Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1971, Qupperneq 112
116
T í Ð I N D I
búðunum. Að lokinni vígsluathöfn var haldið til veizlu-
fagnaðar í barnaskóla Aðaldæla, sem konur í Grenjaðar-
staðarsókn höfðu undirbúið. Þar voru ræðuhöld. Meðal
gesta var kirkjuráðsmaður, Páll Kolka, læknir. Aðaldalur
skartaði í sumarskrúða sínum.
Daginn eftir vígsluna komu fyrstu dvalargestirnir. Það
voru litlir drengir, yngri flokkur. Þeir stigu feimnir fæti
inn fyrir þröskuldinn, enda voru þeir að kanna nýja stigu.
Var gaman að sjá varfærnina, — þeir fundu hátíðleikann.
Þeir virtust gera sér grein fyrir, að þeir voru að ganga inn
í helgidóm, byggingu, sem helguð hafði verið þeirri köllun,
sem í orðum Jesú felst: Leyfið börnunum að koma til mín,
og bannið þeim það ekki, því að slíkra er guðríki. (Mark.
10,14).
Síðan hafa margir flokkar barna verið í sumarbúðunum.
Þau hafa unað sér vel hjá vatninu í friði og fegurð náttúr-
unnar, í faðmi Aðaldals.
Eftir að byggingu sumarbúðanna lauk með smíði aðal-
skálans, var mesta átakið bygging svefnskálans 1968. Þar eru
13 herbergi auk skála og stofu umsjónarmanns. Aukinn
húsakostur gefur tilefni til meira starfs, sem ekki er eingöngu
bundið við sumarmánuðina, heldur aðra mánuði til við-
bótar. Nokkur undanfarin ár hefir vakað sú hugmynd, að
á Vestmannsvatni verði skóli. í samvinnu við forstjóra Elli-
og hjúkrunarheimilisins Grund, Gísla Sigurbjörnsson, hefir
tvö undanfarin sumur verið efnt til námskeiða fyrir aldrað
fólk og átt vinsældum að fagna.
Vestmannsvatn kallar á fleiri byggingar. Til þess að enn
fleiri fái notið þeirrar blessunar, sem þar er að fá. Þar er
tilvalinn staður til þess að halda námskeið fyrir nefndir
og starfshópa kirkjunnar. Þar geta umræðuhópar af ýmsum
stéttum komið til viðræðna um vandamál sín. Þar væri hægt
að mennta djákna og djáknasystur. Svo mætti áfram telja.
Staðurinn hefir mikla möguleika til að vera aflstöð siðgæðis
og trúar meðal hinna yngri sem eldri. Saga hans í sjö sumur