Helgarpósturinn - 27.11.1981, Qupperneq 16
16
Föstudagur 27. nóvember 1981_Jie/gSrpÓSturínrL- helgSrpÓSturínn Föstudagur 27. nóvember 1981
\
mynð: Jim Smari
viOial: Guoiauyur Berymunðsson
Eg tivisia pví tkkl cinu
slnnl að kellinum"
Magnea J. Maiihíasdóiiir r Hdgarpósisvfðtaii
.........—
Magnea J. Matthíasdóttir rithöfundur
sendi fyrirskömmu frá sér nýja skáldsögu,
Sætir strákar, og erþaö þriðja saga hennar.
Þaö þykir oft viö hæfi aö tala viö höfunda,
þegar þannig stendur á, og ekkert endilega
um síöasta hugarfóstrið.
Þegar menn lesa texta eftir Magneu,
hvort sem það eru skáldsögurnar eða pistl-
ar hennar i þessu blaði, fær maður það
ósjálfrátt á tilfinninguna, aö hún sé kona
málgefin, svo auðveldlega virðist textinn
renna upp úr henni.
Magnea er því fyrst spurð að þessu, þar
sem við sitjum inni í stofu.
,,Ég held, að ég sé ekkert voðalega mál-
gefin, og þó, það getur verið.”
Eftir smá umhugsun, eins og stundum
| siöar:
,,Jú, það getur verið gaman að tala. Ég
hef gaman af þvi að segja sögur, hryllings-
j sögur úr daglega lifinu.”
— Hryllingssögur úr daglega lifinu?
Hvernig eru þær?
„Tildæmis.þaö kom ægilega vont veður i
haust, og ég var búin aö hengja þvott út á
snúrur. Ég var alltaf að lita út um gluggann
og vorkenna konunni, sem átti þvottinn, og
velti þvifyrirmér hvortég ættiekki að taka
hann inn fyrirhana.Ndtkrum dögum siðar
spuröi konan á efstu hæðinni dóttur mina
hvort mamma hennar ætti ekki þvottinn.
Ég held,að það sé mjög algengt i dagleg-
um samræöum fólks að skiptast á sögum,
um sjálft sig eða aðra.
Til skamms tima var ég ægilega feimin,
og þorði aldrei að segja neitt, en þá tók ég
sjálfa mig taki, og siðan hef ég kannski
kjaftað.”
— Enþú hefurekki bara gaman af þvi að
segja sögur munnlega?
,,Ég er alltaf að búa til sögur. Það er
mjög gaman að vera að vinna að einhverju
sérstöku. Þetta er ákaflega spes heimur,
sem maður lifir sig inn i.
Einhvem tfma var mér sagt, að þetta
væri lifsflótti. Það getur meira en verið, en
. þá er það ágætt að vera á flótta.”
! — Til hvers ertu að skrifa þessar sögur?
„Veistu það, ég veit það ekki. Að ein-
hverju leyti er það eflaust exhibitionismi,
aö sýna öðrum hvað ég er að gera og hugsa,
og aö sumu leyti er það peningagræðgi. Ég
hef voðalega gaman af þvi. Þetta er mikil
tjáning og útrás. Ég held, að þetta sé mjög
nauðsynlegt. Ég hef lika ægilega gaman af
að lesa. Þaðer kannski eitthvað f sambandi
við ritaö orö.”
Messías og móöirín
— Þú segir, aö það sé nauðsynlegt fyrir
þig að skrifa. Af hverju?
,,Ég held, að það þurfi allir einhvers kon-
ar tjáningu. Sumir setja allan sinn kraft í
vinnuna, húsverkin eða prjónaskapinn.
Ég held, að þetta sé nærtækt. Foreidrar
minireru bókafólk og mamma skrifar lika,
þannig að þetta lá beint við. Eins og ég
sagði áðan, var ég feimin, og það sem ég
gat ekki sagt fór á pappír. Þetta er lika
uppgjör við timabil ilifi minu og hugmynd-
ir, sem ég hef haft.
Ég er búin að vera að gera sögur frá því
að ég man eftir mér. Þetta er rikur þáttur í
minu lífi, og ég get ekki sagt af hverju.
Sjáifsagt hefur það eitthvað með stjörnuaf-
stöðuna að gera. Svo er náttúrlega alltaf
messiasarkoplexinn.”
— Hefurðu einn slikan?
„Annað hvort messiasar- eða móður-
komplex, ég veit ekki hvort er.”
— Eiga þessir komplexar eitthvað sam-
eiginlegt?
,,Já, að sjálfeögðu. Þetta með að bjarga
fólki frá sjálfu sér, bjarga heiminum og öll-
um, vernda fólk, sem á bágt og guð má vita
hvað. Að hugsa um alla vesalingana, sem
geta ekki hugsað um sig sjálfir.”
— Eins og þú sagðir áðan, er móðir þin
rithöfundur, hefur það haft áhrif á það, að
þú fórst aö skrifa?
„Auövitað hefur bað sitt að segja. Þegar
maður er vanur að sjá móöur sína við rit-
vélina, er það nærtækt. Þegar það er mikiö
af bókum ikringum mann.er nærtækara að
spá i þetta en aö fara aðmála. Annars þarf
það ekki að vera, en ég held samt, aö það
hafi þó nokkur áhrif.”
— Ef viö snúum okkur að skáldsögunum
þinum þrem, eiga þær eitthvað sameigin-
legt hvað varðar efni?
„Ja, þaö er þá helst það,að þar koma við
sogu utangarðsmenn, samfélagslegir
smælingjar, sem eru ekki viöurkenndir.
Það er útjaðarinn á þjóðfélaginu, hippar,
ungrónar, hommar, fólk, sem ekki er jafn
gjaldgengt og ungi lögfræðingurinn á
framabrautinni. Fólk, sem skapar pinlega
þögn i fjölskylduboðunum ef minnst er á
það.”
— Hvers vegna er þetta fólk þér hugleik-
ið?
„Meðal annars vegna þess,aðþað er ekki
viðurkennt. Það er manneskjur eins og
hvað annað fólk.
Sleggjudómar fara i taugarnar á mér. Að
afgreiða manneskju með þvi að segja t.d.,
aö hann sé hommifer i taugarnar á mér og
það er afstaða, sem þarf að breytpst. Mig
langar til að leggja eitthvað af mörkum til
að breyta þessari afstöðu, sýna fólki, aö við
erum öll mannleg, og hijfum öll okkar til-
finningar og hugmyndir.”
— Stafar þessi áhugi af messiasar-
komplexinum, sem þú minntistá áðan, eða
stafar hann af eigin reynslu?
Sumir slunóum aö
nalnínu lil
„Sjálfsagt hvoru tveggja. Þegar ég bjó i
Kaupmannahöfn, bjó ég i gömlu hverfi,
sem átti aö rifa. Þar bjuggu mellur, djönk-
ar, alkar, erlendir verkamenn, námsfólk,
sem hafði ekki efni á dýrara húsnæði og var
þetta mikil upplifun fyrir borgaralegan
stúdent af íslandi.Þarna sá maðurhliðar á
þjóðfélaginu, sem maður þekkti ekki, kom-
in úr vernduðu umhverfi hér heima. Mað-
ur vissi, að þetta var til, en það var bóka-
lærdómur. Maður hafði aldrei upplifað
þetta fólk fyrr en þarna. SiTian lifði ég dálit-
ið i útkantinum á samfélaginu, og það má
segja, að það sé reynsla þar.”
— Var þetta allt öðru visi en hér heima?
„Það var þessi agalegi idealismi. Haust-
ið, sem ég flyst til Kaupmannahafnar,
kemst Stina á laggimar, og þaö var búið að
ganga á ýmsu. Maður var vinstrisinnaöur
og líberal, auk þess að daöra við hippahug-
myndina. Þaöerufallegar hugsjónir, ást og
friður. Þaöer bara pirrandi, aö það er farið
að kalla okkur gömlu hippana.”
— Hvemig var lífið í Kaupmannahöfn á
þessum árum?
,,Við bjuggum inokkurs konar kollektivi f
ægilega litilli ibúð og það var stundum
þröngt. Stundum vorum við iskóla, sum að
nafninu til, og sumir unnu svolitið stundum.
Við gerðumst grænmetisætur vegna þess,
að það var ódýrara, og vegna þess, að allar
agressjónirnar, sem fylgdu kjötinu,sam-
ræmdust ekki hugsjóninni. Ég held, að við
höfum aðallega lifað frá degi til dags.”
— Var þetta spennandi lif?
„Já, já.”
Hún segir þetta nokkuö dræmt.
— Ekkert voðalega spennandi?
,,Ég held,að maður hafi ekkert pælt i þvi.
Það var spennandi að vera fyrir utan sam-
félagið. Ég held, að við höfum imyndað
okkur, að við værum fyrir utan það, en ég
áttaðimig áþvisiðar,að svo var ekki.”
— ???
„Tildæmis fengum við námslán, en við
vorum vissulega á útjaðrinum. Við vorum í
leiguhúsnæði, sem þýddi, að við þurftum að
borga einhverjum leigusala mánaöarlega,
við þurftum að kaupa oliu. Þaö er i raun
ekki hægt að segja, að maður sé utan sam-
félagsins nema maður sé i algerri einangr-
un og geti lifað af eigin vinnu, t.d. ræktað
landskika einhvers staðar.”
— Hvenær komstu að þessu?
„Ég komst að þessu löngu seinna. Mér
fannst ég vera algerlega li'bó, voðalega
frjáls.”
— Hafa hugmyndir þinar breyst frá
þessum árum?
„Sjálfsagt hafa þær gert það, en ekkert
að ráði, sem er furðulegt ef maður hugsar
út i það. Nú á ég krakka og börn verða aö
hafa visst öryggi. Það er erfitt að vera á
þvælingi með þau og vita ekkert hvar mað-
ur fær að éta. Maður getur boðið sjálfum
sér upp á margt, en ekki börnunum sin-
um.”
— Hefirðu gefist upp fyrir borgaralegu
samfélagi?
„Bæði og.”
Meira vill hún ekki tjá sig um það.
Viö jaröarlarir og brúöhaup
— Var erfitt að koma heim eftir veruna i
Kaupm annahöf n?
,,Þaö gekk tiltölulega sársaukalaust fyrir
sig. Ég var komin með voðalega heimþrá.
Ég er hrifin af tslandi og mér liður vel í
Reykjavi'k, og það hefur haft talsvert að.
segja i þessum heimflutningi. Maður er
smám saman að komast inn i kerfið, eitt
skref hér og annað þar.”
— Var eitthvað sérstakt sem pirraði þig
kannski?
„Það er mikið meira stress hér. Fólk hef-
ur svo lftinn tfma til samskipta. Það er að
keppast við að eignast hluti. Heilu fjöl-
skyldumar hittast ekki nema við stór-
atburði, eins og jarðarfarir og brúðkaup.
Maðurinn er metinn meira eftir þvi sem
hann vinnur meira. Þú ert ekki maður með
mönnura nema þú sért f tveim störfum í
einu og að byggja á nóttunni. Það er ekki
nýtur þjóðfélagsþegn nema sá, sem sefur
tvo tima á sólarhring. Þetta væri svo sem
gott og blessað, ef það væri eitthvert vit í
þvi. Viðsönkum að okkur hlutum, sem við
höfum ekkert við að gera og getum auð-
veldlega komist af án.”
— Nú ert þú sjálf að kaupa ibúð?
„Það er af illri nauðsyn, þvi að það er
ómögulegt að vera i leiguhúsnæði. Það er
svo mikið öryggisleysi, þvi að eigandinn
getur komið hvenær sem er og sagt þér upp
húsnæðinu. Maður er algerlega öryggislaus
og var réttlaus. Það hefur þó breyst til
batnaðar, en aðeins á pappirunum, ekki i
framkvæmd. Auk þess er erfitt að finna
leiguhúsnæði og það eru miklir peningar,
sem þarf að leggja fram . Það er alveg eins
gott að fara að kaupa eða byggja og borga
undir sjálfan sig.”
Andleg hreinsun
—■ Mig langar til aö fara aðeins aftur á
bak. Þú sagðir áðan, að bækur þinar væru
uppgjör. Geturðu sagt mér i hverju það er
fólgið?
„Nei, það get ég i rauninni ekki. Þaö eru
bæði hugmyndir og timabil i minu lifi.
Fyrsta bókin er uppgjör við Kaupmanna-
hafnarárin og hippahreyfinguna. Þetta er
einhvers konar andleg hreinsun, hlutir,
sem ég hef verið að hugsa um lengi og þurfa
hreinlega að komast á blað. Það eru svo
margir þættir, sem fléttast saman.”
— Ætlarðu að halda þessu uppgjöri
áfram?
„Það er ómögulegt að segja. Ég er ekki
forspá.”
— Á þetta við um allar bækurnar?
„Ekkert frekar. Ég fæ hugmynd út frá
einhverju, sem ég hef verið að velta fyrir
mér, og svo hleður það utan á sig. Það
koma persónur til sögunnar. Ég er lika að
segja sögu, lýsa fólki, en ég er ekki að
skrifa sjálfsævisögu. Uppgjörið kemur lika
við sögu, en ekki nauðsynlega. Þetta er svo
ógurlega margslungið. t raun og veru er ég
mest að skrifa af þvi að ég þarf að skrifa.
Mér liður illa ef ég get ekki skrifað.”
— Ertuað veröa borgaralegri i skrifun-
um?
„Það held ég ekki.”
— Mundirðu skrifa um ungu lögfræöing-
ana á framabrautinni, sem þú nefndir áð-
an?
„Þeir eru ekkert verra viðfangsefni en
hvað annaö. Meir að segja ungir lögfræö-
ingar á framabraut hafa tilfinningar, hug-
myndir og sögu. Ég hef voðalega gaman af
að spekúlera i fólki og það þurfa ekki aö
vera utangarðsmenn. Það er mjög borg-
aralegt fólk i Sætum strákum. Þar eru
þrjár útivinnandi konur; ein ógift, ein gift
og ein einstæð mdðir, og þar er lika mjög
borgaralegt skáld. Og reyndar fleira fólk,
sem er borgaralegt. Allt i bland.”
— Færþetta fólk þá sömu meðferð og ut-
an garðs menn irnir ?
„Já, já. Jafnrétti, jafnrétti.”
Public ennemies
— Það leiðir að hinni klassi'sku spurningu I
um það, sem efst er á baugi núna, um ]
kvennabaráttuna. Hvað finnst þér?
„Ég veit ekki. Mér finnst sjálfsagt, aðl
það riki jafnrétti alls staðar, að fólk gangi
jafnt til leiks, fái sömu laun fyrir sömu
vinnu,hvort sem þaöeru konur eða karlar,
svart, hvitteða gult, en það fer i minar fin-
ustu taugar, ef einhver vænir mig um að
vera aö skrifa kvennabókmenntir. Það er |
eitur I mi'num beinum.
Ef jafnrétti er takmark kvennabarátt-
unnar, nær hún þvi aldrei, þvi að hún ýtir I
undir misrétti kynjanna. Það er gott að
benda á misrétti þar sem það er, en mér |
finnst þetta svo heimskulegt. Kvennafram-
boð þarna, og konur skuli ganga fyrir i|
störf. Þarna er verið að ýta undir þennan
mismun kynjanna i staðinn fyrir að
grynnka á honum. Ég sé það þannig, að ég
bið bara eftir þvi, að Rauðsokkahreyfingin
setji mig ofarlega á iista yfir public |
ennemies. Samt var ég á stofníundi Rauð-
sokkahreyfingarinnar.”
— Varstu sömu skoöunar þá?
„Já, ég held að ég hafi haft þessar skoð-1
anir lengi. Ég er hlynnt jafnrétti, en mér
finnst þetta ekki vera jafnrétti. Ég er
hlynnt þvi, að konur stofni með sér samtök |
til að fá sömu laun og karlmenn fyrir sömu
vinnu, en mér finnst margt idjótiskt i
kvennabaráttunni. Mér finnst sjálfsagt, aö
hin ýmsu kvennamál hætti aö vera feimnis-
mál. Mér finnst sjálfsagt, að það komi
fram, að konur eigi sitt kynlif, en séu ekki
tilfinningalausar dúkkur. En það er erfitt
að finna þennan gullna meðalveg, eins og
viðar.
Ég vil ekki kvenréttindi eða karlréttindi,
heldur mannréttindi, að við fáum að vera
til og vera manneskjur, en ekki dæmd eftir
einhverjum fyrirfram ákveðnum skala.”
SósíalrealísKur bömmer
— Hvað er þér efst i huga þessa stund-
ina?
„Það er nú það. Náttúrlega þvotturinn,
sem ég á eftir að þvo, og þessi almennu |
blankheit. Ég veitekki, það er svona hitt og
þetta.”
— Ertu með nýja bók i smiðum?
„Já, já, og tvær frekar en eina, en ég er
ekki alveg meðá hreinuhvor verður ofan á.
Annarri byrjaði ég áfyrirlöngu,en sá fyrir,
að hún yrði einn sósialrealiski bömmerinn i
viðbót, og lagði hana á hilluna. En hún lofar
góðu núna. Hin er nýlegri.”
— Um hvað eru þær?
„Það segi ég ekki. Þú bara lest það, þeg-
ar þar að kemur. Ég hvisla þvi' ekki einu
sinni aö kettinum, enda er hún svo vitlaus,
að hún mundi ekki skilja það.”