Freyja - 01.11.1905, Síða 23
VIII. 4.
FREYJA
95
vanaleg. En þegar ég endurtók spurninguna sagöi hannkjökrandi:
,, Af því a8 þeir gleymdu mér báðirog jólin komu ekki til okk-
ar mömmu. “
,,Hverjir hafa gleymt þér, barn?“ spurði ég.
,,Hann Guð og hann Sankti Kláus, “ sagöi hann.
,,Guð og Kláusgleyma engum, og jólin koma alstaðar, barnið
mitt, “ sagði ég og horfði í bláu augun, sem tárin enn þá glönsuðu
í. Jólagjafirnar mínar íþetta sinn voru ofurlítill vasaklútur ogofur-
lítill sokkur með nokkrum brjóstsykurmolum,hljóðpípu, tinhesti og
hjólbörum í. Þetta hafði húsmóðir mín gefið mér rétt áður en hún
fór út og ég hélt á því enn þá, enda kom það nú að góðum notum.
,,Sjáðu nú til, “ sagði ég og sýndi honum sokkinn. ,,Þetta gaf
hann Kláus mér og sagði mér að skifta því á milii mín og fyrsta
drengsins sem ég hitti því hann hefði ekki getað heimsókt hann í
þetta sinn. Þú ert fyrsti drengurinn setn ég hitti og þess vegna
áttu það með mér og nú skulum við skifta því. “ Hann horfði á
mig efablöndnum augum og sagði: ,,Nei, er það virkilega satt?“
,, Já, víst er það satt, “ sagði ég og skifti þannig gjöfunum að þœr
fóru allar til hans, en eftir því tók hann ekki, hann var orðinn svo
kátur og skrafhreifinn þó hann skylfi af kulda. Svo fylgdi ég hon'-
um heim til móður hans, sem var orðin ósköp hrædd um hann, en
því hafði hún ekki leitað hans, að hún lá fárveik í rúminu í tauga-
veiki. Hún var bláfátæk ekkja, sem engan átti að, húsið, lítið og
kalt var eldiviðarlaust og bjargarlaust og enginn til að hlynna að
sjúklingnum eða barninu^ Og í sannleika höfðu jólin gengið fram
hjá þessu litla hreysi. Eg hlynntí að sjúklingnum þaðsem éggat
og kom drengnum í rúmið, ánœgðum yfir sinni litlu hluttöku í jól-
unum. Að því búnu fór ég heim og sagði húsbændum mínum frá
ástandinu og varð það til þess að þeim var rœkilega hjálpað ogég
varð þar daglegur gestur eftir það.
Margar gjafir hefi ég gefið fyr og síðar, en engar smœrri, og þó
er ég viss um að engar þeirra hafa glatt móttakanda eins innilega
og þessi.
Þannig lauk Helga sögu sinni. Hún sýnir meðal annars, að
það er ekki eingöngu verðmæti gjafanna, heldur miklu fremur
hjartalagið, sem þær eru sprottnar frá, sem hefir hið verulega
gildi. Gleymið því aldrei, börnin mín. Svo óskar yður öllum sann-
farsælla jóla, yðar einlæg, Amma.