Helgarpósturinn - 08.02.1980, Blaðsíða 8
8
pósturínn
utgefandi: Blaðaútgáfan Vitaðsgiafi
sem er dótturfyrirtæki Alþýðublaðs-
ins, en með sjálfstæða stjórn.
Framkvæmdastjóri: Jóhannes Guð-
mundsson.
Ritstjórar: Arni Þórarinsson, Björn
Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Jón Oskar Haf-
steinsson.
Blaðamenn: Guðjón Arngrímsson,
Guðlaugur Bergmundsson, Guðmund-
ur Arni Stefánsson og Þorgrímur
Gestsson.
Ljósmyndir: Friðþjófur Helgason.
Auglýsingar: Elín Harðardóttir.
Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir
Dreifingastjóri: Sigurður Steinarsson
Ritstjórn og auglýsingar eru að Síðu-
múla 11, Reykjavík. Simi 81866. Af-
greiðsla að Hverfisgötu 8-10. Simar:
81866, 81741, 14900 og 14906.
Prentun: Blaðaprent h.f.
Askrift (með Alþýðublaðinu) er kr.
4.500,- á mánuði. Verð i lausasölu er
kr. 300,- eintakið.
Metnaður
Stjórnmálaátök siðustu daga
leiða hugann að metorðagirni.
Hvernig sumir verða aldrei
ánægðir þótt á toppnum séu, en
aðrir ætið alsælir á botninum. Og
hvernig sumir hafa það alla tfð á
hreinu hvert þá langar að kom-
ast, en aðrir láta sig litlu skipta
hvað morgundagurinn ber i
skauti sér.
Kannski er þetta ekki endilega
spurning um hvaö fólk vill. Ný-
lega komu þrir menn fram I sjón-
varpinu, og ein kona, og voru öll
sammála um að það sem þau
langaöi til að gera, eftir að þau
væru orðin forseti íslands, væri
að láta gott af sér leiða. Ég held
það geti verið, að allt heiðarlegt
fólk viljiláta gott af sér leiða. Og
að það sé i rauninni tilgangurinn
með öllu bröltinu. Sumir vilja
bara láta meira gott af sér leiða
en aðrir.
Enn aðrir þurfa lika að gera
svo skratti mikið áður en þeir
mega vera að þvi aö láta gott af
sér leiða. Þeir þurfa að klifa met-
orðastigann til að fá tækifæri, og
til að klifa hann þarf stóran
skammt af allskonar eigingirni,
frekju og klókindum.
Suma af þessum metorðastig-
um býr tiðarandinn til fyrir fólk.
Fyrir áratug eða svo lét ungt fólk
gott af sér leiða með þvi að gera
vaff með puttunum og segja pis
broðer, en nú er það barnaskap-
ur. Bæði þá og nú þurfa allir að
byggja sér þak vfir höfuöið og fá
sér allskonar lifsgæöi fyrir pen-
inga.
Annað býr I öllum, burtséð frá
þvi i hvaða þjóðfélagi þeir eru
staddir, eins og t.d. fróðleiks-
fýsn. En það er meó hana eins og
metnaöargirndina, hún er mis-
mikil i fólki.
Ekki er að eta að hægt er að
láta gott af sér leiða i forsætisráð-
herrastól, að ekki sé minnst á for-
setaembættiö sjálft. Það er lfka
hægt að láta gott af sér leiða með
þvi að skrifa vandaöa leiðara I
blöð. Sumir hafa metnaðargirni I
sér til að verða leiðarahöfundar,
þar sem þeir geta bent á það sem
betur má fara I samfélagi manna,
ogleiðir til að láta það fara betur.
Á þessu blaði þarf ekki metnaöar-
girni til. Þaö nægir aö ritstjórinn
eigieftirað gerahittog þetta, rétt
áður en blaðiöá að fara i prentun.
Þannig verða leiöarar eins og
þessi til. Og þannig geta kring-
umstæður sett-fólk i allskonar
stellingar, án þess að metnaðar-
girnd komi nærri. Þá er þetta
spurning um að koma sér útiír
vandanum á snyrtilegan hátt.
Þessi leiðari er dæmi um tilraun
til þess.
Föstudagur 8. febrúar 1980. helgarpÓStl 'rinn
ER ÞETTA VINSTRI STJÓRN?
Hann hefur verið sléttur og
felldur að undanförnu i rikisfjöl-
miðlunum hann Gunnar Thor-
oddsen, einskonar frelsari
þjóðarinar og bjargvættur, að
margra mati, á þessum óvissu
og upplausnartimum. Gunnar
hefur á undanförnum árum
fengið orð fyrir það að vera
tungulipur, og allt sem hann
hefur sagt. slétt og fellt. En
hvernig verður nú þessi rikis-
stjórn sem hann hefur unnið að
aðmynda alltsiöan i desember,
samkvæmt þvi sem sumir
segja. Verður þetta hægri
stjórn, vegna þess að það er
sjálfstæðismaður sem myndar
hana? Verður þetta vinstri
stjórn, vegna þess að tveir
stærstu vinstri flokkarnir hafa
þar meirihluta, eða verður þetta
hvorki fugl né fiskur, og eftir
allt kosið á ný innan tiðar?
Þetta eru sjálfsagt spurningar
sem margir velta fyrir sér
þessa dagana.
S t jó m a r a nd st aða n
verður hörð
Áður en farið er írekar út i að
lýsa þessarist jórn nánar, er ekki
úr vegi að minnast litillega á
stjórnarandstöðuna, sem þessi
væntanlega stjórn á eftir að
berjast við. Annarsvegar verð-
ur það klofinn Sjálfstæðisflokk-
ur, og formaðurinn i sárum og
hinsvegar verður það sprengju-
flokkurinn Kratar með þrefalda
forystu, Benedikt , Kjartan og
Sighvat. Þetta verður þó ekki
aöalstjórnarandstaðan, heldur
Morgunblaðið, eftir fyrstu við-
brögðum þess varðandi stjórn
GunnarsTTior aðdæma.Þaðer
liklegt að Morgunblaðið verði
mun áhrifameiri stjórnarand-
staða, heldur en flokkarnir
tveir — ef það heldur sig innan
vissra marka. Fýrstu viðbrögð
benda nú ekki til þess, en eftir
flokksráðsfund Sjálfstæðis-
flokksins á sunnudag, stillist
Mogginn nú kannski.
Kjaramálin
Þegar þetta er skrifað hefur
málef nasamningurinn ekki
verið birturog reyndar ekki bú-
ið aö ganga frá neinum hluta
hans. Sagt var að kjaramálin
hefðu staðið nokkuð i mönnum
fyrst i vikunni, og þá einkum i
Alþýðubandalagsmönnum og
Birni Þórhallssyni. Björn, sem
er formaður Landssambands
islenskra verslunarmanna og á
sæti i miðstjórn Sjálfstæðis-
flokksinshefur verið hægrihönd
Gunnars við kjaramálakaflann
og fleira, frá þvi hann hóf
stjórnarmyndunartilraunir
sinar. Björn er harður og fylg-
inn sér, þegar svo ber undir, og
hefði jafnvel getað orðið ráð-
herra i þessari rikisstjórn
Gunnars Thoroddsens, ef allar
aðstæður hefðu verið honum i
hag Hann er framarlega i verka-
lýðshreyfingunni, ekki aðeins i
fararbroddi verslunarmanna,
heldur lika mikill áhrifamaður
innan miðstjórnar ASÍ, þar sem
reikningskunnátta og meðfædd-
ur þingeyskur skarpleiki kemur
honum oft vel, þótt af fram-
sóknarkyni miklu sé. Það verð-
ur hiutverk Björns að bera
verkalýðshreyf ingunni boð
Gunnars Thoroddsen og berjast
á vigstöövum hennar fyrir
Gunnar.
Vatnsveitustjórinn
Þóroddur Th. Sigurðsson
vatnsveitustjóri i Reykjavik
hefur löngum, að þvi sagt er,
verið á hasgra brjóstinu hjá
Gunnari, eða allt frá þvi hann
var borgarstjóri. í tið Gunnars
sem iðnaðarráðherra kvaddi
hann Þórodd sér oft til ráðu-
neytis um ýmislegtsem snéri að
orkumálum, og Þóroddur fékk
greiðana greidda með þvi að
veraskipaöur i nefndir á vegum
ráðuneytisins.
Iðnrekandinn
Einn annar traustui
stuðningsmaður Gunnars við
þessa stjórnarmyndun er sagð-
ur vera Davið Scheving Thor-
steinsson, sannkölluð þjóð-
hetja eftir bjórmálið. Davið
er sagður hafa verið ann-
ar tveggja sem sátu hjá á
miðstjórnarfundi Sjálfstæðis-
flokksins, þegar fjallað var
um stjórnarmyndunartilraum-
ir Gunnars. Hinn varBjörn
Þórhallsson. Það fór nú ekki
allt of vel á með Gunnari og
Davið þegar Gunnar var iðn-
aðarráðherra, þvi einhverju
sinni á Davið að hafa stungið
upp á þvi á stjórnarfundi hjá
iðnrekendum að rétt væri nú að
auglýsa opinberlega eftir
iðnaðarráöherranum. Hann
hafði þá ekkert samband haft
við samtök iðnaðarins löngu
eftir að hann var kominn i em-
bætti. Siðar komst á gott sam-
band þar á milli, meðal annars
með iðnkynningunni svokölluðu
sem Gunnar réð Pétur Svein-
bjarnarson núverandi veiting-
húseiganda til að standa fyrir.
HÁKARL
Landbúnaðurinn
t þessari stjórn verður ekki
séð eins vel fyrir hagsmunum
neinnar stéttar eins og bænda.
Með Eggert Haukdal, Pálma
Jónsson og þingmenn Fram-
sóknar og Alþýðubandalags
saman i einum hóp, eru saman-
komnir á einn stað allir helstu
stuðningsmenn bænda á þingi.
Bændur ættu þvi ekki að þurfa
að örvænta um sinn hag, og
berjast um með kjafti og klóm
tii aðfá greiddar niðurgreiðslur
og útflutningsbætur Ur rikis-
sjóði. Þessi nkisstjórn mun sjá
um það hvort sem Pálmi eða
Steingrimur verða land-
búnaðarráðherrar i henni.
Greiðsla þessara margumtöl-
uðu þriggja milljarða mun ekki
fara fyrir brjóstið á verðandi
fjármálaráðherra, sem væntan-
lega verður Ur röðum Alþýðu-
bandalagsmanna. Einhver
þeirra þremenninga, Hjörleifs,
Svavars eða Ragnars mun
verða dæmdur til að taka að sér
embætti fjármálaráðherra i
stjórn Gunnars Thoroddsens.
Reyndar hefur mikið verið
gengið á eftir Geir Gunnarssyni
að taka að sér embættið, en
hann er talinn biðjast undan þvi,
og komast upp með það eins og i
önnur þau skipti sem hann hefur
átt kost á ráðherraembætti.
Vinstri stjórn
Af mönnum sem til þekkja er
þetta talin verða meiri vinstri
stjórn en sú sem mynduð var
eftir kosningarnar 1978. Stað-
reyndin er nefnilega sú, að þeir
sem eru lengst til hægri i
Alþýðuflokknum eru lengra i þá
átt, en þeir sem eru lengst til
vinstri i Sjálfstæðisflokknum, ef
hægt er að tala i þessum hugtök-
um. Gunnar Thoroddsen hefur
aldrei verið talinn verulegur
kapitalisti, og allra síst verður
hann það i' þessari stjórn þvi
hann veit aö hann verður að láta
Alþýðubandalag og Fram-
sóknarflokk ráða að mestu ferð-
inni. Þessvegna verður þetta
kannski meiri vinstri stjórn en
marga grunar, þótt hún muni
ekki blása i herlúðra varðandi
brottför varnarliðsins og þess-
háttar hluti.
Ekki liróflað við hern-
um
Samkvæmt þeim hugmyndum
sem hafa verið á floti um utan-
rikismál þá er ekki gert ráð
fyrir samkvæmt málefna-
samningi stjórnarinnar að
hróflað verði viö hernum.
reyndar er talað um að áætlan-
ir um gerð flugstöðvarinnar
miklu verði settav i skúffu, en
jafnframt er talað um að áfram
verði unnið að þvi að aðskilja
starfsemi Varnarliðsins og al-
menna flugsins á Keflavikur-
flugvelli, hvernig svo sem hægt
er að koma þvi heim og saman
með þvi að byggja ekki nýja
flugs töð.
Þá er rætt um að stórefla
starfsemi öryggismálanefdar-
innar sem sett var á stofn, og
Einar Agústsson var formaður
i. Formennskan i þeirri nefnd
verður liklega sú dúsa sem
Ólafur Ragnar Grimsson fær
með valdatöku þessarar stjórn-
ar.
Hákarl.
-GA