Helgarpósturinn - 26.11.1982, Page 9
9
-P&sturinn
Föstudagur 26. nóvember 1982
meistaraverk, hvort sem litið er á
persónusköpun og tilfinninga-
ferli persónanna, byggingu
verksins eða texta.
Ennfremur fæ ég ekki betur
séð en þýðing Thors Vilhjálms-
sonar sé með afbrigðum vel gerð
og langt síðan maður hefur haft
jafn mikla unun af að hlusta á
leiktexta.
Fjórir og
hálfur tími
Til að leikstýra þessu verki hér
í Þjóðleikhúsinu er fenginn Am-
eríkumaður, Kent Paul, sem hef-
ur að sögn getið sér gott orð þar í
landi, einkum fyrir sviðsetningar
á verkum 0‘Neill. Ég get ekki að
því gert að mér finnst það hálf
undarleg ráðstöfun að fá út-
lending, sem ekki skilur baun í
íslensku,til að leikstýra verki sem
er jafn bundið texta og Dagleiðin
langa. Uppfærslan er að flestu
leyti hefðbundin, stofudrama þar
sem fólk kemur og fer og í sjálfu
sér allt gott um það að segja.
Hinsvegar er sýningin fremur
hæg og hefði gjarnan mátt vera í
henni meiri hraði á stundum.
Það er meiriháttar trú á
leikhúsgestum að ætla þeim að
sitja spenntir í fjóra og hálfan
tíma, þó að fullkomið meistara-
stykki sé á fjölunum. Ég trúi ekki
öðru en að unnt sé að stytta verk-
ið.með fullri virðingu og trúnaði
við 0‘Neill. En af sjálfu leiðir að
leikstjóri sem ekki kann íslensku
getur ekki unnið slíkt verk.
Ég veit ekki hvort hægt er að
ætlast til þess að leikarar geti
haldið sal í spennu í fjóra og hálf-
an tíma. Það útheimtir trúlega
meira þrek og magnaðri leik en
flestum leikurum er gefið. En þó
að meistaratilþrif sem til slíks
dygðu væru ekki á sviði
Þjóðleikhússins er ekki hægt að
segja annað en að leikararnir
stæðu sig mjög vel miðað við
gefnar forsendur, og meira en
það.
Þóra Friðriksdóttir leikur
móðurina og vinnur að mínu áliti
stóran leiksigur í þessu hlutverki.
Hún hefur fullkomið vald á per-
sónunni og sýnir snilldarlega þró-
un hennar meðan hún er að falla
fyrir eitrinu. Ég hef sjaldan séð
eins mikla nákvæmni í persónu-
sköpun. Það er ekki sérlega mik-
ill vandi að leika sjúklinga eða
brjálað fólk, en það er mikill
vandi að sýna stig af stigi hvernig
sjúkdómurinn eða brjálæðið nær
smám saman valdi á persónunni
þar til hún er að lokum sokkin
langt inn í sjálfa sig og fortíðina.
Arnar Jónsson leikur með
miklum ágætum eldri soninn og
sýnir á mjög sannfærandi hátt
yfirborðsmennsku hans sem er
einskonar bergmál innri tómleika
og heiftar sem stundum brýst upp
á yfirborðið. Persónusköpun
Arnars er heil og við skynjum
manngerðina í botn.
Rúrík Haraldsson leikur
föðurinn. Það er margt mjög vel
gert í leik Rúríks og hann er jafn-
vel magnaður á köflum, einkan-
lega í samskiptum hans við
móðurina. Hinsvegar finnst mér
demoninn í föðurnum, djöfullinn
sem í honum býr og snýr einkum
að bræðrunum, ekki vera nógu
skýr og þessvegna verður spenn-
an milli feðganna ekki nógu
mikil.
En það stafar einnig af því að
yngri bróðirinn, Edmund, sem
Júlíus Hjörleifsson leikur, er ekki
heldur nógu sterk persóna á
sviðinu. Reyndar er týpan sem
Júlíus býr til ágæt og leikur hans
samkvæmur sjálfum sér út alla
sýninguna en hana skortir meiri
dýpt, sem varla er hægt að ætlast
til af jafn ungum og óreyndum
leikara.
Það er því nokkuð ósamræmi
milli leiks Þóru og Arnars annars-
vegar og Rúriks og Júlíusar, sem
sýningin þolir illa.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
leikur hressilega eins og hennar
er vandi, lítið aukahlutverk þjón-
ustustúlkunnar á heimilinu.
En þrátt fyrir allt er hér á ferð-
inni mögnuð sýning á meistara-
verki sem Þjóðleikhúsið á þakkir
skildar fyrir að setja á svið.
Rétt er að taka fram að leikrit-
ið var áður sýnt í Þjóðleikhúsinu
árið 1959 undir nafninu Húmar
hægt að kveldi. G.Ást
Allt á sínum stað
Þorsteinn frá Hamri: SPJÓTA-
LÖG Á SPEGIL (l.ióð).
Iðunn Rvík 1982.
A sjöunda áratugnum var Þor-
steinn frá Hamri eitt atkvæða- og
afkastamest íslenskra ljóðskálda
og vann sér þá hylli allra ljóð-
unnenda. Hafa margir okkar
jafnan síðan sett hann einna
næstan hjarta sér þá tal hefur bor-
ist að góðskáldum. Með áttunda
áratugnum tók hann að fara sér
miklu hægar á þessari braut og
naumast var nokkuð eftir nema
innsti kjarninn. Svipuð eru
vinnubrögð Þorsteins: þegar upp
er staðið er öngu orði ofaukið,
allt á sínum stað.
Ef grannt er skoðað held ég
þó tvennt sé með nýjum hætti í
Spjótalögum á spegii - séð í ljósi
fyrri bókanna. Annað er hálfkær-
ingur sem minnir meira á róman-
tískt háð en önnur stílbrögð, og
mér finnst í fljótu bragði ekki
hafa verið jafnáleitinn áður. Hitt
hefur nú um skeið látið fimm ár
milli bóka. Ekki verða afköstin
heldur talin mikil í blaðsíðum
mæld: að þessu sinni 45 smáljóð -
og þó þremur færri, því j afnmarg-
ar eru þýðingar á Ijóðum þýska
skáldsins Hermann Hesse.
Þessi fjörutíuogtvö frumortu
ljóð koma til okkar líkt og staðfest-
ing þess sem áður var orðið. Enn
er ort um svipuð efni, ræturnar
hinar sömu í miðaldakveðskap
okkar og sögu, líkingarnar oft
kunnuglegar úr fyrri bókum (hér
er t.a.m. ort um veðrið með lík-
um hætti og fyrr) - en listatökin
líka söm og fyrr, ef ekki fágaðri.
Mér kemur raunar oft í hugann
lýsing Halldórs Laxness á kveð-
skap Jóhanns Jónssonar þegar ég
les nýleg ljóð Þorsteins. Halldór
talaði um að Jóhann hefði sífellt
verið að bleðja ljóð sín þangað til
er beisk sjálfsásökun, sem m.a.
birtist í þessari mynd í því kvæði
bókarinnar sem skýrir heiti henn-
ar: „Samvizka - / sál mín herðir /
spjótalög í spegil.“ Þessu til árétt-
ingar er á kápu bókar mynd af
höfundinum þar sem hann spegl-
ar sig í brotnum spegli.
Það hefur lengi þótt góð latína
skáldum að draga í efa mátt
ljóðsins. Þetta hefur Þorsteinn
tekið undir áður, og nú skerst
hann ekki heldur úr leik: „Vér
lögðum á brattann // Sól gekk
undir/ við sefafjöll // Á brast
orðahríð //Vér lifum og nögum /
ljóðkjúkuna" (Rúnarista) - og í
sama anda talar dísin (í sam-
nefndu ljóði) um dvergaskipin
sem henni finnst hún sjá „sundr-
uð í naustum" og bætir við, máski
fyrir munn höfundar síns: „og sú
er römmust raunin.“
Þorsteinn
frá Hamri -
hafðu öngvar
áhyggjur, ég
er hér enn.
Allt um þetta er þó einhverja
von að finna nú sem fyrr:
„Draumasmiðurinn dýri býr / í
steini, / á steininum heldur /
höndin ein.“ - Eða er það kann-
ski missýning bjartsýnismanns að
þessi hönd muni geta verndað
draumasmiðinn dýra?
Það hefur þegar margt verið
skrifað um skáldskap Þorsteins,
og meira verður það síðar.
Mönnum hefur þá gjarna orðið
tíðrætt um hinn sérkennilega
samruna ljóðhefðarinnar og
nútímaljóðs í kveðskap hans.
Enn er hann þar við sama
heygarðshorn - jafnvel feti nær
hefðinni nú en áður, en vel að
merkja aðeins í hinum ytri bún-
ingi, ekki í myndsmíð og mál-
notkun. Eitthvert álitlegasta ljóð
bókarinnar, Blikur, finnst mér
lýsa þessu vel: „Nú er kynlega /
nóttum varið. // Niða auðnir / í
fjarskans dul. // Hugurinn einsog
/aldarfarið / er að snúast / í
norðankul. // Þú sofnar ekki. //
Senn verður barið.“
Þetta er ekki bók mikilla nýj-
unga eða tímamóta á ferli Þor-
steins, en þetta er bókin sem
kemur til allra ljóðvina svo segj-
andi: Hafðu öngvar áhyggjur, ég
er hér enn. - Og ljóðvinir geta
gjarna svarað: Það er gott að vita,
því það hyggjum við að þú yrkir
betur en páfinn.
- HP
liíwin
★ ★ ★ ★
★ ★ ★
framúrskt
lágmt
randii
Bfóhöllinn:
Snákurinn ★ ★★
sjá umsögn í Listapósti.
Svörtu tígrisdýrin (Good Guys Wear Black).
Bandarísk. Argerð 1979. Leikstjóri: Ted Post.
Aðalhlutverk: Chuck Norris, Dana Andrews,
Jim Backus.
Væntanlega heilmikil hasarmynd, þvi Chuck
Norris er þekktur fyrir annað en rólegar vanda-
málamyndir. Áreiðanlega mikil slagsmái.
★ ★ ★
Atlantic City. Bandarísk. Árgerð 1981. Leik-
stjóri: Louis Malle. Aðalhlutverk: Burt Lanc-
aster, Susan Sarandon, Michel Piccoli.
★ ★★
Fram I sviðsljósið (Being There). Bandarísk,
árgerð 1981. Handrit Jerzy Kosinski, eftir
eiginskál sögu. Leikendur: Peter Sellers,
Melvyn Douglas, Shirley MacLaine. Leik-
stjórk Hal Ashby.
Dauðahelgi (Death Weekend). Bandarisk.
Leikendur: Don Stroud, Brenda Vaccaro.
Hryllingsmynd um morðóða þremenninga, sem
elta par.
Númer eitt (Number one). Bresk kvikmynd.
Leikendur: Gareth Hunt, Nlck Tate. Leik-
stjóri: Lindsay Shonteff.
Hörkugrin gert að James Bond og h'ans likum.
Góð skemmtun fyrir þunnildi og gellur.
Regnboginn:* *
Britannia Hospital. - sjá umsögn í Listapósti
★ ★ ★
Stórsöngkonan (Diva). Frönsk kvikmynd,
árgerð 1981. Handrit: J.-J. Beineix og J.V.
Hamme. Leikendur: Wilhelmina Wiggins
Fernandez, Fréderic Andrei, Richard
Bohringer, Thuy An Luu. Leikstjóri: Je-
an-Jacques Beineix.
Hörkuspennandi og Irábærlega vel gerð saka-
málamynd um ævintýri tónlistaróðs póst-
manns. Paradis frá upphafi til enda.
Sovésk kvikmyndavika:
Upphaf frækilegs ferils. Gerð eftir skáldverki
Tolstoj.
Leikstjóri: Sergej Gerasimov.
Söguleg mynd um Pétur mikla Rússlandskeis-
ara.
Ó iþróttir, þér eruð friður. Yfirlitsmynd um
Olympíuleikana í Moskvu 1980. Leikstjóri: Júri
Ozerov.
Hviti hundurinn Bim með svarta eyrað. Leik-
stjóri: Stanislavs Rostotski.
Mynd um hvolp, sem ekki er eins og aðrir hvolp-
ar. Myndin var útnefnd til Óskarsverðlauna fyrir
fjórum árum.
Hin heittelskaða Gavrilovs vélstjóra. Leik-
stjóri: Sergej Bodrov.
Ung kona bíður eftir unnusta sínum, en hann
lætur ekki sjá sig. Slæmt er það, þau áttu nefni-
lega að ganga í hjónaband. En öll él birtir upp
um síðir...
Nýja bfó:
Fimmta hæðin (The Fifth Floor). Bandarísk
kvikmynd, árgerð 1979. Handrit: Meyer Dol-
insky. Leikendur: Bo Hopkins, Dianne Hull,
Patti d’Arbanville. Leikstjóri: Howard Avedis.
Ung stúlka lendir inni á 5. hæð geðveikra-
hælis og á þar ekki sjö dagana sæla. Undan-
komuleiðin er erfið.
Laugarásbíó:
Bófastríðið (The Gangster Wars). Banda-
rísk kvikmynd, árgerð 1981. Leikendur: Mic-
hael Nouri, Brian Benben, Joe Penny, Ric-
hard Castellano. Leikstjóri: Richard Sar-
afian.
Lucky Luciano, Al Capone og aðrir góðir glæp-
amenn trölirfða myndlfletinum í blóðrauðu baði
og baráttu um völdin í myrkum undirheimum
stórborgarinnar. Sannsöguleg mynd.
Austurbæjarbíó: *
Private Benjamin (Óbreytti soldátinn Benja-
mín). Bandarisk kvikmynd, árgerð 1980.
Leikendur: Goldie Hawn, Eileen Brennan.
Stelpa fer i herinn og lendir í ævintýrum. Fynd-
num sumum, ófyndnum öðrum.
Tónabíó: **
Dýragarðsbörnin. (Christiane F.). Þýsk kvik-
mynd, með ensku taii, árgerð 1981.
Leikendur: Natja Brunkhorst, Thomas
Haustein. Leikstjóri: Ulrich Edel.
Myndin er i lengra lagi og vonin, sem oft kviknar
í bókinni, verkar ekki jafn sterkt i myndinni. En
vafalaust er þetta allt umhugsunarvert.
Lögberg:
Á föstudag kl. 19 verða sýndar tvær spænskar
myndir í stofu 103. Myndirnar eru sýndar á
vegum spænska sendiráðsins á Islandi í sam-
vinnu við spænskudeild háskólans. Þær heita
Placido eftir Luis G. Berlanga og La Cabina
eftir A. Mercero. Myndirnar eru sýndar með
spænsku tali.
Fjalakötturinn:
Laugardagur:
Roots, Rock, Reggae. Rokkmynd frá Jama-
ica, þar sem reynt er að gefa fólki innsýn í það
umhverfi, sem reggae-tónlistin er sprottin úr.
Sýnd kl. 15 og 17.
Sunnudagur:
Kl. 17: Ameriski frændinn (Mon oncle d’Am-
erique). Frönsk, árgerð 1980. Leikendur:
Gérard Depardieu, Nicole Garcia, Roger Pi-
erre. Leikstjóri: Alain Resnais.
Verðlaunamynd eftir hinn frábæra franska leik-
sfjóra. Mynd sem allir verða að sjá.
Kl. 19: Leyndardómur líffæranna eftir þann
júgóslavneska Dusan Makavejev (Sweet Mo-
vie og Montenegro).
★ ★ jgÓð
★ þolanleg
0 léleg
Stjörnubfó * *
Nágrannarnir (Neighbors) Bandarisk. Árgerð
1981. Handrit: Larry Gelbart, eftir skáldsögu
Thomas Berger. Leikstjóri: John G. Avildsen.
Aðalhlutverk: John Belushi, Dan Aykroyd,
Cathy Moriarty, Kathryn Walker.
. Amerískur absúrdismi þessarar myndar er
farsakennt tilbrigði við einskonar Harold Pint-
er-hremmingu. Millistéttarhjónum (Belushi og
Walker) hrútleiðist yfir sjálfum sér og sjónvarpinu
sínu á föstudagskvöldi uns öllu „gildismati" er um-
turnað við komu nýrra nágranna (Aykroyd og
Moriarty). Það er oft ansi gaman að þessu rugli,
einkum umhverlis Belushi heitinn, sem má þakka
forsjóninni (eða einhverju) fyrir að þetta varð hans
síðasta mynd en ekki Rannsóknarblaðamaðurinn
sem Laugarásbíó sýndi fyrir skömmu. Fyrir utan
Belushi og lunknar efnisforsendur myndarinnar
vantar dálítiö ugpá að hún sé fullnægjandi. Hún er
á of hægri ferð og hún er líka of grunn og ódýr í
restina.
★ ★ ★
A: Byssurnar frá Navarone. (The Guns of
Navarone). Bresk mynd. Leikendur: Greg-
ory Peck, Anthony Quinn, David Niven.
Leikstjóri: J. Lee Thompson.
Með betri spennumyndum. Hefur litið elst. Góð
skemmtun fyrir alla.
★ ★
9: Leynilögreglumaðurinn (The Cheap Det-
ective). Bandarísk, árgerð 1979. Handrit:
Neil Simon. Leikendur: Peter Falk, Ann-
Margret. Leikstjóri: Robert Moore.
Stólpagrín að gömlu góðu löggumyndunum.
Gaman. kl. 5 og 11.
Háskólabíó:
Elskhugi Lady Chatterley. (Lady
Chatterley’s Lover) Bresk/frönsk. Ár-
gerð 1979. Leikstjóri Just Jackin. Að-
alhlutverk: Sylvla Kristel, Nicholas
Clay.
Mynd eftir hinni heimsfrægu sögu D.H.
Lawrence um hjónaband lafðinnar, um
stríðið og áhrif þess á hjónabandið og
síðast en ekki sist um ástir lafðinnar og
elskhugans. Just Jackin og Sylvia Kristel
eru fólkið á bak við Emmanuelle-
myndirnar og þessi mynd er í þeim stfl.
Bíóbær:
Einvígið (Harry’s War). Bandarisk. Árgerð
1981. Aðalhlutverk: Edward Herrmann, Ger-
aldine Page.
Grinmynd um styrjarldarbasl í anda sjónvarp-
sþáttanna MASH.
Á rúmstokknum (What the Swedish Butler
Saw). Bandarísk kvikmynd. Leikendur: Ole
Söltoft, Sue Longhurst, Malou Cartwright.
Þrívíddarkynlífskómedía á vetrarkvöldi. Gam-
alkunnir og gamalreyndir leikarar. Eitthvað fyrir
alla fjölskylduna. Sýnd kl. 11.15.
toillist
Kjarvalsstaöir:
Pólska tónskáldið og píanóleikarinn Zygmund
Krauze flytur fjöllistaverk fyrir kvikmynd, mynd-
vörpu og tónband á föstudag kl. 20.20.
Holtagar&ar:
Sinfóníuhljómsveit Islands heldur vinnustaðatón-
leika i dag, föstudag, kl. 11.30. Samvinnumenn
hlusta með öndina í hálsinum.
Gamla bíó:
Islenska hljómsveitin heldur tónleika á laugardag
kl. 14. Að þessu sinni verða tónleikarnir helgaðir
tónskaldinu Franz Joeph Haydn, en í ár eru liðin
200 ár frá fæðingu hans. Meðal annars verður flutt
verk, sem sex íslensk tónskáld hafa samið,
tilbrigði um stef eftir meistarann sjálfan. Guð-
mundur Emilsson stjórnar sveitinni.
Bústaðakirkja:
Nýja strengjasveitin heldur tónleika á mariudag kl.
20.30. Á efnisskránni eru verk eftir Snorra Sigfús
Birgisson (frumflutningur), Bach, Förster og Niels-
en. Einleikarar eru Helga Þórarinsdóttir víólu-
leikari og Joseph Ognibene hornleikari.
Hafharbíó:
Hörkutónleikar á föstudag kl. 22. Fjöldamargar
frægar sveitir leika: Trúðurinn, Hjörtur Geirsson,
Hin konunglega flugeldarokksveit, Jói á hakan-
um, Vonbrigði og Þeyr. Aðgangseyrir er 100 krón-
ur en félagsmenn Upp og ofan fá 20% afslátt.
Fjölmennið. Geimið stendur eitthvað fram yfir
miðnætti.
vidniríir
Kjarvalsstaðir
Samtökin Líf og land gangast fyrir ráðsiefnu um
„mann og vísindu” um helgina. Ráðstefnan hefst
á laugardag kl. 10.00 og verða þar flutt fjölmðrg
erindi. Mætum öll og sýnum samstöðu með lítil-
magnanum.
Norræna húsið
Samtök um kvennaathvarf efna til aðalfundar á
laugardag kl. 14. Allir áhugasamir menn og konur
vel-komin.
íbúasamtök
Þingholtanna:
Mætum öll á fundinn í Sóknarsalnum að Freyju-
götu 27 á mánudagskvöld kl. 20.30, þar sem rætt
verður um deiliskipulag einstakra reita, nýbygg-
ingar (Óðinsgötu 16) og umferðarmál. Fjörugur
fundur. Hinir og þessir úr stjóminni (ekki rikis-
stjórninni).
Vélsmiðjan Héðinn:
Nýjungar í rafsuðu verða kynntar í húsi Héðins að
Seljavegi 2 á laugardag og mánudag. Hér er um
að ræða kynningu átækjum fráfyrirtækinu ESAB.
Áhugamenn um rafsuðu eru hvattir til að fjöl-
menna.