Skák - 06.03.2012, Blaðsíða 81
Greinarhöfundur innanum glaðbeitta Grímseyinga.
Árið 2008 gaf Kristín Bragadóttir út
ævisöguna Willard Fiske - vinur íslands
og velgjörðarmaður. Ahugasamir ættu
að lesa þá forvitnilegu bók sem geymir
heillandi sögu af einstökum manni í sögu
Islands.
Skákdeginum fagnað í Grímsey
Skákdeginum var fagnaó í Grímsey,
skákeyjunni sögufrægu á heimskauts-
baug. Dagurinn var lagóur undir skák
í grunnskólanum, en þar eru þrettán
börn við nám. Um kvöldið var svo efnt
til fjölteflis þar sem leikgleðin var alls-
ráóandi. Framvegis verður líka hægt
að tefla í Grímseyjarferjunni Sæfara
og sundlauginni í Grímsey, sem fengu
taflsett að gjöf í tilefni dagsins.
Það voru forréttindi að heimsækja
Grímseyinga á þessum merkisdegi,
enda skipar Grímsey merkan sess, jafnt
í skáksögunni sem íslensku samfélagi
nútímans. Þar búa nú rnilli 60 og 70
manns. Sjávarútvegur er undirstaða
byggðarinnar og eru Grímseyingar að
fornu og nýju þekktir sjósóknarar.
Willard Fiske hinn mikli velgjörðarmaður
íslendinga fékk sérstakan áhuga á
Grímsey, þegar honurn barst til eyrna að
þar væru annálaðir skákmeistarar. Fiske
sendi forláta taflsett á hvert heimili í
Grímsey og lét mörgum öðrum gjöfum
rigna yfir eyjarskeggja. Fæðingardagur
Willards Fiske, 11. nóvember, er
þjóðhátíóardagur Grímseyinga sern
jafnan fagna deginum með veislu og
viðhöfn.
Á Skákdaginn 2012 iðaði grunnskólinn
af skáklífi. Áhuginn var ósvikinn hjá
krökkunum, sem sýndu góða takta
eftir nokkrar kennslustundir. Það var
teflt af hjartans lyst og auk þess efnt til
skákmyndakeppni. Um kvöldið var svo
fjöltefli þar sem meðal annars var notað
marmaraborð sem Willard Fiske sendi
Grímseyingum.
Við upphaf fjölteflisins var rifjað upp
helgarskákmót sem Jóhann Þórir
Jónsson, sá mikli skákfrömuður, hélt í
Grímsey sumarið 1981. Þar sigraði Friðrik
Ólafsson, en hann var þá forseti FIDE,
alþjóðaskáksambandsins. Meðal annarra
keppenda voru Helgi Ólafsson, Jón L.
Arnason, Jóhann Hjartarson, Guðmundur
Sigurjónsson og Ásmundur Ásgeirsson -
sannarlega stórmót!
Við upphaf fjölteflisins.
Rúmlega tuttugu keppendur voru í
fjölteflinu, auk áhorfenda á öllum aldri.
Bræla var á mióum, og hinir harðsnúnu
sjómenn mættu galvaskir til leiks. í
hópnum voru rnargir sleipir skákmenn
og rnikill áhugi á að koma á reglulegum
skákæfingum.
Ég mæli með heimsókn til Grímseyjar:
Þar eru heimkynni gestrisninnar og nátt-
úrunni verður varla með orðum lýst. Það
er upplifun að heimsækja útvörð Islands
í norðrinu. Og sem fyrr sagði: Nú er hægt
að tefla í heita pottinum í Grímsey!