Helgarpósturinn - 08.02.1980, Qupperneq 1
Föstudagur 8. febrúar 1980
Fjórði hver íslend-
ingur þunglyndur?
„Þetta erbara æsilrétt”
Fjölmiðlamenn krafðir um skil
greiningu á umdeildu hugtaki
Fjölmiölar, staða þeirra og
hlutverk i islensku þjóöfélagi
hafa litið verið til umræðu til
þessa. Helst hafa þessi mál bor-
iðá góma, þegar einhver jum hef-
ur þótt nærri sér höggvið i fjöl-
miðlum, réttu máli hallað, eða
vissum skoðunum gert hærra
undir höfði en öðrum. Það sið-
asttalda á einkum við umræður
um rikisfjölmiðlana. 1 þessum
umræðum hefur orðinu ,,æsi-
fréttamennska” oft skotið upp,
og viðkomandi fjölmiðlum
brigslað um óheiðarleika og
sölumennsku.
En hvað er eiginlega ,,æsi-
fréttamennska”, og stunda is-
lenskir fjölmiðlar virkilega þetta
fyrirbæri? Helgarpósturinn hef-
ur leitast við að gera nokkra út-
tekt á þessu hugtaki, og fleiri
hugtökum, sem tengjast blaða-
mennsku, m.a. hinni umræddu
rannsóknarblaðamennsku, i þvi
skyni leituðum við til nokkurra
islenskra fjölmiðlara, og báðum
þá að segja álit sitt á þessari
tegund blaðamennsku. Um leið
reyndum við að kanna viðhorf
leiðandi manna i
athafnalifinu til
fjölmiðlunar og sam
skipta við fjölmiðla.
„ Rússadíndill?
Seiseijú,
mikii
ósköp!”
Jón Múli Árnason í
Helgarpó^viðtali
©
HÆFILCIKINN TIL
AÐ TAKA
ÁKVARÐANIR?
Gunnar Thoroddsen i Nærmynd Helg-
.. arpóstsins
„Gunnar Thoroddsen hefur
vissulega margt þegið af forlög-
unum, en fær vist aldrei stóra
vinninginn þráða í happdrætti
lifsins” sagði i frægum palla-
dómi Lúpusar um alþingis-
manninni Vikunni fyrirnokkrum
árum en Gunnar Thoroddsen
hefur hins vegar verið aö sanna
núna siðustu daga að spádóms-
gáfa Lúpusar var ekki einhlit.
Hins vegar mátti Gunnar ekki
vera seinni á ferðinni til að reka
af sér þetta sliðruorð.
I Nærmynd, — nýjum þætti
Helgarpóstsins i blaðinu i dag,
er leitast við að bregða ljósi á
persónuna og stjórnmálamann-
inn Gunnar Thoroddsen, sem
baðað hefur sig i sviðsljósi þjóð-
félagsins öðrum mönnum frekar
þessa siðustu daga og er i þann
mund að taka viö forustuhlut-
verkinu i islensku þjóðlifi. Rætt
er við samherja hans, pólitiska
andstæðinga og fyrrum sam-
herja úr Sjálfstæöisflokknum,
sem nú bera honum illa söguna.
Sjálfur vill Gunnar lýsa sjálfum
sér sem stjórnmálamanni með
tilvitnun i Bjarna Benediktsson
þess efnis að það sem einkenni
stjórnmálamanninn
Thoroddsen sé
hæfileiki hans til
að taka ákvarðanir.
í Innlendri yfirsýn i dag er
reynt að átta sig á þvi hvaða af-
leiðingar stjórnarmyndun Gunn-
ars Thoroddsen muni hafa fyrir
Sjáifstæðisflokkinn
og pólitiska framtið
Geirs Hallgrimssonar.
Gunnar
©
ÍÞRÓTTAFOLK
ÁRÓÐURSTÆKI
„Umræður sem orðiö hafa um
þátttöku i Olympfuleikum i
Moskvu hafa ekki einvörðungu
fjallað um þá hlið málsins, hvort
iþróttahreyfing heimsins geti lát-
ið sér sæma að ljá sig til áróðurs
rikisstj.sem stendur i árásar-
striði út á viö og herðir kúgunar-
tök heima fyrir, eins og best sést
á þvi að einn þáttur I undirbúningi
leikanna er að fangelsa eöa gera
útlæga frá Moskvu alla sem ein-
hvern þátt hafa tekið i andófs-
hreyfingu mannréttindasinna.
Þótt þetta sé að sjálfsögðu megin-
máliö gagnvart almenningi, eru,
irööum iþróttafréttamanna sér i
lagi farnar að heyrast raddir
sem hreyfa þvi, hvortekki hafi of
lengi verið undan þvi vikist að
taka til nákvæmrar athugunar
hvort unnt sé frá hreinu iþrótta-
sjónarmiði að halda uppi iþrótta-
samskiptum við Sovétrikin eins
og iþróttahreyfingin þar er
rekin. í Sovétrikjunum og fylgi-
rikjum þeirra er ekkert til sem
heitir frjáls iþróttahreyfing,
heldur hafa rikisvaldiö og
flokksvaldiö þar öll tögl og
hagldir. Þetta hefur i för meö
sér, að iþróttareglum er i engu
skeytt þegar um það er að tefla
að nota íþróttafólkið i áróðurs-
skyni fyrir rikiö og valdaflokk-
inn,” segir Magnús Torfi Olafs-
son I Erlendri yfirsýn og Guðjón
Arngrimsson, blaða
k maður tekur [*%■*%1
9 I i sama streng i\23j
Vettvangsgrein.