Freyja - 01.07.1906, Blaðsíða 4
2 76 FREYJA VIII. 12.
raun var og gjörð á öðru barnahœli í borginni Rochester með lík-
um árangri.
Mér dettur ekki í hug að halda þv( fram að öll þessi börn deyi
beinlí'nis úr hor eða af sulti. Það eru líklega fá börn sem þannig
deyja, eða sveita í hel, jafnvel þó það sé víst, að hópar af börnum
smakki ekki mat einn eða fleiri daga i senn, og hafa tímum saman
bæði íítið og lélegt fæði. Orsök barnadauðans liggur í þrí.að foreldr-
arnir geta hvorki haft heilnæmt fœði handa börnunum né nært þau
nógu reglulega. Afleiðingin er sú, að líkamsbyggingin veiklast
og verður með tímanum rnóttœkileg fyrir alla sjúkdóma. Til
dæmis er beinkröm sjúkdómur, sem sérstaklega ásœkir börn fá-
tœklinganna. Af mislingum deyja sjaldan börn efnaða fólksins,
en þó leggja þeir börn fátæklinganna þúsundum saman í gröfina.
Þetta kemur til af því, að þeir efnuðu hafa ráð á góðum húsakynn-
um, heilnœmri fæðu og góðri aðhlynningu, sem börn fátælding-
anna í stóru margbýlunum verða að fara á mis við. Krampi er
vágestur sem ótítt heimsækir ríka fólkið, en er dauðlegur óvinur
fátœklinganna, og sama gildir um ótal aðra sjúkdóina. Spurðu
lœknana sem útbýta gsfins meðölum ti! fátœklinganna hvort ekki
sé rétt frá sagt. Spurðu hospitals læknana og rannsakaðu sjálfur
skýrslur þeirra og að því búnu muntu sannfærast um að helming-
urinn að minnsta kosti af öllum börnum sem deyr, deyr af óhollri
og ónógri fœðu.
Þér vitið að ríka fólkinu tekst undra velað loka augunum
fyrir sannleikanum f þessu efni. Það kaupir að vísu litmyndir af
blaðadrengjum og heimilislausum götudrengjum, sem æfinlega eru
eftir góða málara, er hafa einstakt lag á að láta þá sýnast glaðlega
og ánægjulega, þó þeir séu tötrum klœddir með tóman maga og
eigi hvergi hcfði sínu hæli. Þessar myndir hengirríka fóikiö svo í
stáss stofurnar sínar og heldur sig svo hafa komist í náinn kunn-
ingskap við örbirgðina og þekkja hana út í yztu æsar. En á með-
an stendur önnur mynd, voðaleg í sínum virkileika, laus við alla
töfraliti málarans rétt fyrir augunum á því daglega. Stundum eru
það holdgrannar, fölleitar og tötralega búnar stúlkur, 12 til 14 ára
gamlar, stundum líka yngri, með ungbörn eða máske stálpuð börn