Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 17.10.1985, Qupperneq 24

Helgarpósturinn - 17.10.1985, Qupperneq 24
HHins og fram hefur komið í fréttum hefur helmingur ferðaskrif- stofunnar Útsýn verið seldur og er ætlunin að um áramótin verði fyrir- tækið gert að hlutafélagi. Kaupend- ur, samkvæmt fréttum, eru Þýsk- íslenska hf., Ómar Kristjánsson forstjóri Þýsk-íslenska, Magnús Gunnarsson framkvæmdastjóri VSI og Helgi Magnússon endur- skoðandi (Hafskips m.a.). Ýmsar vangaveltur hafa verið uppi um þetta mál. Við höfum heyrt, að raun- verulega líti þetta allt öðru vísi út og að það sé allt annar aðili, sem fjár- magni þessi kaup. Sá er sagður vera enginn annar en Asgeir Sigur- vinsson knattspyrnukappi með Stuttgart í Vestur-Þýskalandi. Þaðan séu peningarnir runnir, og kaupend- urnir, sumir eða allir, séu einungis skálkaskjól fyrir efnaðan knatt- spyrnumanninn. Inn í svona fjárfest- ingu spila svo ýmis atriði, eins og skattamál o.fl. Fyrir nokkrum árum var því haldið stíft fram, að Asgeir hefði lagt fjármuni í Broadway- ævintýri Ólafs Laufdal og ávaxtað sitt pund ríkulega í það skiptið.. . A A^^Arni Björnsson þjóðfræð- ingur og cand. mag. er kunnur að góðri kímnigáfu. Nú situr Arni í út- varpsráði fyrir Alþýðubandalagið. Þar er sjaldan talað af alvöruleysi, eins og flestum er kunnugt. Á dögun- um gerði Árni athugasemd við framkomu Atla Rúnars Halldórs- sonar fréttamanns í fréttatíma, þar sem Atla varð það á að flissa lítillega í samtali, sem hann og Kári Jónas- son fréttamaður áttu um stólaskipt- in í ríkisstjórninni. Niðrá útvarpi varð mönnum tíðrætt um hvort Árni hafi verið að stríða Atla Rún- ari, útvarpsráði og öðrum eða hvort hann hafi virkilega meint þetta al- varlega. . . A III W&nnars varð Atli Runar fyrir barðinu á annarri athugasemd á sama fundi vegna fréttaflutnings af sama máli. Nú var það Eiður Guðnason, sem taldi það óviðeig- andi athugasemd hjá Átla Rúnari að segja að Japansferð Matta Matt væri sennilega dýrasta Japansferð- in í sögunni. Athugasemdin er raun- ar ættuð frá sjálfstæðismanni, sem var að tala um misskilninginn fræga á milli Þorsteins Pálssonar, Stein- gríms Hermannssonar og Al- berts Guðmundssonar vegna 3% launahækkunarinnar, sem Albert „gaf" BSRB-mönnum án þess að bera undir ríkisstjórnarfund. Þetta hefði nefnilega varla gerst ef ekki hefði verið tekin ákvörðun um að leyfa Matta að vera ráðherrajsar til ferðinni um Austurlönd lyki. Á með- an reyndist Albert fullörlátur... l bæjarpólitíkinni á Akureyri er hins vegar að vænta stórfrétta hjá framsóknarmönnum. Þannig mun ljóst, að helsti vonarpeningur Fram- sóknar á Akureyri í mörg ár, Jón Sigurðarson nýráðinn forstjóri Iðnaðardeildar Sambandsins á Ak- ureyri, hyggst ekki hafa frekari af- 24 HELGARPÓSTURINN skipti af bæjarpólitík, en hann hefur setið sem varamaður. Af þessari ástæðu hefur því verið komið á framfæri, að Valur Arnþórsson kaupfélagsstjóri og stjórnarformað- ur SÍS telji, að tími sé kominn fyrir sig að fara aftur í bæjarstjórnina, m.a. með það í huga að koma aftur á „farsælu" samstarfi frammara og sjálfstæðismanna. Þannig myndi KEA-stjórinn verða í fyrsta sæti og hægri hönd hans hjá KEA, Sig- urður Jóhannesson, verða í öðru sæti. . . Wm ið höfum það fyrir satt þótt óstaðfest sé, að ýmsir framsóknar- menn knýi hart á um það, að Jón Helgason dómsmála- og landbún- aðarráðherra verði sviptur embætti dómsmálaráðherra og er einkum vitnað til slakrar frammistöðu Jóns í bjórmálinu og svo dómsmála sem hann mun hafa látið sitja á hakan- um. Bjórmálið er raunar talið vera pólitískt stórhættulegt fyrir Fram- sóknarflokkinn. Sömu heimildir herma, að Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra sé lík- legur til þess að taka dómsmálin að sér og Jón frá Seglbúðum verði lát- inn sitja eftir með landbúnaðinn. . . u ■ Hér er eitt stykki góð og já- kvæð frétt að austan: Eins og menn rekur eflaust minni til var þeim Páli presti á Bergþórshvoli og Eggert Haukdal ekki beinlínis vel til vina og lá við alvarlegum klofningi í sveitinni. Nú heyrum við hins vegar, að sættir hafi tekist með þeim grönnum og séu þeir hinir mestu mátar. . . J ^Hólasveinninn er kominn til byggða og farinn að útdeila gjöfum á báða bóga. Börnin bíða í röðum eftir að að þeim komi. En jólin eru í fyrra falli og þeim lýkur líka löngu fyrir tímann. Þeim er nefnilega lok- ið. Lauk í gær, miðvikudag fyrir há- degi. Þá lét Albert Guðmundsson af starfi fjármálaráðherra og getur því ekki lengur tínt djásnin upp úr ríkiskassanum. Síðasta vika hefur verið hreinasta kvöl og pína fyrir sjálfstæðismenn, ekki síst formann- inn, núverandi fjármálaráðherra, Þorstein Pálsson. Albert hefur stráð peningum á alla kanta þessa síðustu daga. Kristján Thorlacius fékk sitt, Slysavarnafélagið eitt skip fyrir þúsund kall og Kvennaathvarf- ið þær milljónir sem bráðvantaði. En hvað um alla hina? Sagan segir að smærri sem stærri hafi ekki farið í erindisleysu til Alberts undanfarna daga. Hann hafi tekið öllum fagn- andi sem til hans hafa leitað og hvers manns vanda viljað leysa. Þeir skipta víst tugum ef ekki hundruð- um sem Albert hafa sótt heim frá því að ákveðið var að hann færi úr fjár- málaráðherrastólnum og færri komist að en vilja, þótt ráðherra hafi lagt nótt við nýtan dag að taka á móti. En nú er veislunni lokið. Nú þarf Albert sjálfur að sníkja fjár- magn sem iðnaðarráðherra hjá hin- um nýja fjármálaráðherra. Það breytist margt á skömmum tíma. . . A Kvennaframboðinu fyrir norðan er ekki margt að frétta nema þá það, að almennt er talið, að þær myndu að líkindum ná inn ein- um bæjarfulltrúa í næstu kosning- um, en þær hafa nú tvo.. . Damir KUMMA GOTTAD META Ánægjuleg niðurstaða fyrir íslenska ostameistara og neytendur. Á mjólkurvörusýningu sem nýlega var haldin í Herning í Danmörku voru íslenskir ostar metnir ásamt dönskum ostum. Er skemmst frá því aö segja aö íslensku ostarnir gáfu þeim dönsku ekkert eftir, enda fengu þeir sambærilega meöaleinkunn í gæðamati dönsku sérfræöinganna, eöa rúmlega 11 af 15 mögulegum. Danir eru annálaðir fagmenn í ostagerð og því er útkoma íslensku ostanna mjög uppörvandi fyrir íslenska ostameistara. Hún er um leið skýring á því hvers vegna íslendingar hafa skipað sér á bekk meö mestu ostaneysluþjóðum heims. íslensku ostarnir sem fengu hæstu einkunn voru: Mysingur sem fékk 12,8 í einkunn. Framleiðandi er Mjólkursamlag KEA á Akureyri og ostameistari er Oddgeir Sigurjónsson. 45% Maribóostur sem fékk 12.5 í einkunn. Framleiðandi er Mjólkursamlag K.S. á Sauðár- króki og ostameistari er Haukur Pálsson. Smurostar frá Osta- og smjörsölunni sem fengu 12,5 í einkunn. Ostameistari er Guðmundur Geir Gunnarsson.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.