Freyja - 01.11.1905, Síða 5
VIII. 4.
FREYJA
77
Ao hringmáli er leikhúsiö 1600 fet, aö ofan er þaö 555 fet
á lengd, 443 á breidd og samsvarar þessi stœrö aö ofan allri um-
ferð þess að neðan, að meðtöldum klefum, sölum, göngum og þ. h.
þó leiksviöiö sjálft, hið svo nefnda arena sé ekki nema 243 á lengd
og 143 á breidd.
Upp af leiksviðinuog umhverfis þaö eru 52 marmarasœti hrert
upp af öðru. Flest með sömu merkjum eins Og þau voru fyrir
1600 árum síöan, nokkur hafa þó verið endurbœtt á seinustu árum.
Hvert sæti er bér um bil eitt fet og sjö þumlungar á hœð en tvö
fet og fjórir þumlungar á breidd, úr gráleitum marmara nokkuð
fíngerðari en byggingin er sjálf gjörð úr. Líklegt er að sætin hrafi
einhverntíma fóðruð veriö. Þau eru svo löng að í þeim geta setið
25,000 manns, auk þess er stöðurúm fyrir 70,000 manns. Stærsta
leikhús Chicago borgar verður smávaxið í samanburði við þetta,
svo stórt sem það þó er.
Til beggja enda leiksviðsins nálægt neðstu sætunum eru svalir
reistar á marmarasúlum og umkringdar pílárum sem einnig eru úr
marmara. A öðrum þessum palli sátu keisararnir með skylduliði
þeirra en á hinum senatorarnir, [þingmennirnir]. Veggirnir um-
hverfis þessa stórkostlegu byggingu eru afar þykkir og ramgjörfir,
sem sýnir sig bezt á því að þeir hafa þilað tönn tímans í ióoo ár
Og eru líklegir til að endast enn þá nokkrar aldir.
A einum stað stendur enn þá hluti af framstafninum og er
hann 117 feta hár. Efri hlutinn samanstendur af afar stórum,
sundurlausum marmaratíglum,sem allt lím er fyrir löngu fariö úr og
er því all hættulegur orðinn, jafnvel þó bœjarbúar vilji enn ekki
kannast við þaö.
Þess var áður. getið að leikhúsið vœri að ofan 555 fet á annan
kantinn en 443 á hinn, en leiksviöið sjálft ekki nema 243 á ann-
an kantinn en 143 á hinn. Þrátt fyrir þenna mismun er hringmál
leikhússins jafnstórt ofan og neðan. En á milli veggsins í kring-
um leiksviðið og yzta veggs byggingarinnar er breitt bil, allt hólfað
í sundur í stóra og smáa klefa, göng og stiga af ýmsum stœrðum,
aðskildir með rammgjörfum veggjum ýmist úr marmara eða öðru
grjóti límdu saman með steinlími. Klefar þessir voru hafðir fyrir