Helgarpósturinn - 13.03.1981, Síða 6
Föstudagur 13. mars 1981 5. tölublað
Blaöamenn Dagblaðsins. (Mynd: Rannsóknarlögreglan)
inn fengið vegna meöaleinkun
rétt um 7.5, en vegna ótrúlegs
skilnings og samúðar hins fróða
og sporlétta yfirþjóns, Johannes
Bongo, sem rétti að mér litla
flösku af 25 ára gömlu „Sumire
Torrero” að skilaði, þá er vegin
meðaleinkun staðarins 8.0 — vel
yfir meðallagi”.
Jónas var spurður álits á þeim
úrskurði Hæstaréttar að allir
'Dagblaösmenn ættu að sitja inni
þar til ..þeim þóknaðist að opna á
sér kjaftinn”, en hann sagðist
engu hafa við fyrri yfirlýsingu að
bæta. „Létt, vel rjómuð og bragð-
mjúk sinnepssósa, „Chango Di
prutti”, er tromp sjöunda besta
veitingastaðar Parakou”, hélt
hann áfram. „Vinlisti hússins er
krassandi frábrugðinn, og á
Jónas er kominn heim
„Matur er mannsins meginn”,
sagði Jónas Kristjánsson ritstjóri
Dagblaðsins þegar Aðalblaðið
náði tali af honum við heimkom-
una I morgun. Allt starfsfólk Dag-
blaðsins var sem kunnugt er
dæmt í gæsluvarðhald nú fyrr i
vikunni, nema Jónas, en hann var
i matarsmökkunarferð i borginni
Parakou i Vestur-Afrikurikinu
Dahomey.
„Ég var að 1 júka við dásamlega
„Parma mombo de Chigustine”,
og hafði stungið upp i mig bita af
hinni þungu, en mildu „Umba St.
Germain Quongo” þegar ég var
kallaður i simann, af yfirmat-
sveininum á „At Mbwane’s”, hin-
um sikáta John Diambúi, sem
ræður rikjum i björtu og
hreinlegu eldhúsi staðarins. Það
lá við að mér svelgdist á höfugu
og ilmmiklu „Chateau Le Diable
’67” rauðvininu þegar mér voru
færðar fréttirnar”, sagði Jónas,
en hann er nú eini starfsmaður
Dagblaðsins, sem getur umfrjálst
höfuð strokið.
„Það var erfitt að slita sig frá
hinum hressilega, en þó klassiska
eftirrétti, „Banana Bawana” og
að yfirgefa hið rómantiska and-
rúmsioft efri hæðar þessa mjög
svo frambærilega matsölustaðar
— en ég átti ekki annarra kosta
völ. Að öllu jöfnu hefði staður-
SÖLUNEFND ALÞINGISEIGNA I
Vegna stöðugt vaxandi f jár-
hagserfiðleikaauglýsir alþingi
Aðeins í
þetta
eina
sinn:
Stjórnmálamenn
í fataskápinn
og á klósettið!
Þessi vinsælu
klósettpappírs-
statíf og herða-
tré fást
í Kaupfélaginu!
ÞAR EIGA
ÞEIR HEIMA
fastaseðlinum voru þrir réttir, en
á dagseðlinum þrettán. Þegar
sest er til borös er venjulega boðiö
uppá litið staup af „Armaniac
Brucio dela Tutti”.
Jtínas var að lokum spurður
hvaða þýðingu handtökurnar
hefður fyrir framtið Dagblaðsins.
„Leikandi létt og lipur þjónustan
á „Bengió Krawadó”, fjórða
besta veitingastað Parakou, er
ktíngum sæmandi”, hélt Jónas
áfram. Ogáfram.
Steingrimur verður að fara að
vanda málflutninginn.
W
Oþverri uppí
stjómmála-
mönnum
Jóhann Sveinbjörnsson, for-
seti tannlæknafélags islands,
hefur farið þess á leit við
alþingi að mjög náið eftirlit
verði haft með tönnum
alþingismanna, og annarra
stjórnmálamanna. „Það er
nauðsynlegt fyrir þá sem gefa
sér að stjórnmálum að láta at-
huga á sér munninn að
minnsta kosti einu sinni I
mánuði, — helst einu sinni I
viku”, sagði hann.
"Rannsóknir hafa leitt i
ljós að stjórnmálamönnum er
langtum hættara við allskonar
munnangri og tannkýlum, en
öllum almenningi, jafnframt
þvi að tennur þeirra virðast
skemmast fyrr”, sagði Jó-
hann. Jóhann sagði
tannlæknafélagið ekki hafa
rannsakaö nákvæmlega
hvernig á þessu geti staðið, en
sagöi unnið að þvi.
„Okkur þykir liklegast að
þar sem stjórnmálamenn tala
langtum meira en eðlilegt get-
ur talist, þá sé munnur þeirra
illa varinn gegn sjúkdómum”,
sagöi Jóhann. „Það hefur
sömuleiðis áhrif hvað þeir láta
sér um munn fara”.
Jóhann sagði samt augljóst
að hver sem ástæðan væri, þá
bæri stjórnmálamönnum
skylda til að fara vel með
munninn á sér, þvi aö „hann
er atvinnutæki þeirra”, eins
og hann oröaði þaö,” hvar
væru þeir án talandans?”.
,Land og synír’
í nýjum
Það er skammt stórra höggva
á milti i kvikmyndaiðnaðinum.
Nú fyrir skömmu var Punktur-
inn frumsýndur, og i morgun
kom frétt frá Saga-film þess
efnis aö Hrafn Gunnlaugsson,
ásamt fleirum, myndu hefjast
handa vib tökur á endurútgáfu á
„Landi og sonum”, um leiö og
lokið hefur veriö við „óöal feðr-
anna 2”.
„I Landi og sonum er fengist
við klassiskt þema, sem okkur
langar að glfma við”, sagði
Hrafn. „1 mynd tsfilm um þetta
sama efni var frásögnin mjög
streit, en ég hef hugsað mér aö
krydda hana meö blóði, svita og
tárum, ef svo má að orði kom-
ast”, sagði Hrafn.
Frumsýningardagurinn er
óákveöinn.
Guðrún A. Sfmonar og Þuriður Pálsdóttir anda framan i hvor aöra.
„Viltu meira, ha?,?
— ný keppni sjónvarpsins hefst í kvöld
1 kvöld klukkan 21.00 hefst hin
nýja keppni sjónvarpsins, „Viltu
meira, ha?” Stjórnandi útsend-
ingar er Rúnar Gunnarsson, en
hann var einmitt stjórnandi hinn-
ar glimrandi söngvakeppni sjón-
varpsins. Að sögn Rúnars er hin
nýja keppni af allt öðrum toga, en
söngvakeppnin.
t ,,Viltu meira, ha?” er ekkert
sungið, en þvi meira andað.
Keppnin verður með útsláttar-
fyrirkomulagi, þannig að aðeins
koma\ fram tveir keppendur i
hverjum þætti, og sigrar sá sem
eftir stendur. Keppendur stilla
sér uppsitthvorumegin við breiöa
hvita li'nu á gólfinu i sjónvarpssal,
snúa hvor á móti öðrum og anda
svo framan i mótherjann. Að sögn
Rúnars verða keppendur i fyrsta
þættinum, hinar gömlu vinkonur
Guðrún A. Simonar og Þuriður
Pálsdóttir, og hafa þær undirbúið
sig kappsamlega. Rúnar sagði
Guðrúnu Á til dæmis hafa borðað
hákarl og hvitlauksblandað
þorskalýsi i morgunverð á
keppnisdaginn. Það mætti þvi
búast við mikilli keppni.
Norðurlandaráð:
VANDRÆÐI VEGNA
TÍSKUSÝNINGA
Frá Helgu Athúrsdóttur,
fréttarritara aðalblaösins á
Norðurlandaráðsþinginu I Kaup-
mannahöfn:
Aðalumræðuefnið á fundi
undirbúningsnefndar
Norðurlandaráðsþingsins i gær,
var hið Ur sér gengna form
umræðnanna. Jens Kagerup ,
formaður nefndarinnar, sagði við
fréttamenn að þingið i núverandi
mynd væri „móðgun viö eðli
mannsins”, og hann sæi framá
neyðarástand ef þvi yrði ekki
breytt.
Astæðuna fyrir hinum harðorðu
yfirlýsingum formannsins, er
eflaust að finna i þeirri staðreynd
að öllum fundum nema tveimur á
þinginu hefur verið aflýst vegna
þess að engir þingmenn hafa séð
sér fært að mæta á fundartimum.
Þau tvö mál sem tókst að
afgreiða voru risnugreiðslur til
þingfulltrúa, og tillaga um aukin
veisluhöld i tengslum við þingið.
Það hefur vakið nokkra athygli
danskra fjölmiðla, að fjölmargir
þingfulltrUa hafa sést á alþjóð-
legu tískusýningunni á Bella
Center, sem fer fram á svipuðum
tima og Norðurlandaráðsþingið.
Hefur verið leitt aö þvi getum að
þingmennirnir hafa stööugt auk-
inn áhuga á fatnaöi, og vefnaðar-
vöru. en aðrar skýringar hafa
ekki verið nefndar opinberlega.
Er það skoðun Jens Kagerup, for-
manns undirbUningsnefndarinn-
ar, að annaðhvort verði að fella
niður allar tiskusýningar i við-
komandi borg, meðan á þing-
timanum stendur, eða þá að opna
bar i þinghUsinu, og slá upp
nokkrum sýningum i öllum
fundarhléum. Er búist við að
þessar tillögur Kagerups fái góð-
an hljdmgrunn i þinginu.
Tveir NorðurlandaráðsfuIItrúar
aðstoða við uppsetningu tiskusýn-
ingar á SAS hótelinu I Kaup-
mannahöfn.