Freyja - 01.09.1909, Blaðsíða 28

Freyja - 01.09.1909, Blaðsíða 28
52 FREYJA XII 2-3 „Þetta er holt hungruGam manni. “ sagði hann og tók rösklega til matar síns. A8 því búnu fylti hann pípu sína og tók aö reykja í ákafa. „Það er iangt síðan viö höfum verið saman, nú þarf ég líka að segja þér nokkuö, Frank, þó ég œtlaöi þér að hefja máls á því, “ sagði hannog teygði letilega úr sér þar sem hann sat í bezta stólnum. Hún var líka sezt, haliaði sér áfram í áttina til hans og sagði: „Ég veit hvað það er. Þú ert ástfanginn. “ „Hvernig í ósköpunum fórstu að vita það?“ Hún hló. „Ég las það á milli línanna í bréfunum þín- um og úr línunum sjálfum þó þú segðir það ekki. Ó, Bobbi, Bobbi! Þú kant ekki aðfara meö leyndarmál, minn góði, “ sagði hún og hló, svo að skein í hvítar tennurnar. „Hvernig er hún í hátt?“ ,,Eins og-eins og alt sem fegurst er og bezt. Há og tíg- ugleg eins og gyðja, — , ,Gul-bjart hárið, hjarta trútt, himin- bláma í augum.' Já og dún-mjúkar, mjallahvítar hendur.-1 Frances varð ósjálfrátt litið á vinnu-hörðnuðu blekblettuðu hendurnar á sér. Með þeim hafði hún unnið sér brauö og sjálfstæði, sem getur af sér sjálfsvirðingu. Hún átti á engu öðru völ, nema því, að verða undir í baráttnnni fyrir tilver- unni. En þannig var hún ekki skapi farin. Hún varð að duga eða deyja. ,,Hún er undur smáfætt, “ hélt Bob áfram og reykti í á- kafa til að sjá myndir af unnustu sinni í reykjarmekkinum, en Frances dró þegjandi að sér fœturna meö hálf-slitnu vinnu- skónum sínum. ,.Og kjólarnir hennar er svo undur fallegir tómar feliingar og útflúr og hattarnir veifandi fjaðrir og ég veit ekki hvað,“ hélt hann áfram eins og í leiöslu, og eins og hann væri ráöalaus með lýsingarorð. „Já, feliingar og fjaðrir og útflúr, “ enduríók hún ogleit óvingjarnlegum augum á sléttu fötin sín. , .Hún kemur bráðum til New York, ég hefi sagt henni frá þér og hún vill kynnast þér. Ó, hvað það veröur gaman, “ sagði hann og hló dátt. „Ég lék dálítið á hana—kallaði þig Frank, og sagði henni hvað góðir vinir við værum, hvað góð- ur strákur þú værir og aö þú heföir vakað yfir mér og komið

x

Freyja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.