Freyja - 01.11.1905, Blaðsíða 19
VIII. 4-
FREYJA
9i
áðar en Jpér vaknið? Þér, Menn, sem ekki gátuð haft á samvizkura
yðar ánauð svertingjanna, hversu lengi ætlið þör að halda inum hvítu
systrum yðar í ánauð og daema þær óheyrðai?
Enginn karlmaður er kallaður fulltíða maður innan 21 árs. En dæ t-
ur yðar hengið þér 19 ára, Karlmenn meiga ekki giftast innan 21 árs.
En dætur yðar giftið þér 16 ára, Óþroskaðar á sál og líkama —á þeim
aldri sem synir yðar eru kallaðir börn, eiga þær að taka á sig þá á-
byrgð, sem móður ogeiginkonustöðu er sainfara. Þær, konurnar, sem
álitnar eru tápminni andlega og líkamlega og aldrei hafa notið borgara-
legra eða fuilra persónulegra mannréttinda eiga svo a.ð bera fulla á-
byrgð gagnvart fulltíða mönnum og fordómafullu mannfélagi, jafnt
hvort sem þær eru börn að aldri.eða andlegir krypplingar vegna þess að
þeim var aldrei gefið tækifæri tii að þroska eigin vilja sinn ogstjórnast
af honum , og líða svo fullkomna hegningu fyrir sérhvert brot.
Flýtið yður að gifta dætur yðar ungar, og ef þær svo lenda í óham-
ingjusömu hjónabandi og kvarta undan því, þá sendið þær heim aftur
undir hina leiðréttandi hönd eiginmannsins, hvort sem hún heldur á
svipunni, vendinumeða hefir spenntann rottuboga* í vasanum, en dugi
það ekki má senda hana til réttvísinnar og þaðan í gálgann.
Hve langur og styrkur er verndararmur laganna og réttvísinnar
yfir fáráðs kvenfólkinu!
*í síðasta Yínlandi er sagt frá manni, sem lét spenntann rottuboga
í vasa sinn til að venja konuna sína af þeim óvanda að leitaí vösum sín-
um og þegar konan með blóðuga og marða höndina kvartaði fyrir rétt-
vísinni, úrskurðaði dómarinn að maðurinn hefði löglegan rétt til að
hafa spenntan boga í vasanum. Af því skíftir sér enginn þó sumir
eiginmenn svelti konu og börn, svo að konan,sem aldreiá neitt, neið-
ist fvrir þá sök til að leita í vösum mannsins síns. En fyrir því hefir
hann lagalegan rétt til að vernda sig. Það liggurþó í augum uppi
að það eru einungis þess konar menn, sem líklegir væru til að liegna
konunni sinni á þenna hátt.
Margir og órannsakanlegir eru vegir mannanna til að rækta hjú-
skapar kærleikanr!