Helgarpósturinn - 04.04.1985, Síða 14
Nyja bíó
Lokað í dag, 4. apríl
FRUMSVNIR
PÁSKAMYNDINA
1985
Skammdegi, spennandi og mögnuð ný, islensk kvikmynd frá Nýlt
líf s/f, kvikmyndafélaginu sem gerði hinar vinsælu gamanmyndir
„Nýtt l«f“ og „Dalalíf".
Skammdegi fjallar um dularfulla atburði á afskekktum sveitabæ
þegar myrk öfl leysast úr læðingi.
Aðalhlutverk:
Ragnheiður Arnardóttir.
María Sigurðardóttir,
Eggert Þorleifsson,
hallmar Sigurðsson,
Tómas Zoega og
Valur Gíslason.
Tónlist:
Lárus Grímsson.
Kvikmyndun:
Ari Kristinsson.
Framleiðandi:
Jón Hermannsson.
Leikstjóri:
Þráinn Bertelsson.
Sýnd í 4ra rása
□ ni OOLBYSTEPEO]
Sýnd:
Mánudaginn 8. apr., annan í páskum kl. 3, 5, 7 og 9.
Þriðjudaginn 9. apr. kl. 5, 7 og 9.
Miðvikudaginn 10. apr. kl. 5, 7 og 9.
SYNINGAR
Árbæjarsafn
er opið samkvæmt samkomulagi eins og
verið hefur. Upplýsingar eru veittar í síma
84412.
Ásgrímssafn
Bergstaðastræti 74
I Ásgrímssafni er skólasýning á myndum
Ásgríms Jónssonar sem lýsa lífi og starfi til
sveita. Nánari upplýsingar í síma 621550.
Safnið er opið almenningi á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum kl. 13.30—
16. Sýningin stendur til loka apríl.
Ásmundarsalur
Freyjugötu 41
Á sunnudaginn lýkur sýningu Filips W.
Frankssonar í Ásmundarsal á olíu- og akrýl-
myndum. Sýningin er opin daglega kl.
14-19.
Bæjar- og héraðsbókasafnið
Akranesi
Á skírdag, 4. apríl opnar Sigfús Halldórsson
málverkasýningu í bæjar- og héraðsbóka-
safninu á Ákranesi. Sýningin verður opin til
sunnudagsins 14. apríl. Opnunartímar verða
á helgidögum kl. 14 — 22 og aðra daga kl.
16—22. Lokað verður á föstudaginn langa.
Gallerí Borg
Pósthússtræti 9
Á morgun, skírdag, fimmtudaginn 4. apríl,
opnar Valgerður Hauksdóttir sýningu á graf-
íkmyndum og myndum unnum með bland-
aðri tækni í Gallerí Borg. Sýning Valgerðar
verður opin alla hátíðardagana kl. 14—18 og
frá 12—18 virka daga að loknum páskum og
stendur til 16. apríl. Þetta er fyrsta einkasýn-
ing Valgerðar.
Gallerí Háholt
Dalshrauni 9b, Hf.
Um sl. helgi opnaði Jón Gunnarsson list-
málari málverkasýningu sína í sýningarsaln-
um Háholti. Á sýningunni eru 82 verk, unnin
með olíu- og vatnslitum. Sýningin er opin kl.
14—22 daglega. Henni lýkur þann 14. apríl.
Myndirnar eru málaðar á síðustu 2—3 árum.
Gallerí Langbrók
Amtmannsstíg 1
Um sl. helgi opnaði Rúna — Sigrún Guð-
jónsdóttir — sýningu sína í Langbrók á
teikningum. Sýningin er opin virka daga kl.
12—18 en um bænadagana kl. 14—18 (að
föstudeginum undanskildum). Sýningin
stendur fram til 14. apríl.
Gallerí íslensk list
Vesturgötu 17
í Gallerfi Vesturgötu 17 sýnir Einar Þorláks-
son málverk. Sýningin stendur til 28. apríl
og er opin um bænadagana kl. 14—18.
Hafnarborg
Strandgötu 34
Sýningu systkinanna Jónu og Einars Más
Guðvarðarbarna í Hafnarborg, 2. hæð, á leir-
list og Ijósmyndum lýkur á laugardagskvöld,
6. apríl. Sýningin er opin daglega kl. 14—18.
Höggmyndasafn Ásmundar
Sveinssonar
við Sigtún
verður lokað fram í maí vegna framkvæmda
við safnhúsin.
Kjarvalsstaðir
við Miklatún
Nú standa yfir tvær sýningar á Kjarvalsstöð-
um. Annars vegar er afmælissýning Textíl-
félagsins og stendur hún í vestursal og
-gangi. Hins vegar er yfirlitssýning í Kjarvals-
sal á málverkum finnsku myndlistarkonunn-
ar Doru Jung. Sýningin verður opin alla
daga páskavikunnar frá kl. 14—22. Sýning-
unni lýkur þann 14. apríl.
Listasafn ASf
Grensásvegi 16
Á vegum Listasafns ASÍ er hingað komin
sýning á verkum gríska listamannsins
Fassianos. Á sýningunni eru 36 grafíkverk og
15 teikningar og eru allar myndirnar til sölu.
Sýningin er opin um bænadagana, virka
daga kl. 14—22 og um helgina kl. 14—22.
Sýningunni lýkur þann 14. apríl.
Listasafn Einars Jónssonar
við Njaröargötu
Safnið er opið laugardaga og sunnudaga kl.
13:30—16, sem og garðurinn, sem hefur að
geyma afsteypur af höggmyndum lista-
mannsins. Heill heimur útaf fyrir sig! Farið
bara, sjáið og sannfærist!
Listmunahúsið
Lækjargötu 2
í Listmunahúsinu við Lækjartorg stendur
yfir málverkasýning Sigurðar Þóris sem
hann nefnir Úr mannheimum. Sýningin er
opin yfir bænadagana, á virkum dögum kl.
10—18 og um helgina kl. 14—16.
Norræna húsið
Sýningunni í kjallara Norræna hússins,
Dönsk grafík, lýkur á annan dag páska,
mánudaginn 8. apríl. Þar sýna 49 listamenn
myndir sínar á vegum danska grafíkfélags-
ins Árhus Kunstforening en sýningin hefur
farið um Norðurlöndin. I anddyri og bóka-
safni hefur að undanförnu staðið yfir sýning-
in Kalevalahefð í klæðum og skarti og kemur
hún frá Finnlandi. Sýningunni lýkur þ. 12.
nk. Sýningarsalirnir eru opnir daglega kl.
14—19. Finnska sýningin er opin á venju-
bundnum opnunartíma.
Stofnun Árna Magnússonar
Sýning á handritum í Árnagarði er opin á
þriðjudögum, fimmtudögum og laugar
dögum kl. 14—16.
Þjóðminjasafnið *
við Hringbraut
í Bogasal eru til sýnis Ijósmyndir Péturs
Brynjólfssonar frá Reykjavík og nágrenni og
lýsa athafnalífinu á árunum 1902—1915.
S'''ningin stendur til lóka mánaðarins. Safn-
ið er opiö á þriðjudögum, fimmtudögum,
laugardögum og sunnudögum kl. 13.30—
16.
BÍÓIN
★ ★ ★ ★ framúrskarandi
★ ★ ★ ágæt
★ ★ góð
★ þolan|eg
O léleg
Stjörnubíó
I fylgsnum hjartans
(Places in the Heart)
★★★
Sjá umsögn í Listapósti.
Sýnd A-sal, kl. 5, 7, 9:05 og 11:10.
The Karate Kid
Sýnd í B-sal, kl. 4:50.
Háskólabíó
Vígvellir
(Killing Fields)
★★★
Sjá umsögn í Listapósti.
Sýnd kl. 5, 7:30 og 10.
Laugarásbíó
Engin sýning fyrr en annan dag páska.
Dune
Bandarísk. Árg. 1984. Gerð eftir bók Frank
Herbert. Leikstjóri George Lucas (Star
Wars). Aðalhlutverk: Max von Sydow, Jose
Ferrer, Francesca Annis, Sting. Þessi mynd
hefur verið kölluð heimspekirit vísinda-
kvikmynda.
Sýnd í A-sal á annan í páskum, kl. 5, 7:30 og
10.
Fyrst yfir strikið
Myndin er byggð á sannsögulegum atburð-
um um stúlku sem heillaðist af kappakstri
og gat sér gott orð á þeim vettvangi.
. Aðalhlutverk: Bonnie Bedelia og Beau Brid-
ges.
Sýnd á annan í páskum í B-sal, kl. 5,7, 9 og
11.
Glugginn á bakhliðinni
(Rear Window)
★★★★
Bandarísk. Árg. 1954. Handrit: John Micha-
el Hayes, eftir smásögu Cornell Woolrich.
Leikstjóri: Alfred Hitchcock. Aðalhlutverk:
James Stewart, Grace Kelly, Thelma Ritter,
Wendell Corey, Raymond Burr.
Rafmögnuð spenna frá upphafi til enda. Þeir
sem ekki áttu þess kost að sjá þessa úrvals
filmu verða bara að drífa í því.
Sýnd á annan dag páska kl. 5, 7:30 og 10.
Regnboginn
Feröin lil Indlands
(A Passage to India)
★★★
Bresk. Árgerð 1984. Handrit: David Lean.
Eftir skáldsögu E.M. Forsters. Tónlist: Maur-
ice Jarre. Kvikmyndataka: Ernest Day. Fram-
leiðendur: John Brabourne, Richard Good-
win. Leikstjórn og klipping: David Lean. Að-
alhlutverk: Peggy Ashcroft, Judy Davis,
James Fox, Alec Guinness, Nigel Havers,
Victor Benerjee o.fl.
„Þarna eru vissulega vel gerðar senur, góður
j leikur og hárnákvæm leikgerð... En þetta er
ekki nóg. Kvikmyndin er geysilega hæg í frá-
sögn... [ogj einhvern veginn verður þessi
blanda lítt spennandi". — IM.
Sýnd kl. 3, 6:05 og 9:15.
Kafteinn Klyde og félagar
(Kaptajn Klyde og hans venner vender til-
bage)
Dönsk. Árg. 1984. Leikstjóri: Jesper Klein.
Aðalhlutverk: Jesper Klein og Tom Mc-
Ewan. Farsi á danska vísu, vesgú!
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
Hvítir mávar
★★
Alíslensk, grínagtug mynd með háalvarlegu
ívafi, flippi og kannski sitthverju fleiru.
Sýnd kl. 3:05, 5:05, 7:05, 9:05 og 11:05.
Hótel New Hampshire
Bandarísk. Árg. 1983. Eftir metsölubók
John Irvings. Leikstjóri: Tony Richardson.
Aðalhlutverk: Nastassia Kinski, Judie
Foster, Beau Bridges.
Sýnd kl. 3:15, 7:15, 9:15 og 11:15.
ísfuglar
Dönsk. Árg. 1984. Leikstjóri: Sören Kragh
Jacobsen (Sjáðu sæta naflann minn,
j Gúmmí-Tarsan). Aðalhlutverk: Peter Hesse
Overgaard, Michael Ehlert Falch.
Þessi mynd er e.k. þroskasaga tveggja
drengja þótt þýðingin á nafninu gefi annars
tilefni til að halda að hér sé á ferðinni heim-
ildarmynd um kjúklingarækt hérlendis!
Sýnd kl. 3:10, 5:10, 7:15, 9:15 og 11:15.
Nýja bíó
Skuggaráðið
(The Star Chamber)
Bandarísk. Árg. 1983. Handrit: Roderick
Taylor ásamt leikstjóranum Pete Hyms (The
Telephone, The Capricorn, The Hunter).
Framleiðandi: Frank Yablans. Aðalhlutverk:
Michael Douglas, Hal Holbrock o.fl.
Sýnd kl. 5, 7, og 9.
Skammdegi
Sjá nánar í Listapósti.
Sýnd á annan í páskum (8. apríl), kl. 3, 5, 7
og 9; 9. og 10. apríl kl. 5, 7 og 9.
Tónabíó
Safari 3000
Sýnd í dag, miðvikudag og á skírdag kl. 5,
7 og 9.
Sér grefur gröf
(Blood Simple)
Bandarísk. Árg. 1984. Handrit: Joel og Eth-
an Coen. Leikstjórn: Joel Coen. Framleið-
andi: Ethan Coen. Aðalhlutverk: John Getx,
Frances McDormand. Myndin var frumsýnd
í nóvember á síðasta ári og er ísland fjórða
sýningarlandið í röðinni.
Efni: Ung kona er óánægð í hjónabandi, eins
og gengur og gerist. Látum vera þótt hún
leiti á aðrar slóðir. Einn af starfsmönnum í
fyrirtæki ektamannsins verður fyrir valinu.
Sá kemst á snoðir um leynimakkið. Lausnin
er fólgin í því að ráða spæjara sem fær brátt
að munda pístóluna. Margt fer þó öðruvísi
en ætlað var...
Sýnd á annan í páskum kl. 5, 7, 9 og 11:10.
Bíóhöllin
2010
Bandarísk. Árg. 1985. Leikstjóri: Peter
Hyams. Aðalhlutverk: Roy Scheider, John
Lithgow, Helen Mirren, Keir Duella. Tækni-
brellur: Richard Edlund (Ghostbusters, Star
Wars). Byggð á sögu eftir Arthur C. Clarke.
Sýnd í sal 1, kl. 2:30, 5, 7:30 og 10.
Þrælfyndið fólk
(Funny People II)
Bandarísk brellumynd. James Ulys stendur
nú sem fyrr á bak við þessa mynd. Ætti að
falla að kvikincHslegum húmor landans.
Sýnd í sal 2, kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
Hvítir mávar
★★
Sýndísal 3, kl. 5, 7, 9 og 11.
Hrói Höttur
Teiknimynd frá Walt Disney verksmiðjunni.
Sýnd í sal 3, kl. 3.
Hot Dog
Leikstjóri: Péter Markie. Aðalhlutverk: David
Naughton, Patrick Reger, Tracy N. Smith,
Frank Koppola.
Sýnd í sal 4, kl. 5, 9 og 11.
Reuben, Reuben
★★
Sýnd í sal 4, kl. 7.
Sagan endalausa
(The Never Ending Story)
Sýnd í sal 4, kl. 3 og 5.
Austurbæjarbíó
Lögregluskólinn
(Police Academy)
Bandarísk. Árg. 1984. Aðalhlutverk: Steve
Guttenberg, Kim Cattrall.
Farsi. Óþarfi að gera efninu frekari skil.
Sýnd í sal 1, kl. 5, 7, 9 og 11.
Tarsan apabróðir
Greystoke — The Legend of Tarzan, Lord of
the Apes
★★★
Sýnd í sal 2, kl. 5, 7:30 og 10.
Frjálsar ástir
Fyrir lebba af báðum kynjum.
Sýnd í sal 3, kl. 5, 7, 9 og 11.
ísl. texti. Það gerir gæfumuninn!
TÓNLIST
Háskólabíó
Laugardaginn 6. apríl verða haldnir tónleikar
í Háskólabíói á vegum N.O.D. '85 á íslandi.
Yfirskrift þeirra verður: Tónleikar gegn Ap-
artheit. Fram koma: Bubbi Morthens, Með
nöktum, Oxmá, Magnús Þór Sigmundsson,
Guðmundur Ingólfsson. Tónleikarnir hefjast
kl. 15.
Miðasala verður í skólum, hljómplötuversl-
unum og við innganginn. Miðaverð 350-
LEIKLIST
Bæjarbíó
Hafnarfirði
Leikfélag Hafnarfjarðar flytur söngleikinn
Rokkhjartað slær laugardaginn 6. apríl og á
annan í páskum, mánudaginn 8. apríl, kl.
20:30 í Bæjarbíói.
Leikfélag Akureyrar
Söngleikurinn Edit Piaf veröur á fjölunum
um páskahelgina sem hér segir: Miðviku-
dag, fimmtudag (skírdag) og mánudag (ann-
an í páskum). Sýningarnar hefjast kl. 20:30.
Alþýðuleikhúsið
Nýlistasafninu Vatnsstíg 3b
Sýningar Alþýðuleikhússins á Klassapíum
yfir páskahátíðina verða á skírdag, þ.e.
fimmtudaginn 4. og annan dag páska,
mánudaginn 8. apríl. Sýningarnar hefjast kl.
20:30. Miðapantanir eru í síma 14350.
VIÐBURÐIR
Kvennahúsið
Hótel Vík
Að þessu sinni ætla konur að sleppa laugar-
dagskaffinu í Kvennahúsinu um helgina.
14 HELGARPÓSTURINN