Helgarpósturinn - 13.11.1981, Blaðsíða 20

Helgarpósturinn - 13.11.1981, Blaðsíða 20
20 Föstudagur 13. Samtök til eflingar skapandi tónlist Ariö 1965 var stofnaður félagsskapur i Chicago er nefndur var Samtök til eflingar skapandi tónlist og er þekktastur undir skammstöfun- inni AACM. Helstur forvigis- maður þessara samtaka og fyrsti forsetivar Muhal Richard Abrams, pianistiog tónskáld en meðal félaganna eitthundrað hafa verið Anthony Braxton og liðsmenn Art Ensamble of Chicago og Air. Tönlist AACM er enginn einn sérstakur djass- skóli einsog margir hafa haldið, heldur hafa blómstrað innan samtakanna ólikar stefnur skapandi tónlistar og einsog Abrams segir á einum stað: „Kallirðu Art Ensamble tónlist- ina AACM tónlist ertu að skipa fjölda manna á bás þarsem þeir eiga ekki heima. Slikt er ekki hægt! 1 Fálkanum er einstaklega gott ilrval af tónlist AACM félaga, sérilagi þeirra úr Art Ensamble arminum, og er ég viss um að ekki er betra úrval þessarar tónlistar I sambæri- legum verslunum erlendis. Þetta furðar engan, sem þekkir ást Asmundar Jónssonar fyrrum verslunarstjóra Lauga- vegsverslunarinnar á AACM mönnum. Ýmsar af fyrstu upptökum AACM manna má ,fá i Fálk- anum ss. Song For (Delmark 410) með saxistanum Joseph Jarman, Number 1& 2(Nessa 1) með trompetleikaranum Lester Bowieog Congliptious (Nessa 2) með Art Ensamble saxistans RoscoeMitdiells. Skifur Bowies og Mitchells verða að teljast fyrstu skífur Art Ensamble of Chicago, þótt það nafn hafi ekki komið til fyrren siðar og slag- verksmeistarinn Don Moye slegist ekki I hópinn fyrren 1970. Hinir voru þar: Bowie, Mitchell,, Jarman og bassa- leikarinn Malachi Favors. Það fást engar skifur með þvi ensambli nú eftir sjötiu en von er á hinum rómuðu ECM skifum þeirra bráðlega. Einn frumlegasti djassleikari okkar tima er saxafón og klari- nettistinn og tónskaáldið Anthony Braxton. Enginn djassmaður hefur handleikið marsa og sirkustónlist jafn undursamlega og hann og hann er oft magnaður hljóðfæraleik- ari hvort sem hann þræðir öng- stræti milli troðinna slóða, eins- og á In The Tradition, eða er frjáls sem fuglinn. Ein herleg dúóplata fæst nú með honum: Birth And Rebirth (Black Saint 0024) þar sem hann er I kompanii með meistaratrymbl- inum Max Roach. Upptakan er frá 1978. Braxton hefur sam® mikið i evrópskum stll og það hefur fyrsti forseti AACM, Muhal Richard Abrams, lika gert. Skifa hans Spihumonesty (Black Saint 0032) er samin i þessum frjóa svartevrópska stil, sem hæst hefur náð hjá þeim Abram & Braxtcn og Cecil Taylor & Cörlu Bley. Þetta er ekki óskyld tónlist þriðja straumi þeirra John Lewis og Gunther Schullers sem Mingus og Gunnar Reynir aðhylltust á stundum. Þó er munurinn sá að hjá þeim svartevrópsku rennur afrikaamerevrópa saman I eina heild, en hjá hinum varð alltaf eitthvert stilbrot, góðmálmarnir runnu aldrei alveg saman i deiglunni. Mörgum kann að finnast li'tið djassbragð af Spihumonesty, frekar en eitthvert nútimatón- skáldið hafi vélað þar um, en samspuni einsog Abrams, Roscoe Mitchell og trombónu- undrið George Lewis iðka á elgarpásturinn Td M>rainS MU^*icYla fyrsta verkinu: Triverse, verður ekki spunnið nema djassræturnar liggi djúpt. Abrams kann lika manna best skil á fortiðinni sbr. Maple Lea Rag dúó þeirra Braxtons. Annað verk plötunnar: Inneroutersight er skrifað fyrir söngkonuna Jay Clayton, sem fer á kostum i abstrakt og rýþimiskum leik. Unichange nefnist þriðja verkið, nokkuð braxtonlegt með góðri upphafs- sveiflu, þótt hún falli ekki að smekk þeirra sem telja vilja fjórða rétt i taktinn a la Basie. Lokaverkið er titilverkið og eru þar svuntuþeysarar og þeirra frændur allsráðandi og fellur mér það slst. Allt kemur þetta aðsjálfsögðu Ur penna Abrams. Fleira gottfrá AACM má'fá I Fálkanum. Hljómsveitin Air fer á kostum I Air Lore 'X (sem fjallað hefur verið um i þessum pistl- um) en þar leita þeir á vit Joplins og Jelly Roll. Josep Jarman á trióplötu með Don * ” Moye og suðurafriska bassa- leikaranum Johnny Dyani: Black Paladius (Black Saint 0042) og aðra: The Magic Triangle (Blacksaint 0038) þar sem góðvinur okkar pianistinn Don Pullen leysir Dyani af hólmi. Báðar teknar upp 1979. Svo eru það yngri mennirnir. Trómbónistinn George Lewis með Shadow Graph og trompet- leikarinn LeoSmith með Divine Love. þarsem hann Bowie og Kenny Wheeler blása eitt glymjandi glimrandi trompet- trió. Lemgur skal ekki talið, en áhugamönnum um djass bent á að kynna séreitthvað af verkum AACM félaga, þó ekki væri nema til að hafa smá nasasjón af þvi sem nú er að gerast I djassheiminum. Ferskur straumur að norðan Um mánaðamótin opnaði sýn- ing á verkum Arnar Inga á Kjarvalsstöðum. Þetta er önnur einkasýning listamannsins i Reykjavík, en örn Ingi er bú- settur á Akureyri, þar sem hann hefur sýnt reglulega, allt frá 1973. Þá hefur hann tekið þátt i fjölmörgum samsýningum og kynnt list slna um landið vltt og breitt. Það sem einkennir þessa sýn- ingu fyrst og fremst, er sú grundvallarbreyting sem oröin er á listsköpun Arnar Inga. Það er ekki tæknin einungis, sem er önnur, heldur hugmyndin sem liggur að baki hverju verki. Fyrri verk Arnar voru bundin við ljóðræna og jafnvel nokkuð rómantiska landslagsmálun. Nú hefur hann lagt pensilinn á hill- una og horfið frá málverkinu til myndverksins. Þessi nýju verk eru unnin i margvísleg efni og eru þar ljós- myndir og smáhlutir áberandi. Flest verkin hanga á veggjum sem myndir, en nokkur eru fri- standandi og eru þvi mörkin milli skúlptúrs og veggmyndar næsta óglögg. 011 samsetning verkanna er mjög fagmannleg. Yfir þeim er fágaður blær handverksmanns, jafnvel munaður, þvi Orn Ingi sparar ekki við sig efniskostnað til aö tryggja skýra framsetn- ingu. Reyndar gerir hann sér vel grein fyrir mikilvægi hand- bragðsins, því segja má að verkin standi og falli með þvl. Þau eru greinilega conceptuels eölis og gætu þvi hæglega flokk- ast undir hugmyndalist eöa ný- list. Þó er greinilegur munur á myndverkum Arnar Inga og þeirri hugmyndalist sem Reyk- víkingar hafa átt að venjast hingað til. Þessi munur byggist á ólikum grundvallarforsendum. Hug- myndalist eða concept-Iist hverfist um sjálfa sig og hugtök þau sem lúta aö list. örn Ingi beinir hugmyndum sinum út fyrir hugtakið „list”, I flestum tilfellum og skapar þeim þjóð- félagslega umgjörð. Verk hans miða ekki að þvi að vikka út mengi sjónlistar, heldur breyta bókmenntalegum upplýsingum I myndmál. Þau nálgast það að vera myndgerðar dæmisögur, jafnvel táknmyndir eða allegór- iur, sem lesa má úr með þvi að , JÞað er sterkur hugleiðingatónn I myndverkum Arnar Inga,” segir Halldór Björn Runólfsson i um- sögn um sýningu Arnar á Kjar- valsstöðum. dvelja nógu lengi framan við verkið. Einnig hjálpa nöfn verk- anna til að koma áhorfendum á sporðið. Þannig er sterkur hugleið- ingatónn I myndverkum Arnar Inga, sem færa þau nær þeim anga popp-listar, sem lýtur að þjóðfélagslegri sklrskotun. Má I þessu sambandi benda á Cale- forniu-manninn Edward Kien- holz, sem eins og örn Ingi er sérstæður, ekki einungis sem myndlistarmaður heldur og vegna landfræðilegrar búsetu. örn Ingi er þó langt frá þvi að vera jafn bitur og Kienholz. Myndir hans eru miklu fremur góðlátlegt grin, I mesta lagi háðskar. Ef satt skal segja, dettur manni I hug Bruegel og sérstæður mannerismi hans, þegar litið er á sumar myndir Arnar. Þaö örlar ekki á neinum sterkum siðaboðskap,þótt siður og háttur samtiðarinnar sé listamanninum hugleikinn. Til þesser öm Ingi, raunar eins og hinn flæmski fyrirrennari hans, of mikill húmanisti. Sýning Arnar Inga sannar ótvirætt, að sérstæð og athyglis- verð list dafnar nú fyrir norðan og mættu Reykvikingar lita ögn upp úr eigin naflaskoðun, til að meðtaka strauma annars staðar frá. Manneskjur á bak við skeljar Alþýðuleikhúsið sýnir Elskaðu mig eftir Vitu And- ersen i þýðingu tJlfs Hjörvar. Að sýningunni standa: Amar Jóns- son, Bjarni Ingvarsson, Dóra Einarsdóttir, Eggert Þorleifs- son, Grétar Reynisson, Sigrún Valbergsdóttir og Tinna Gunn- laugsdóttir. Það er ekki ýkja langt siðan danska skáldkonan Vita And- ersen kvaddi sér fyrst hljdðs með ljóðabókinni Trygheds- narkomaner (isl. t klóm öryggisins, Lystræninginn 1979). Þessi bók vakti strax verðskuldaða athygliog höfund- urinn fylgdi vinsældunum eftir með stórmerku smásagnasafni Hdd kæft og vær smuk. Siðan hefur hún gefið út tvær ljóða- bækur jafnframt þvi sem hún skrifaði leikritið Elskaðu mig. Það sem einkennir verk Vitu fyrst og fremst er hreinskilni og hispursleysi, lýsingarnar eru umbúðalausar og beinskeyttar. Verkin fjalla um konur og þá örðugleika sem þær eiga við að glima kynferöis sins vegna. Vita skrifar mjög greinilega út frá eigin reynslu og umfjöllun hennar er einkar trúverðug. Hún gerir mikið úr dhrifum uppeldisins á konur og gagn- rýnir jafnt foreldra sem stofn- anir i' þeim efnum. Persónur hennar eru oft klofnar, hafa myndað um sig harða skel sem virðist þola mótlætið en undir skelinni kraumar manneskjan, óirugg, óhamingjusöm i þján- ingum si'num. Leikritið Elskaðu mig er að flestu leyti beint framhald af sögum og ljóðum höfundar, og kallaði reyndar fram ákveðið atriði úr þeim. 1 verkinu er greint frá tveimur persónum, þeim Maj og Tom. 1 fyrri hlut- anum segja þau sögu sina hvort I si'nu lagi, greina frá æsku og uppvexti, væntingum og von- brigðum. Þessi sundurtætta og brotakennda frásögn miðar öll aðþvfaðsýna hægfara myndun skeljarinnar sem einstak- lir^amir að lokum skýla sér á bak við. Þegar þau hittast slðan fyrst I einrúmi eru skeljarnar pottþéttar og viðkynning þeirra þvifölsk. Enhin eiginlega skap- gerð og heftar tilfinningar brjótast út um leið og þau Maj og Tom eru ekki lengur úti á hinum frjálsa mannveru- markaði heldur komin i sambýli sem krefst annarra gilda. Þá verður uppgjörið, kröftugt, mis- kunnarlaust og eyðileggjandi. Þau Maj og Tom hafa innst inni mikla þörf fyrir útrás til- finninga sinna og eru i raun að beiðast hins sama, Elskaðu mig! En þau eru einnig alls- endis ófær um að leiða tilfinn- ingar sinar á þá braut og þar koma tfl hin hefðarhelguðu hlut- verk sem þau hafa verið alin upp til að leBca. Hún er þrúguð af oki þvi sem vikublöðin og hugmyndaheimur þeirra leggur á hana. Hann er fastur i rullu hins sterka karlmanns sem aldrei lætur troða á sér. Ádeila Vitu Andersen er sterk og það er mjög greinUegt að hún leggur sig i lirna við að skilja og skil- greina tilfinningar sinna skjól- stæðinga, jafnt hans sem hennar. Það er alveg ljóst að Vita nær í þessu verki að segja meiningu sfna, en hins vegar nýtir hún möguleika leikhússins litið. Elskaðu mig er sem leikhúsverk harla frumstætt, fremur út- varpsle&rit en sviðsverk. Upp- setning Alþýðuleikhússins liður fyrir þetta sem eðlilegt er. Þeim hefur ekki tekist að skapa frá- sögninni þá umgerð sem hún e.t.v. þarfnast. Þó kemur ágæt- lega út aöláta töna klarinettsins magna upp þau átök sem text- inn fdur i sér. A stundum voru þótónar þdrsem Eggertkreisti úr hljóðfærinu beinlinis óbæri- legir hljóðhimnum mlnum. Þau Tinna Gunnlaugsdóttir og Tinna og Arnar — tókst oft á tiðum stórvel upp og þá komu hinar tvi- skiptu persónur vel fram, segir Sigurður m.a. I umsögn sinni um sýningu Alþýðuleikhússins á verki Vitu Andersen, Elskaðu mig, sem hann segir þó ekki hafa tekist aðskapa rétta umgjörð. Arnar Jónsson leika þau Maj og Tom. Þeim tókst oft á tiðum stórvel upp og þá komu hinar tviskiptu persónur vd fram. t.a.m. í atriðinu á veitínga- staðnum. Tinnu gekk þetta þó sýnu betur. Atökin innra með Maj komu greinilega fram, hún var oft átakanleg i einsemd sinni en jafnframt styrk i upp- reisninni. Arnari gekk ekki eins vel að tengja milli uppvaxtar- sögunnar og hins mótaða full- orðna Toms. Þá varhann dnnig óöruggari en maður á að venjast frá hans hendi. Ég hafði ánægju af þessari sýningu.Hins vegar kannþar að spila inní að undanfarin ár hef ég verið handgenginn verkum Vitu og hafið hana yfir alla gagnrýni. Fyrir þá sem ekkert þekkja til verka Vitu á ég ekki annað ráð en að þeirgangi henni einnig á hönd; sýning Alþýðu- leikhússins gefur góða mynd af henni, og höfundareinkennum hennar. P.S.Sásem þettahamraðiá rit- vél var svo óheppinn að lenda I heldur laslegu sæti f Hafnarbiói (eflaust hefur það ekki skánað við það) og svo var um fleiri. Það getur hreinlega skemmt kvöldið fyrir leikhúsgestum að þurfa að veita drjúgum hluta einbeitingarinnar i að tolla i sliguðu sæti og þvi væri hollráð að senda þá laghentustu i hópnum til að lappa upp á verst förnu stólana.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.