Freyja - 01.11.1905, Blaðsíða 20
92
FREYJA
Jóluósk.
VIII. 4.
Ef ég gœti gjört allt sem ég vildi fyrir jólin myndi það veröa
þetta: Ég myndi láta alla konunga og keisara leggja niður völdin
og lofa fólkinu aö stjórna sér sjálft. Ég myndi láta aöalsfólki'ð
kasta titlunum og gefa fólkinu aftur landiö í hendur. Ég myndi
láta páfann kasta af sér páfaskykkjunni og páfa kórónunni og játa
það, aö hann væri hvorki fulltrúi guös á jöröunni né sœti í hans
sceti, aö hann voeri ekki óskeikull, heldur vœri hann maöur eins og
aörir ítalir. Ég myndi láta alla kardinála, erkibyskupa, byskupa,
prófasta og presta viðurkenna aö þeir þekktu enga guðfrœði, vissu
ekkert um himnaríki né helvíti, ekkert um vofur, engla né djöíia,
og ekkert um endalok mannkynsjns. Ég myndi láta þá segja
,,sauðum“ sínum aö hugsa sjálfum og hvetja þá til að verða menn
og konur í orðsins réttu merkingu og gjöra allt sem í þeirra valdi
stæöi til aö auka gleði og farsæld mannanna.
Ég myndi láta alla háskóla prófessora og aðra kennara að
sunnudagaskólakennurum meðtöldum undirgangast það, að kenna
eingöngu það sem þeir sjálfir vissu, en hætta að kenna getgátur
og ó'fökstudd sannindi. . \
Ég myndi gjöra alla stjórnmálamenn að þjóðarvinum, að
mönnum, sem vildu gjöra land sitt og þjóð frjálsa og farsæla, að
inönnum, sem hugsa meira um almennings velferð en eigin hags-
muni, mönnum, sem vildu verða landi og lýö til blessunar.
Ég myndi vilja láta alla ritstjóra skuldbinda sig til að skrifa
um sannleikann og ekkert nema sannleikann, forðast illmœli en
láta fólk og einstaklinga í friði.
Ég myndi vilja afnema ofdrykkju og yínsölubann jöfnum
höndum.
Ég myndi vilja afnema dauðadóminn og alla líkamlega hegn-
ingu, því grimmd og harðneskja spilla bœði þeim sem hegna^ og
þeim sem fyrir hegningunni veiða, en hjartagæzka og mannúð
göfga og bœta hvorttveggja.
Ég myndi láta auðmennina (miljónerana) mynda félög al-
menningi til gagns og blessunar.