Helgarpósturinn - 31.07.1981, Blaðsíða 15
he/garposturinn Föstudagur 31. júlí 1981
15
Þorsteinn Bergsson.
byggöasafn njóti sin og kafni ekki
i hraðbrautum og blokkum eins
og mér sýnist að Arbæjarsafn
komi til með að gera.
Hitt er aftur á móti eðlilegt að
séu kringumstæður þannig að
hægt sé að halda húsi við í sinu
rétta umhverfi, sbr. Grjótaþorp-
ið, þá er það að sjálfsögðu besti
kosturinn.”
—EG
Maðurinn á bak við nafnið
Þorsteinn Bergsson
„FÓLKI
LÍÐUR
BETURí
TIMBUR-
Húsr?
segir Þorsteinn
Bergsson,
formaður
T orf usam takanna
Þorsteinn Bergsson, formaöur
Torfusamtakanna er 25 a'ra gam-
all Reykvikingur og stúdent frá
M.H. Undanfarin ár hefur Þor-
steinn eitthvað verið að dútla i
sagnfræði viö Háskólann en fé-
lagsstörf hafa löngum átt hug
hans ailan. Hann átti sæti i stjórn
Félagsstofnunar stúdenta um
nokkurra ára skeið, en á s.l. vetri
sneri hann sér alfariö að Torfu-
samtökunum.
„Þaðeru næstum fjögur ár sið-
an ég gerðist meðlimur i Torfu-
samtökunum. Ég var i fyrstu
óbreyttur stjórnarmeðlimur áður
en ég var kjörinn einhverskonar
formaður samtakanna.”
— Hvaða áhugamál hefur þú?
„Það er eiginlega félagsmála-
stúss af ýmsu tagi og þá einkum
og sérilagi endurbygging gamalla
húsa. Við þetta áhugamál mitt
hef ég unniðhér ibænum, i Flatey
á Breiðafirði svo og á Eyrar-
bakka.
Þennan áhuga fékk ég þegar ég
ásamt systur minni keypti hús i
Flatey fyrir sjö árum siðan. Við
höfum verið að vinna að endur-
byggingu þess húss svo og fleiri
húsa i Flatey. Núna er aðalmálið
að reyna að ljúka við endurbygg-
ingu á bókhlöðunni i Flatey. En
það er elsta húsið á íslandi sem
hefur verið byggt yfir bókasafn.
— Er ekki dýrt að gera upp
gömul hús?
„Jú, ef þau hafa ekki notið eðli-
legs viðhalds i langan tima. Það
vill oft verða svo i þessu hraða
lifsgæðaþjöðfélagi okkar, þar
sem menn nánast hafa stokkið af
hestbaki í lúxuskerru. Þegar að
svo steinsteypuöldin gengur i
garð er eins og menn hafi misst
tilfinninguna fyrir timburhúsum
og gildi lifandi byggingarefnis.”
— Er einhver munur á að búa i
timbur- eða steinhúsi?
„Fólk hefur mismunandi skoð-
anir á þvi. En að minu mati er
hollara að búa i timburhúsi,
þ.e.a.s.innanum lifræntefni. Það
hefur mikið að segja varðandi
andlega og likamlega velliðan
fólks. í timburhúsi er andrúms-
loftið hreint og heilbrigt.
Burtséð frá þessu öllu þá gefa
timburhús fólki meiri möguleika
á að byggja og breyta iverustað
sinum að eigin vild. Timbriö gef-
ur miklu meiri möguleika á
breytingum en steinninn.”
— Ólst þú upp i steinhúsi?
,,Já,ég ólstupp isteyptri blokk.
Hún var með fyrstu blokkum sem
byggðar voru hér i Reykjavik.”
— Hvað hyggstu fyrir aö lokinni
uppbyggingu Torfunnar?
„Það er nú enginn kominn til
með að segja aðég verði eiliflega
á „grænu” torfunni. Það hefur
enn ekki faigist f jármagn til þess
að fullbyggja torfuna og veit ég
enn sem komið er ekkert hvernig
þeim málum lyktar. Ætli ég fari
ekki bara til útlanda og hafi það
gott þar i nokkur ár.”
— Ert þú á móti þvi að flytja
gömul hús og geyma þau á
byggðasafni, eins og t.d. Ar-
bæjarsafn?
„Nei, ekki i öllum tilfellum.
Sum hús eru þess eðlis að þau
hafa menningarsögulegt gildi og
þvi á að varðveita þau i sem upp-
runalegastrimynd. Oft er ómögu-
legt að endurbyggja þau á þeim
stað þar sem þau voru byggð
vegna nýs skipulags o.þv.l.
Þá hefur verið farið út i það að
safna sllkum húsum saman á einn
stað eins og upp i Arbæ. Aftur á
móti veröur að gæta þess að slikt
„Kannski fjölgar
skrautsfmum eitthvað”
NU geta allir keypt sér slmtæki
að eigin vali, óháð þeim simtækj-
um sem Póstur og Simibjóða upp
á. 20. júni sl. var allur innflutn-
ingur á simtækjum gefinnfrjáls.
Þorvarður Jónsson, hjá Pósti og
Síma sagði að allir þeir sem hug
hefðu á að kaupa sér aðrar gerðir
en þær sem þeir hafa á boðstólum
skyldu kynna sér vandlega reglu-
gerðina um innflutning á sim-
tækjum.
„Þau þurfa”, sagði Þorvarður,
„aö uppfylla ákveðin skilyrði,
sem er vissara fyrir notendur að
kynna sér áður en keypt er”. Að-
spurður aðþvihvaða skilyrði það
væru sagði Þorvarður, að hafa
verðii'huga m.á. að simtækið geti
rofið straum, að það sé með sama
styrkleika og styrkleikinn á jarð-
strengnum hérna, einnig þarf
næmnin að vera i lagi og sendi-
orkan. Ennfremur bakheyrslan
þ.e.a.s. röddin má ekki kastast til
baka þannig að sá sem tali heyri
ekki i viðmælandanum o.s.frv.
Það er semsagt margt að athuga
áður en sfmtækiðer keypt. Ef fólk
fer erlendis og kemur heim með
sima þarf það að afhenda Póst og
simamálastofnuninni hann til
prófunar.
Það fást 6 gerðir af simtækjum
hjá Pósti og sima og sagði Þor-
varður þetta vera bæði vönduð og
ódýr tæki. „011 okkar tæki upp-
fylla hæstu gæðakröfur þau eru
bæöi sterk og endingargóð”.
„Tækin sem fást hjá þeim kosta
frá kr. 320 upp i kr. 1200 fyrir
utan söluskatt. Þorvaröur
sagðist persónulega ekki hafa trú
á að fólk muni frekar kjósa að
kaupa önnur simtæki en þeirra,
þau væru einfaldlega það góð. -
„En auðvitað verður einhver
fjölgun á skrautslmum en trúað
gæti ég þvi að þau verði dýrari en
þau sem við höfum upp á að
bjóða. En þetta veröur timinn að
leiða I ljós, enn er ekki komin nein
reynsla á þetta”, sagði Þorvarður
að lokum.
EG.
Vid verðum tilbúnir með bflinn,
þegar þið komið!
ÍSLANDSREISA
íslandsreisur Flugleiða eru sumarleYlisíerðir
innanlands fyrir íslendinga. Nútíma íerða-
móti. Flogið er til aðaldlangastaðar og íerða-
mannaþjónusta notuð, rétt eins og þegar
farið er til útlanda.
NÚTÍMA FERÐAMÁTI
íslandsreisur Fugleiða gera ráð fyrir því að þú
og fjölskylda þín geti tileinkað sér nýtískulega
íerðahœtti hér innanlands - eins og íerðafólk
gerir á íerðum sínum erlendis. Þess vegna
gerir Reisupassinn þér mögulegt að
að fljúga á ákvörðunarstað, en þar
tekurðu við hreinum og fínum
bílaleigubíl. sem þú hefur til
fullra afnota á mjög hag-
stœðu verði. Það er óneit-
anlega þœgilegra en að
flengjast langar leiðir á
misjöínum vegum á eigin
ba.
REISUPASSINN
Flugmiðinn í íslandsreisumar nefnist Reisu-
passi. Hann veitir eiganda sínum aðgang að
ýmis konar þjónustu á sérstöku verði. Reisu-
passa er hœgt að kaupa til Akureyrar, Egils-
staða, Homafjarðar, Húsavíkur, ísafjarðar,
Sauðárkróks, Reykjavíkur og Vestmannaeyja.
Ef millilenda þarí í Reykjavík er geíinn 50%
aísláttur aí fargjaldi þangað.
DVALARTÍMI
Lágmarksdvöl í íslandsreisu er 4 dagar, nema
Reykjavíkþarsemlágmarksdvöl er ó
dagar. Hámarksdvöl er aítur á
móti 30 dagar í öllum tilfellum,
gildistíminn er til l.október
nœstkomandi.
(Gsnm
FLUGLEIÐIR
Traust iólkhjá góóu félagi
iTi
ÓSA