Freyja - 01.11.1905, Page 18
90
FREYJA
VIII. 4.
hvað Rússakeisari hefði sagt í iians sporuni. En þrátt fyrír þ ið er ná
gleðilegt að heyra hve hlýlega hann nú hugsar til Japa, sem sýnir sig &
þessum orðum hans: —
„----Rússar og Japar eru aftur orðnir vinir, og það er vor hjart-
ans ósk að þeir verði góðir nágrannar.“
Og enn fremur:—
„----Álvísum guði hefir þóknast að reyna þjóð vora með þraut-
um og þrengingum í langvarandi stríði við voldugan 0g hugrakkan ó-
vin, en það hefir einnig sannfært oss um hina ódauðlegu frœgð og
þrautseigju hermanna vorra. “
Hvergi er þess getið að /apar skelli hernaðarskuldinni á guði sfna,
þeir bera ábyrðina sjálfir.
RTJSSNESKÁR SKRÍPAMYNDIR.
Rússneskar skrípamyndir málaðar á póstspjöld eða prívat spjöld
eru oft bæði vel gjörðar og þýðingarmiklar, ekki síður en átakanlegar
og naprar. Meðal slíkra mynda var ein gjörð af blóðbaðinu í St.
Pétursborg í janúar, sem sýnir stjórnina eins og hóp af svínum að velta
sér í og fylia sig á blóði því er þá var úthellt, En þegar blóðið er melt
komið á sinneðlilega stað, kalla þeir það „Douma“ eða þjóðþingið og
kasta þannig ábyrgð grimmdarverka sinna yfir á þjóðina sjálfa.
í Moscow eru það oftast myndir af einstaklingum í hárri stöðu, Sýnir
ein af þeim myndum gen. Trepoff að setjast í hásæti og setja á sig rík-
iskórónuna rússnesku. Önnur sýnir Nicow byskup eins og nútíðar
Pétur eða einsetumann ríðandi á ösnu sem í stað vanalegs ösnuhöfuðs,
hefir höfuð hr. Gringmuth, Enn þá er mynd af ofur litlum skóla-dreng,
sökuðum um að hafa ráðist á risavaxin lögregluþjón—svo risavaxin, að
liann hefði hæglega getað stungið drengnum í vasa sinn, Átakanleg-
ust af öllum þessum myndum er þó mynd af konu nokkuri sem stendur
álengdar og bendir á Sophiu Perovski í gálgannm, sem hengd var I.
júní s. 1. Yfir höf'uðið á Sophiu er dreginn sekkur en konan sem úlengd-
ar stendur og bendir á líkiðsegir:—
„Ef kyn vort stendur oss ekki fyrir galganum —gjöriross ekki ó-
hæfar til að hanga, hví skyldi það þá standa oss fyrir borgaralegum
réttindum?“
Ó, þör menn og konur/ Hversu lengi þurfum vér að hrópa! hve
lengi að rökræða um réttindi kvenna? Hve lengi á blóð allra saklausra
kvenna, sem líflátrar hafa \erið, að lnópa yflr yður hefnd, HEFND!