.
Kæri Friðrik, sem Islendingur þakka ég
þér, þú ert hin hugprúóa hetja sem hefur
gefið þjóð sinni mikið. Okkur öllum sem
gerðum skáklistina að okkar ævintýri
ert þú fyrirmyndin, sá sanni sem enn
bregður töfrasprota þínum og sveipar
ljóma og dulúð allt sem fyrir verður.
Nú drögum við fram skákborðið þér til
heiðurs - á vinnustöðum, í mötuneytum,
vinnustofum, fjósinu eða fjárhúsinu, í
stofunni heima, í skólum og sundlaugum
um allt land. Þú hefur haft meiri áhrif á
eina íþrótt en menn gera sér grein fyrir.
Hafðu heila þökk, við dáum keppnislund
þína og elju.
Guðni Ágústsson,
fyrrverandi alþingismaður og ráðherra,
félagi í Taflfélaginu Mátum.