Freyja - 01.07.1906, Page 8

Freyja - 01.07.1906, Page 8
280 FREYJA VIII. 12. Hvaö er döggin sem í lofti svífur sólarbjarmans vafin geisla hjúpi? Er hún tár, sem hulinn kraftur hrífur hjarta frá, í leyndu jarðardjúpi, sem að grætur löngu liðna tíma? Mér und fótum foss í gljúfri dunar, frelsis ljóðin kveður ár og daga, aldrei þreytist, áfram sífelt brunar, ómar harpan: ,,Frelsi geymir Saga, sem í fjötrum þungum þreyði lengi. “ Daggarúðinn upp frá djúpi svífur, yfir kletta liðast bylgjan tæra, þar sem bergsnös stríðan strauminn klýfur, stráir geislum röðulljósið skæra regnbogans með gullnu geisla skrauti. Dvergamál frá dimmum hamrasölurn duna myrk, er strengir fossins hljóma. Stynji björgin straumi fyrir svölum stuna þung frá djúpu gljúfri ómar, sem að fyllir brjóstið angur-blíöu. Straumadísin hörpu hljóma lcetur hjartans innstu strengir svo að titra, ýmist hlær hún eða sáran grœtur angurblíð svo tár á hvörmum glitra. Ejóð hún kveður landsins okkar kæra! þorst. Finnbogason.

x

Freyja

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.