Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1971, Blaðsíða 88
92
T í Ð I N D I
alda verið dýrmæt. Húsmæðraskóli kirkjunnar á Löngumýri
miðar að því, að gera ungar mæður hæfar til að gegna þessu
vandasama en jafnframt þýðingarmikla hlutverki — ásamt
(jðrum móður- og húsmóðurstörfum. Húsmæðraskólarnir
hérlendis hafa rækt af trúmennsku þennan þátt uppeldisins
og mætti það vera öðrum menntastofnunum til fyrirmyndar.
Ritnefndin hefur fengið leyfi til að birta hér fáeinar upp-
lýsingar um Húsmæðraskólann á Löngumýri, og fara þær
hér á eftir:
Fáeinar upplýsingar.
Skólinn var stofnaður árið 1944. Frk. Ingibjörg Jóhanns-
dóttir stofnaði skólann á föðurleifð sinni, Löngumýri, Seylu-
hreppi í Skagafirði og rak hann sem einkaskóla til ársins
1962, er hún gaf skólann íslenzku kirkjunni. Frk. Ingibjörg
stjórnaði skólanum til vorsins 1967, en þá tók við störfum
hennar frk. Hólmfríður Pétursdóttir, húsmæðrakennari. Að
loknu námi í Húsmæðrakennaraskóla Islands var hún einn
vetur við nám í skóla, er sænska kirkjan rekur í Sigtuna
fyrir fólk, sem starfar að æskulýðsmálum kirkjunnar.
Löngumýrarskóli rúmar 24 nemendur í heimavist. Húsa-
kynni eru þar rúmgóð og vistleg. Gagngerðar endurbætur
hafa farið fram á þeim og er aðstaða til skólastarfsins nú hin
ákjósanlegasta.
Skólinn starfar eftir námsskrá húsmæðraskólanna, að því
viðbættu, að þar eru kennd kristin fræði. Einnig sameinast
kennarar og nemendur til morgun- og kvöldbæna dag hvern
og farið er reglulega til kirkju. Húsmæðraskóli kirkjunnar
er því algerlega venjulegur húsmæðraskóli, en vill leitast
við að efla trú og kirkjumeðvitund nemenda sinna.
Félagslíf nemenda hefur verið gott. Gagnkvæmar skóla-
heimsóknir eru við Bændaskólann á Hólum og nálæga hús-
mæðraskóla. Nemendur annast sjálfir kvöldvökur. Að sjálf-
sögðu skapast kynni við unga fólkið í sveitunum í kring og