Freyja - 01.09.1909, Blaðsíða 22

Freyja - 01.09.1909, Blaðsíða 22
46 FREYJA XII. 2 -3. ,,Nei, aldrei,“ sagði Róma og sló myndina rokna högg meö meitlinum þvert yfirandlitið, svo hún íéll í mylsnu niöur á gólfiö. Hálfum tíma seinna sat hún ein í sömu stofunni yfir rúst- um hruninna vona og vinnu og var í þungu skapi. Þá kom baróninn enn inn og sagöi fremur stuttlega: ,,Eg neyöist til aö ónáöa þig enn einusinni með nærveru minni ti! þess að láta þig vita hvernig afstaða mín verðigagn- vart þér framvegis. Eg held áfram að álíta þig eiginkonu mína og manninn sem hefir komist upp á milli okkar, elsk- huga þinn. Eg cetla mér ekki að sleppa þér við hann, og þú mátt búast viö að ég sporni á móti því með öllu móti að hann nái þér eða aö þú farir með honum," Að svo mœitufórbaróninn en Róma sat eftirog var hugsi. XI. Rossi æddi eins ogóöur maður áleiðis til Palazzo Bracski þegar hann fór að heiman. Hann hljóp upp marmara tröpp- urnar þó fæturnir gætu varla borið hann. í huganum fór hann sömu hamförum yfir atburði dagsins, en stanzaði ávalt við dánarbeð barnsins og var það ekki til aö sefa skap hans_ ,,Litli drengurinn okkar er dáinn—dáinn í fangi móðursinnar! Láttu mig finna morðingjann, guð minn góður— morðingja litla saklausa drengsins okkar—ljóssins augna okkar, sem dó á svipstundu. Hjartans litli jósep! Ætti þá enginn að hefna þín? Ekkert réttlœti að ná til mannsins sem orsakaði dauða þinn? Jú, ég skal hitta hann og hantn skal deyja, því hvað skiftirossum þá sem unnu verkið—vesalings verkfoerin íhönd- um fantsins. “ „Þanmg hugsaði Rossi, og dyrvörðurinn varð skelkaður er hann sá andlit hans og spurningum Rossis um baróninn svaraði hann með því, að hann hefði ekki komið áskrifstofu sínu síðan í gœr, hans Exeilency kynni að vera heima. Rossi héit þá tii Pajazzo Leone. Stóð uppreistin þá hvað hæst. A Corso Victor Emmanúel krossgötunum skiftistfólkiö.

x

Freyja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.