Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1971, Side 102
10<i
'I' í Ð I N D I
honum í einni stofu um páska hátíðina, og lét hann fá nóg
öl að drekka.
En á fjórða degi í páskum hvörfu báðir sveinar biskups-
ins frá Olafi Ormssyni, svo hann vissi ekki hvað af þeim varð.
En um morguninn spurði hann af almúga mönnum, að bisk-
up Ogmundur hefði riðið í gær með mikinn fjölda manna
norður í landið til Elétla. Olafi varð þá ekki gott við, og
honum varð seint um að ná þeim tveimur fylgjuhestum,
sem hann hafði, en þá hann hafði náð þeim, reið hann sem
mest hann gat, og náði biskup Ögmundi og hans mönnum
í Mælifellsdal, og reið hjá þeim yfrum Héraðsvötn og að
Hverá, og svo að Kjarvalsstöðum og heim til Hóla, og sagði
hvað títt var. Reið síra Jón Arason þá strax ofan að Kolbeins
ós til skips; en þá hann kom að Ási, þá reið biskup Ögmund-
ur frá Skúfsstöðum heim að Hólum og með honum þrjú
hundruð manna. Þrengdi hann þá Hólaprestum til að kjósa
síra Jón Einarsson til biskups, og tóku þeir allir aftur hina
fyrri kosninguna, nema tveir prestar, annar þeirra var Hóla
ráðsmaður, sem hét Nichulás, en annar var kirkjuprestur,
sem hét síra Tumás, hann varð seinna ábóti á Múnkaþverá.
Ráðsmaðurinn fór þá fyrir háaltari, og lét staðarlyklana
uppá skrínið, en tók sinn stóran mathníf í hvorja hönd, en
menn biskups Ögmundar báru að honum þófa, og tóku
hann svo, og drógu hann út af kirkjunni. Og eftir það höfðu
þeir hann frá staðnum í hesttagli og fóru harðlega með hann,
en hann vildi aldrei gefa sig né ganga á hönd biskupi Ög-
mundi, og þá þeir komu fram Mælifellsdal, slepptu þeir
honum þar.“
Ögmundur biskup sendir síðan til Kolbeinsóss, þar sem
þýzkir kaupmenn höfðu bækistöð sína. Hann fyrirbauð
kaupmönnum að flytja séra Jón Arason frá íslandi og ætlaði
þannig að koma í veg fyrir að hann kæmist úr landi til bisk-
upsvígslu. En Þjóðverjarnir svöruðu því, að þeir væru ekk-
ert smeykir við að mæta biskupi og létu það fylgja orðsend-
ingunni, að þeir mundu þá ekki spara honum ,,lóð né krúð,