Helgarpósturinn - 06.06.1980, Blaðsíða 28
Við fögnum nýrri flugvél
Boeing727-200
tU pjónustu á Evrópuleiðum
Stórum,aflmiklum og glæsilegum farkosti,
sem nú bætist í flugflota landsmanna.
FLUGLEIÐIR jS
® Deilumál ritstjóra Vikunnar
og forráöamanna Hilmis út af
sérprentun stuðningsmanna
Alberts Guömundssonar á fram-
bjóöandakynningu Vikunnar á
slnum tíma, hafa vakið athygli.
Kunnugir halda þvi fram, að
Helgi Pétursson, ritstjóri, sé sið-
ur en svo ánægður með málalok
og þess sé aö vænta að hann muni
fljótlega hætta hjá Vikunni. önn-
ur hlið er þó á þessu máli, sem
ekki hefur fariö jafn hátt. Hún
tengist þvi hvernig troðið hefur
verið á höfundarétti Ijósmyndar-
ans, Jim Smart, I þessu máli,
þvi að um leið og forráöamenn
Hilmis gáfu leyfi til þess að fram-
bjóðandakynningin yrði sérprent-
uð, varekki leitað heimildar ljós-
myndarans fyrir endurbirtingu
myndanna, sem hann hefur þó
ótviræðan höfundarétt yfir.
Spurningin er hvort Blaðamanna-
félag íslands geti setið aögerða-
laust, og verði ekki að fá úr þvi
skorið i eitt skipti fyrir öll hvar
höfundarétturinn liggi I tilfellum
sem þessum...
® Mikill hiti er sagður vera I
Hafnarfiröi út af Tónlistarskólan-
um þar. Ástæðan er sú, að Páll
Gröndalskólastjóri hafði ákveöið
að taka sér ársleyfi frá störfum
og mælt með þvi að Gunnar
Gunnarsson flautuleikari og
fyrrum félagi i söngflokknum
Litið eitt tæki viö skólastjóra-
starfinu á meöan. Venjan er sú að
slfkar óskir skólastjóra eru virtar
umyröalaust, en i þetta sinn haföi
sú nefnd i Hafnarfirði sem hefur
með mál skólans aö gera aðrar
hugmyndir og vildu ráða Agnesi
Löve, sem verið hefur pianó-
kennari við skólann, skólastjóra i
fjarveru Páls. Þessar fyrirætl-
anir fræðslunefndar hafa orðið til
þess að Páll Gröndal hefur nú
sagt upp starfi sinu sem skóla-
stjóri Tónlistarskólans I Hafnar-
firöi og verður stáða hans auglýst
laus til umsóknar einhvern tima á
næstunni...
© Framámenn innan Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna þing-
uðu hér á dögunum og þar var
hrun fiskmarkaðarins i Ameriku
aöalmál á dagskrá, eins og vænta
mátti, enda getur þaö haft ófyrir-
sjáanlegar afleiöingar fyrir efna-
hag landisins, sem var ekki góður
fyrir. Sagt er að á þessum fundi
hafi Þorsteinn Gislason,
framkvæmdastjóri Coldwater
Seafood Corp., fyrirtækis SH
vestan hafs, lýst miklum áhyggj-
um yfir þvi hversu vöruvöndun
allri héöanfrá tslandi hafi hrakað
stórlega á siðustu árum og nefnt
að aðeins væru hér á landi tveir
staðir, sem skiluðu undantekn-
ingalítið fyrsta flokks vöru.
Þessir staðir voru Akureyri og
ölafsfjörður. Þorsteinn á að hafa
dregiö upp úr pússi sinu á þessum
fundi kassa meö flökum, sem
reyndust aöallega samanstanda
af þunnildum og öðru rusli...
© Listahátið setur núna svip
sinn á bæjarlifið I Reykjavik. Þeir
sem ekki komast til að njóta þess
sem þar er boðið uppá, vegna
búsetu úti á landi eða annarra
orsaka, geta þó huggaö sig við
það, að þótt sfðar verði geta þeir
skoðaö þessa ágætu krafta á
sjónvarpsskerminum. Sjónvarpiö
mun að öllu forfallalausu taka
upp flutning spænska leikflokks-
ins Els Comidiants, pianóleik-
arans Alicia de Larrocha,
gltarleikarans Göran Söllscher,
jazzkvartetts Stan Getz, lslenska
dansflokksins, irska þjóðlaga-
flokksins Wolfe Tones og italska
tenórsins Luciano Pavarotti. Sá
böggull fylgir þó skammrifi að
vegna takmarkaðs tækjabúnaöar
fáum við aðeins að sjá þetta lista-
hátiðarefni i svarthvitu i einföld-
ustu upptöku. Eru reyndar skipt-
ar skoöanir um það innan
sjónvarpsins hvort réttlætanlegt
sé að sinna þessu á meöan ekki er
betur búið að stofnuninni hvað
tækjabúnaö til utanhússupptöku
varðar...
# Poppmál listahátiðar hafa
verið i nokkurri óvissu sem kunn-
ugt er. Nina Hagen rokkstjarnan
þýska, var lengi vel á leiðinni, en
tilkynnti forföll þegar útséð var
um að henni íækist að
fullæfa nýja hljómsveit i tæka tið
fyrir Islandsferö. Hins vegar
hefur Helgarpósturinn heyrt að
Nina Hagen hafi boðist til aö
koma hljómsveítarlaus ef hún
fengi Þursaflokkinn sér til
aðstoðar á tónleikunum, en hún á
að hafa haft veður af ágæti þess
flokks af hljómplötum. Ekkert
varö af þessu, trúlega vegna
tímaskorts Þursanna...
# Flest bendir til þess að takast
muni aö fá bresku nýbylgju-
hljómsveitina Clash hingað á
Listahátið, en eltingaleikur við
umboösmann hljómsveitarinnar
um ýmsar borgir Evrópu veldur
þvi þó aö ekki eru alveg allir
lausir endar hnýftir saman þegar
þetta er skrifað. Hins vegar er
allt klárt af hálfu Listahátiðar,
þegar endanleg staöfesting kem-
ur - búið er að finna flug handa
hljómsveitinni til landsins og
ákveða tónleikana I Laugardals-
.höll hinn 21. júni nk. ef allt smell-
ur saman...
# Það þótti tiðindum sæta
fyrir skömmu þegar I fyrsta
skipti á Islandi var skipuð kona til
að gegna embætti sýslumanns.
Það var Hjördis Hákonardóttir
sem varð yfirtjald þeirra i
Strandasýslu. Hjördls er
röskleikakona, en engu að siður
komú þær upplýsingar undarlega
fyrir eyru I þættinum Að vestan I
útvarpinu I gærkvöldi, að I allri
sýslunni, sem er sú lengsta i land-
inu, er ekki einn einasti lögreglu-
maður sýslumanni til trausts og
halds. Hjördis heldur þvi uppi
lögum og reglu i Strandasýslu ein
sin liðs. Hún þarf jafnvel að
framkvæma mælingar á slysstað
ef árekstur verður. Geri aðrir
betur. En er þetta i samræmi við
lög og reglur...
® Miklar hræringar eru nú hjá
Sölustofnun lagmetis. Fyrir það
fyrsta munu Sölustofnunarmenn
vera allt annað en hressir með þá
ákvörðun Tómasar Arnasonar,
viöskiptaráöherra, að leyfa Erni
Erlendssyni útflutning á lag-
metisvöru til Austur-Þýskalands.
Munu þeir hjá Sölustofnun lag-
metis telja þetta brjóta gegn
einkaleyfi þeirra á útflut ningi lag-
metis og hugleiða jafnvel
málsókn I þessu sambandi...
® Og áfram meö Sölustofnun
lagmetis. Framkvæmdastjóri
fyrirtækisins, Gylfi Þór Magnús-
sonmun láta af störfum þann 1.
júll næstkomandi. Heyrst hefur
að Heimir Hannesson sem gegnir
stjdrnarformennsku hjá Sölu-
stofnun I fjarveru Lárusar Jóns-
sonar muni hafa verulegan áhuga
á þvi að setjast i sæti
framkvæmdastjóra, þegar sá
stóll losnar að mánuöi liönum...
® Það liggur nú ljóst fyrir að
engir útidansleikir verða haldnir
aö kvöldi 17. júni i Reykjavik eins
og venja hefur verið. Astæðan er
einfaldlega sú, að þeir peningar
sem þjóðhátiðarnefndfær úr ab
spila eru af skornum skammti.
Hún mun fá um 19 milljónir til
ráðstöfunar og samkvæmt
áreiðanlegum heimildum mun
borgin fá 10 milljónir I vasann
aftur. Þjóðhátiðamefnd þarf sem
sé aö borga starfsmönnum
Reykjavikurborgar fyrir þá vinnu
sem þeir inna af hendi vegna
hátiðahaldanna. Hátíðahöldin
verða þar af leiöandi með
einfaldara sniöi að þessu sinni.
Eitthvað verður þó til
skemmtunar og mun til dæmis
Cllen dúllen doff hópurinn úr
útvarpinu láta þar til sin heyra...
# Sex umsóknir bárust um
starf dagskrárgerðarmanns við
frétta- og fræðsludeild sjónvarps-
ins, en þessu starfi hefur
Örn Harðarson gegnt um
nokkurra ára skeið. Þeir sem
helst þykja þó koma til greina eru
fjórir: Marianna Friöjónsdóttir
og Karl Sigtryggsson sem verið
hafa útsendingarstjórar frétta,
Karl Jeppesen, kennari, sem
starfaði um tima hjá sjónvarpinu
fyrir mörgum árum, og Elin
Friðfinnsdóttir, sem er að Ijúka
námi i fjölmiðlun I Banda-
rikjunum...
© Mikill fjöldi Islendinga mun
hafa viljað verða fornaldarfólk I
Hollywoodstórmynd franska
leikstjórans Jean-Jacques
Annaud sem tekin verður
hérlendis i sumar. Auglýst var
eftir statistum og hringdu hátt I
fjórða hundraö manns um og
fyrir siðustu helgi, en um 180 voru
síðan ljósmyndaðir til frekari
glöggvunar. Einkum mun hafa
vantað stórgert fólk og þrekið...