Helgarpósturinn - 29.02.1980, Side 19
19
helgarpósturinn-Fösiudag
ur 29. febrúar 1980
„Ljósamaðurínn þarf
að vera listfengur”
ÞaO eru margar hendurnar
sem standa aö hverri leiksýn-
ingu hjá Þjóöleikhúsinu, sem og
hjá öörum húsum. Þaö eru auö-
vitaö leikararnir, sem eru mest
I sviösljósinu, en til þess aö svo
megi vera i bókstaflegri merk-
ingu, þarf aö sjálfsögöu ljósa-
Einn þeirra manna sem oft er
skrifaöur fyrir lýsingu i Þjóö-
leikhúsinu. er Kristinn Daniels-
son ljósameistari. Helgar-
pósturinn sló á þráöinn
til hans og forvitnaöist aöeins
um hann sjálfan og starf hans
„£g er Ur Reykjavik, fæddur
og uppalinn á Bókhlööustign-
um”, sagöi Kristinn.
Kristinn, ásamt öllum starfs-
mönnum ljósadeildarinnar i
ÞjóöleikhUsinu, er rafvirki aö
mennt.
,,Ég kom hingaö áriö 1949 sem
rafvirki á vegum Jóhanns
'Rönning. Þá voru hér Björn
Einarsson og Baldur Helgason,
nýUtskrifaöir tæknimenn og sáu
um alla rafmagnsvinnu baka til
á sviöinu, og ég var einn af
hjálparmönnum þeirra. I
september kom Englendingur,
Bill Bundy, og tók aö sér aö
setja upp ljósakerfiö og ganga
frá ljósabUnaöinum. Þegar
ÞjóöleikhUsiö tók til starfa, var
ég þaö kunnugur öllum hnútum,
aö Hallgrlmur Bachman heitinn
bauö mér starf sem ljósamaöur,
Fyrir fimmtan árum varö ég
svo ljósameistari.”
— 1 hverju er starf þitt fólgiö?
„Þaö er aö sjá um lýsingar á
leiksýningum og annast allt viö-
hald og viögeröir á rafkerfi og
ljósakerfi Þjóöleikhússins.”
— Hvernig er háttaö sam-
starfi ljósamann og leikstjóra?
„Viö ræöum saman, ásamt
leikmyndateiknara, um þaö
hvernig lýsingin á aö vera.
Ljósamaöurinn á oft sjálfur
frumkvæöiö, en oftast er þetta
samvinna þessara þriggja
manna. Þá fáum viö aö sjá ieik-
ara á æfingu I leikmynd og ger-
um okkur þá endanlegar hug-
myndir um hvernig þetta á aö
vera, þannig aö ljósameistari
fær þá tækifæri til aö undirbUa
lýsinguna og annast hana og
sýna þeim hvernig hægt er aö
gera þetta. Viö fáum svo æfingu
og þá þarf oft aö endurskipu-
leggja marga hluti vegna þess
aö þaö hefur kannski ekki alveg
passaö viö þaö sem viö vorum
aö segja eöa hugsa.”
— Þurfiö þiö oft aö breyta frá
þeirri hugmynd, sem þiö geröuö
ykkur um þetta i upphafi?
„Nei,þaöer nú ekki oft, en oft
á tiöum þurfum viö aö hafa
styrksmun, en þetta eru ekki
stórir annmark.ar.”
— ÞU kannt vel viö starfiö?
„Já, aö mörgu leyti. Þaö er
bara oft heldur mikill hraöi hjá
okkur, þvi þaö eru mörg leikrit I
gangi I einu.”
— Er þetta vandasamt starf?
„Persónulega tel ég aö ljósa-
maöurinn þurfi aö vera mjög
listfengur maöur. Þaö er ekki
nóg aö vera rafvirki, heldur
þarf hann aö hafa smekk.”
— Og þú ætlar aö vera i þessu
áfram?
„Já, ég á eftir fimm ár i eftir-
laun”, sagöi Kristinn Daniels-
son aö lokum.
-GB
Stórband Svansins er meöal þeirra sem koma fram á kabarettinum I Þórscafé.
Kabarett í gamla
stfínum í Þórscafé
„Undirtektirnar voru mjög
góöar. Þaö var allt upppantaö og
uröu margir frá aö hverfa”, sagöi
Ómar Hallsson, veitingamaöur i
Þórscafé, þegar Helgarpóturinn
spuröi hann hvernig heföi gengiö
meö kabarettinn, sem gestum
staöarins er nU boöiö upp á á
fimmtudags- og sunnudags-
kvötdum.
Ómar sagöi, aö þeir væru ekki
aö tjalda til einnar nætur, heldur
væri ætlunin aö hafa þennan
kabarett út marz-mánuö. Hann
væri settur upp til aö reyna aö
endurvekja stemmningu eins og
var hér áöur fyrr I Reykjavik.
Kabarett þessi er eingöngu
ætlaöur fyrir matargesti Þórs-
cafés og er boöiö upp á eld-
steiktan mat. Koma matreiöslu-
mennirnir aö boröum gestanna og
steikja matinn fyrir framan þá.
Sagöi Ómar aö þaö heföi gengiö
mjög vel fyrsta kvöldiö.
Þeir sem koma fram á þessari
skemmtun, eru bræöurnir Halli
og Laddi, ásamt eftirhermunni
Jörundi, og eru þeir meö alveg
nýtt prógram. Þá koma fram
tslenski dansflokkurinn, töfra-
maöurinn Johnny Hay og stór-
band lúörasveitarinnar Svans.
Helgarpósturinn haföi einnig
samband viö Sæbjörn Jónsson,
stjórnanda stórhljómsveitarinnar
og spuröi hann fyrst hve lengi hún
heföi veriö starfrækt.
„Þetta er þriöja áriö sem viö
starfrækjum þetta band. Þaö kom
til út af ungu fólki, sem viö tókum
viö fyrir einum fjórum árum og
höfum aliö upp hjá okkur. Nú er
þetta oröiö fullmekt fólk og vildi
gera vföreistara I tónlistinni en aö
spila I lúörasveit. Þaö varö þvi
ofan á, aö viö, nokkrir gamlir
jálkar, fórum aö spila meö þessu
unga fólki,” sagöi Sæbjörn.
Aöspuröur um tónlistina, sem
hljómsveitin spilaöi, sagöi
Sæbjörn, aö þaö væri þessi
svokallaöa big-band tónlist. Þaö
væru alls konar lög, sem væru
útsett fyrir þessar stórhljóm-
sveitir, en þaö flokkaöist bæöi
undir jazz og danstónlist. Þeir
reyndu aö spila hvort tveggja, en
sumt væri gífurlega erfitt og þeir
heföu ekki komist yfir allt sem
þeir vildu. Þó væru þarna nokkur
lög sem væru talin topp jazzlög.
Sæbjörn sagöi, aö stórböndin
heföu veriö vinsæl hér áöur fyrr,
á meöan kaup var lágt og
kreppan hafi veriö yfir
heiminum. Þau heföu siöan aö
miklu leyti lagst niöur, þegar
kreppan leystist og hljómlistar-
menn fóru aö fá kaup aftur. Þau
heföu þó rutt sér mikiö til rúms
aftur á undanförnum árum og oft
væru þau viöloöandi aörar hljóm-
sveitir, eins og lúörasveitir.
Rekstrargrundvöllurinn fyrir
svona hljómsveitir væri enginn,
nema fyrir topp sveitir, eins og
Buddy Rich, Thad Jones og
þeirra lika.
— Hafiö þiö spilaö einhvers
staöar áöur?
„Nei, viö höfum ekki komiö
fram sem slikir. Viö höfum gert
þrjú útvarpsprógröm, m.a. veriö
tvivegis meö prógram á nýárs-
nótt. Siöan höfum viö spilaö á
okkar tónleikum og i feröalögum
meö Svaninum. Þetta er mjög
ungt fólk, fimmtán, sextán ára og
ég hef ekki viljaö fara langt meö
þaö.”
Sæbjörn sagöi, aö Svanurinn
ætti fimmtiu ára afmæli I ár og af
þvi tilefni stæöi fyrir dyrum hjá
þeim Noregsferö, en þar ætla þeir
aö heimsækja vini sina.
— Hvaö eru margir I hljóm-
sveitinni?
„Viö erum tuttugu, en þessi big-
bönd eru átján manna. Viö höfum
styrkt okkur pinulitiö meö tveim
mönnum I viöbót til þess aö brúa
forföll, aöallega,” sagöi Sæbjörn
Jónsson.
—GB.
Kristinn Danielsson ljósameist-
ari aö störfum
1. Húsgagnaverslun þeirra er
stærsta sérverslun iandsins
meö Islensk rúm.
2. Húsgagnavinnustofa þeirra
framieiöir flest öll rúm, sem
framleidd eru á tslandi.
3. Þeir hafa 20 ára reynslu i
smiöi rúma.
4. Eigin framleiösla tryggir
hagstæöasta veröiö.
5. Þeir bjóöa upp á bestu
greiösiuskilmálana.
GÓÐIR SKILMALAR =
BETRI SVEFN.
6. Reynslan tryggir gæöin.
7. 5 ára ábyrgö fylgir öllum
framleiösluvörum.
8. Þér getiö valiö úr 14 geröum
rúmdýna.
9. Allar framleiösluvörur
þeirra eru unnar úr ekta viö-
arspæni, en hvorki plasti né
viöarlikingu.
10. RUmin endast og endast..
11. Þér getiö valiö Ur u.þ.b. 300
rUmum.
12. Fyrirtækiö er á Islandi,
þannig aö ef eitthvaö kemur
fyrir rúmiö, eru þeir ávallt
til staöar.
13. Fagmenn aöstoöa yöur viö
valiö.
14. Þér fáiö litmyndalista heim-
sendan, ef þér óskiö.
15. útvörp, sem fylgja rúmun-
um, eru meö fullri ábyrgö.
16. Boöiö er upp á fullkomna
dýnuþjónustu.
17. Ef þér búiö á stór-Reykja-
víkursvæöinu, fáiö þér rúm-
iö sent heim, yöur aö kostn-
aöarlausu.
18. Verslunin er opin frá kl. 8 til
19 alla virka daga, og á laug-
ardögum frá kl. 9 til 12.
19. Ef breytinga er þörf, er hægt
aö leysa flest slik vandamál.
20. tslensk rUm fyrir islensk
heimili.
‘Matur framreiddur frá kl. 19.00.
Boröapantanir frá kl. 16.00
SIMI 86220
Askiljum okkur rétt til að ráöstafa fráteknum boröum
eftir ki. 20.30
Htjómsveitin Glæsir og diskótek
í kvöld, laugardags- og sunnudagskvöld
Opiö föstudags-
kvöld tii kl. 3.
og laugardags-
Spariklæönaður
Hvers vegna er hagkvæmt að kaupa
rúm framleidd hjá Ingvari og Gylfa?
SKATTAÐSTOÐIN
SÍMI 11070
Laugavegi 22, inngangur frá Klapparstíg
101 Reykjavík.
Annast skattframtöl, ársuppgjör, skattkærur,
beiðnir um skattbreytingar og aðra skattaþjónustu.
ATLI GfSLASON hdl.
Heima: Hraunteigur 24, 105 Reykjavík, sími 8-68-78