Skák


Skák - 06.03.2012, Side 89

Skák - 06.03.2012, Side 89
Miklimeir Félagarnir litu hvor á annan. Beint framundan var þessi svarti kassi. Ferkantaður skagaði hann uppúr gráhvítunni eins og lágreistur turn á fljótandi skákborði. Undirlagið dúaði við minnstu hreyhngu svo jafnvægis- skynið fékk í magann. Dulúðin dró þá nær og þegar einungis ein reitaröð var eftir gerðist nokkuð óvænt. Harðlæst lokið þeyttist af kassanum og út spruttu vírar og bönd sem vöðluðust í hnykil uns vera nokkur tók á sig mynd. Hátt íyrir ofan sveiflaðist fyrirbærið fram og aftur eins og öfugur pendúll og horfói með undir- skálaaugum niður á þá félaga. Bros af breióara taginu svo glitti í skínandi tanngarð. Takk fyrir að frelsa mig, söng veran skrækum en auðmjúkum rómi. Það var svo leiðinlegt inni í kassanum, svo þröngt og einmanalegt, en nú er ég frjáls og nú verður gaman! En hver ert þú? spurðu félagarnir. Ég er Miklimeir, svaraði svarta veran og fórnaði höndum í gleði sinni upp í loft. í sama mund bergmálaði rýmið snöggum grænum litum og uppúr höfði verunnar spruttu sprotar sem sam- einuðust langt ofar í öðrum undrakassa. Hvílíkir loftfimleikar! Fyrr en varði tóku rætur að teygja sig út í loftið í allar áttir og laufkrónur spruttu eins og kanínur úr hatti allt í kring. Undrarækt Miklameirs hélt áfram að flétta og þyrla gróðurflókum og furðuverum út í rýmið þar til sköpunin kórónaðist í því fegursta blómi sem gestirnir höfóu augum litið. Púff, púff. Ha ha, hló Miklimeir hátt og snjallt, höfum það miklu meira! Og með snöggri handasveiflu meistarans voru félagarnir komnir á flug. Þeir vissu ekki hvernig en á sama tíma og þeim fannst þeir svífa langt ofár þessari furðuveröld Miklameirs, voru þeir staddir í dýpstu gróðurrótum hennar og fremstu brumhnöppum. Það var eins og tillífunin sjálf væri sest að í augntóttum þeirra og hraó- teiknaði óorðna hluti í vitund þeirra. Og í þessum hápunkti galdursins þegar allt er mögulegt og sköpunarverkið andar í fullkominni harmóníu gerðist nokkuð alveg á skjön við það sem vænta mátti. Miklimeir skrapp saman með hvini og kveinstöfum og sogaðist af fullum krafti ásamt öllu sínu hafurtaski niður í hyldýpi svarta kassans sem skelltist aftur meó háværum hvelli. Búmm. Við skellinn lentu þeir félagar í sjálfum sér á fyrstu reitaröð þar sem dúandi undirlagið tók við þyngd þeirra aftur. Beint fyrir framan þá var hann uppvakinn - kassinn svarti. En Miklimeir var horfinn. Allt var eins og áður. Og þó - félagarnir vissu ekki hvort það var tíbrá eða töfrar en það var núna eins og ára kassans púlsaði grænum hjartaslögum í takt við þeirra. Dúnk, dúnk Katrín Ólína - www.katrin-olina.com

x

Skák

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.