Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1971, Síða 98
102
T í Ð I N D I
upar leggi á þá bann eða forboð, og ákveða sektir á þá menn,
sem rjúfi þessar skuldbindingar og fylgi biskupum að ólög-
um. En heilagri kirkju segjast þeir muni veita hlýðni í öll-
um þeim málum, sem hún hafi vald á, samkvæmt sættar-
gerðinni í Túnsbergi (árið 1277) og gildandi landslögum.
Þannig var komin talsverð ólga hjá leikmönnum gegn
kirkjuvaldinu. Þar með má telja víst, að þessi ólga hafi að
nokkru stuðlað að því, hversu siðbótin komst fljótt á meðal
almennings í landinu.
II.
Á fyrri hluta 16. aldarinnar birtast fleiri atburðir, sem
við skulum virða sem bezt fyrir okkur. Þar getur að líta
átökin milli tveggja sterkra valdsmanna innan kirkjunnar
um yfirráðin yfir Hólastifti. Er bezt fyrir okkur að styðjast
þar einkum við frásagnir Magnúsar Bjiirnssonar bónda á
Hofi á Höfðaströnd. Hann var fæddur 1541 og var því
orðinn 9 ára, þegar Björn faðir hans, prestur á Melstað og
afi hans, Jón biskup Arason, Hólum, voru teknir af lífi
7. nóvember 1550, ásamt Ara föðurbróður hans, lögmanni
á Möðrufelli í Eyjafirði.
Á árinu 1519 var kjörinn til biskupsembættisins í Skál-
holti Ögmundur Pálsson, sem áður hafði verið prestur á
Breiðabólsstað í Fljótshlíð, en síðan ábóti í Viðey. Hann
hafði þó ekki siglt til biskupsvígslunnar fyrr en á árinu
1521. Úr vígsluför sinni í Noregi kom hann haustið 1522.
Þá tók hann við embætti sínu í Skálholti.
Þegar Ögmundur biskup kom úr vígsluför sinni, höfðu
þau tíðindi gerzt í Hólastifti, að Gottskálk biskup Nikulás-
son lézt 1520, en officialis tekinn Jón prestur Arason. Hafði
hann tekið við Hólastað nokkru síðar. Vegur og vald séra
Jóns hafði vaxið svo, að 26. maí 1522 hafði hann verið kjör-
inn til biskups í Hólastifti af öllum prestum þess, nema
einum, séra Pétri Pálssyni, sem síðar varð ábóti á Munka-
þverá. En það var ekki þessi prestur einn, sem var andvígur