Skák - 06.03.2012, Page 91
Héðinn Steingrímsson, íslands-
meistarinn í skák sem var meðal sigur-
vegara árið 2009, Henrik Danielsen,
Stefán Kristjánsson og Hjörvar Steinn
Grétarsson ná svo vonandi einnig að
blanda sér í baráttuna áhugamönnum til
ánægju.
Unga kynslóðin fjöimennir í Hörpu og
er það vel. Það er frábært fyrir þessa
ungu lu-akka að fá tækifæri til að tefla á
Reykjavíkurskákmóti. Og ekki má gleyma
hinum almenna skákáhugamanni. Meðal
keppenda eru læknar, prentarar og
kennarar - venjulegt fólk - með brenn-
andi ástríðu fyrir hinum konunglega leik!
Styrktaraðilar mótsins fá miklar þakkir.
Án þeirra væri ekkert mót. Það er
ekki á neinn hallað, þegar ég nefni
Reykjavíkurborg sérstaklega, en borgin
styrkir mótshaldið mjög myndarlega
ásamt Nl.
Reykjavíkurmótið er algjör lykilvið-
burður í íslensku skáklífi. Sameinar
afreksskák, unglingaskák og allt þar á
milli. Ég vil skora á skákmenn og skák-
áhugamenn að fjölmenna á mótsstað
og njóta snilldarinnar á hvítum reitum
og svörtum. Komið og verðið vitni að
töktum og töfrum - finnið hvernig hinn
leyndi skákstrengur sem býr hið innra fær
brotist fram í samhljómi Hörpunnar.
Sjálfur ætla ég að njóta þess að fylgjast
með sögulegu móti í ár en stefni
ótrauður á þátttöku síðar á þessari öld.
Með skákkveðju,
Gunnar Björnsson,
formaður mótsstjórnar Reykjavíkur-
skákmótsins
Starfsmenn N1 Reykjavik Open 2012
Mótsstjórn: Gunnar Björnsson (for-
maður), Andrea Margrét Gunnarsdóttir,
Björn Þorfinnsson, Halldór Grétar
Einarsson, Helgi Arnason, Hrafn Jökuls-
son, Jón Þorvaldsson, Omar Salama,
Óskar Long Einarsson, Róbert I.agcrman
og Stefán Bergsson.
Skákstjórar: Ríkharður Sveinsson
(yfirdómari), Ólafur S. Ásgrímsson
(dómari), Páll Sigurðsson (dómari), Andri
Hrólfsson, Haraldur Baldursson, Helgi
Árnason, Kristján Örn Elíasson og Rúnar
Berg.
Pörun: Páll Sigurðsson.
Beinar útsendingar og önnur
tæknimál: Halldór Grétar Einarsson
(tæknistjóri), Björn ívar Karlsson, Omar
Salama og Páll Sigurðsson.
Verkstjórn sérviðburða: Stefán
Bergsson.
Skákskýrendur: Friðrik Ólafsson, Helgi
Ólafsson, Jóhann Hjartarson, Jón L.
Árnason o.fl.
Pallborð: Simon Williams, Macauley
Peterson, Björn Þorfinnsson, Gunnar
Björnsson og Ingvar Þór Jóhannesson.
Blaðafulltrúar: Hrafn Jökulsson, Gunnar
Björnsson ogjón Gunnar Jónsson.
Ljósmyndari mótsins: Hrafn Jökulsson.
Framkvæmdastjóri Skáksambands Is-
lands: Ásdís Bragadóttir
Nánar um hliðarviðburði: www.chess.is
og www.skak.is.