Helgarpósturinn - 27.03.1986, Síða 3
FYRST OG FREMST
SAGAN um lag Ólafs Hauks
Símonarsonar er fyrst og fremst
sorgarsaga. En ef grannt er skoð-
að, þá kemur í ljós, að á henni eru
bjartar og skondnar hliðar. Pegar
ljóst varð, að lagið hafði verið
leikið undir viðtali við Ólaf Hauk
Símonarson í RÚVAK virtist blasa
við, að dæma þyrfti lagið úr leik.
Símalínur fóru að glóa á milli .■
Akureyrar og Reykjavíkur, þegar
menn fóru að leita sannleikans.
Vitað var, að upptakan, sem
RÚVAK lék var gerð í Hljóðrita í
Hafnarfirði og útsetninguna hafði
Gunnar Þórðarson séð um enda
var á þessum tíma ætlunin að
setja lagið á plötu. í hugum
manna hér fyrir sunnan virtist
skipta sköpum hvort Ólafur
Haukur hefði fengið greitt fyrir
flutning lagsins í RÚVAK. Þess
vegna fóru menn á fulla ferð að
leita uppi upptökuskýrslu dag-
skrárgerðarmanna, því þeim er
skylt að fylla nákvæmlega út
hvert einasta lag, sem flutt er. Er
þetta vegna greiðslu STEF-gjalda.
Ólafur Haukur sór fyrir að hafa
nokkru sinni fengið greitt fyrir ’
flutninginn, en fyrir norðan þótti
dagskrárgerðarmönnum það
heldur ótrúlegt, því þeir mundu
að þeir höfðu skráð Vögguvísu
mjög nákvæmlega þar sem lagið
hafði ekkert númer í spjaldskrá.
Síðan var haft samband við Sig-
rúnu Sigurðardóttur á skrifstofu
RÚVAK og kannaðist hún ekki
við málið. En síðar áttaði hún sig
á því, að á fjögurra mánaða tíma-
bili í fyrra.hafði hún ekki sent tón-
listarskýrslur suður og það var
einmitt á því tímabili, sem Vöggu-
vísa Ólafs Hauks var flutt. Af
þessum sökum hafði Ólafur ekki
fengið greitt fyrir flutning Vöggu-
vísu og urðu þessi mistök RÚVAK-
skrifstofunnar til þess að bjarga
laginu inn í lokakeppni Evró-
visjónskeppninnar í sjónvarpinu.
Haft var eftir Agli Eðvarðssyni, að
þetta hafi í raun verið eina atriðið;
sem hélt laginu á floti. Ef Ólafur
Haukur hefði fengið greitt, eins og
honum bar, þá hefði Vögguvísa
verið felld út. Framsýn kona,
Sigrún! Hins vegar er hætt við, að
Ríkisútvarpið skuldi slatta af
STEF-gjöldum vegna þessa fjög-
urra mánaða tímabils.
LIFIÐ í fjármálaheiminum getur
tekið á sig furðulegar myndir. Nú
nýverið fréttum við af lögfræðingi,
sem stundað hefur m.a. viðskipti
með fasteignir og verðbréf, og fer
nú næsta huldu höfði vegna
skulda.
Þetta ku allt hafa byrjað með
því að maðurinn notaði fé það
sem hann innheimti, t.d. fyrir sölu
á skuldabréfi, til annarra við-
skipta, en honum tókst þó
Iengstum að standa í skilum við
viðskiptavini sína með því að láta
allt „rúlla" áfram eins og mun
tíðkast í viðskiptum hérlendis. Þó
kom þar að hann missti ávísana-
heftið eins og hent hefur margan
góðan drenginn og brá hann þá á
það ráð að fá einn starfsmanna
sinna til að skrifa undir fjöldann
allan af ávísunum — gegn greiðslu
með 2,5 milljón króna skuldabréfi
sem gefið var út af vel þekktum
lögfræðingi hér í borg.
Síðan gekk vinur okkar milli
lánardrottna og greiddi skuldir
sínar með innistæðulausum ávís-
unum. Þá hefur lögfræðingurinn,
sem skrifaði undir bréfið, komist í
pappírana aftur og krotað yfir
nafnið sitt, en ekki er talið að það
haldi vatni fyrir dómstólunum.
Annars er þetta ekki allt. Sá
skuldugi hafði ætlað að leysa eitt
mála sinna — um Vi milljón króna
skuld — með skuldabréfi með veði
í húsi í eigu velþekktra hjóna hér í
borg. Konan skrifaði undir bréfið
og greiðslan var innt af hendi.
Síðan hefur konan og eiginmaður
hennar fengið enhverja bakþanka
því reynt var að afturkalla veð-
leyfið en þinglýsingardómstóll
úrskurðaði að veðið stæði. Þá
kom fjölskylda lögmannsins til
skjalanna og leysti það mál. En
önnur bíða . . .
VEGAEFTIRLITIÐ er deiid í
Vegagerð ríkisins og á að sjá um
viðhald á vegum og veita öku-
mönnum upplýsingar um ástand
vega landsins. Þar eru menn
greinilega orðnir værukærir eftir
mildan vetur og snjóleysi á
vegum. Allavega urðu þeir
ökumenn, sem hugðust fara yfir
Holtavörðuheiði um helgina
dálítið hlessa, þegar þeir hringdu í
Vegaeftirlitið í því skyni að fá upp-
lýsingar um færðina.
Símsvari varð fyrir svörum og
sagði heiðina greiðfæra öllum
bílum. Var tekið fram á segul-
bandsupptökunni, að hljóðritun
hefði farið fram um hádegi á
laugardag. Ökumenn, sem
hringdu síðar um helgina og allt
fram á mánudagsmorgun fengu að
heyra sömu upptöku og engin
önnur svör eða upplýsingar.
Margir hverjir hafa greinilega
tekið þessa hljóðritun trúanlega,
þvi fjöldi smábíla lagði á heiðina
og festust um helgina enda Holta-
vörðuheiðin gjörsamlega ófær
öllum bílum öðrum en jeppum og
stórum bifreiðum frá og með
laugardegi.
Holtavörðuheiðin er nefnilega
aðeins rudd tvisvar í viku
(á þriðjudögum og föstudögum).
Vegaeftirlitið hefur gengið út frá
því, að þetta eigi menn náttúrlega
að vita og auðvitað eiga ökumenn
einnig að vita hvernig færðin er
eftir lokun skrifstofu Vega-
gerðarinnar. Helgarpósturinn
beinir því eftirfarandi tilmælum til
lesenda sinna:
Varið ykkur á upplýsingum
Vegagerðarinnar eftir lokun. Hún
er ekki í beinni útsendingu.
HELGARPÚSTURINN
Fríkkirkjan
Það tel ég vera trakteringar þunnar
og tíkarlegt af Pétri að séra Gunnar
skuli ekki mega í friði ferma
fyrir þá sem glápa á sjónvarpsskerma.
Niðri.
SMARTSKOT
UÓSMYND JIM SMART
Er nokkuð að
marka þessar
körfur ykkar?
Guömundur Sigurðsson
„Þessar körfur okkar eru í sjálfu sér enginn algildur sannleik-
ur, en við teljum þær vera góða aðferð til að gefa fólki ákveðna
vísbendingu um hvernig verðlagi er háttað og til að ýta undir
samkeppni verslana og efla verðskyn fólks."
— Tókuð þið upp nýtt form núna vegna þess að ekk-
ert væri að marka hinar körfurnar?
„Nei, nei. Við höfum alltaf reynt að vera með sem fjölbreyti-
legastar verðkannanir og fjölbreytilegastar aðferðir við að birta
þær. Þessa könnun sem við birtum um daginn höfum við gert
eins áður fyrir einum þremur árum eða svo. Þannig að þetta er
ekki nýtt form."
— Þannig að það má vænta þess að það verði tekið
upp nýtt form í næstu könnun?
„Það var birt önnur könnun á mánudag og hún var með allt
öðrum hætti en þessi og það verður birt könnun í næstu viku
og hún verður með enn öðrum hætti gerð. Við reynum að -
koma sem víðast við."
— En verður þá ekki erfitt að bera kannanirnar sam-
an?
„Jú, en þetta er ekki gert með þeim tilgangi að menn eigi
að fylgjast með verðlagsþróuninni, til þess er vísitala fram-
færslukostnaðar. Við erum að gera þetta til að efla verðskyn
og til að auka samkeppni."
— Getur það verið að meðalfjölskyldan borði 2,8 kg
af nautakjöti á mánuði?
„Meðalfjölskyldan gerir það áreiðanlega ekki en við notum
þessa vöru sem staðgengilsvöru því við getum ekki rakið ná-
kvæmlega alla samsetningu venjulegrar fjögurramanna fjöl-
skyldu. Þetta eru tölfræðilega viðurkennd vinnubrögð."
— Er miklu meiri samkeppni á Hvammstanga en á
Hólmavík?
,Já, því á Hvammstanga eru í það minnsta tvær verslanir og
eftir því sem við höfum heyrt utan af okkur þá berjast menn þar
grimmt, þ.e. seljendur. En á Hólmavík er bara ein verslun."
— Er eitthvað nýtt í bígerð hjá ykkur í framhaldi af
samningunum?
„Það má náttúrulega segja að þessar öru kannanir sem við
erum að birta núna eru í beinu framhaldi af kjarasamningunum.
Við höfum líka verið í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins,
sérstaklega launþegahreyfinguna, með því að vinna í hendur
þeirra ákveðnar verðupplýsingar sem þeir síðan senda til sinna
félagsmanna. Þetta er nýjung. Eða eins og Ásmundur Stefáns-
son sagði, þá eru nú á landinu mörg þúsund verðgæslumenn
í staðinn fyrir tæplega einn tug."
— Nú gerði KRON eigin könnun, komá ekki fleiri
verslanir til með að gera eigin kannanir?
„Það ætla ég að vona. Vegna þess að mér finnst það bera
vott um að menn séu vakandi um sjálfan sig og markaðinn. En
það er ekki gott þegar menn eru að bera saman ósambærilega
hluti einsog KRON er að gera þegar þeir bera saman okkar
könnun og sína."
— Þið munuð ekki ráða KRON til að gera næstu
könnun fyrir ykkur?
„Ég geri ekki ráð fyrir að við munum beita sömu aðferðum
og KRON, við höfum einhvern tíma gert það, en við teljum að
við höfum lært af reynslunni og það var bernskubrek hjá okkur
að gera slíkar kannanir einsog KRON er að gera núna. Þeir eru
svona nánast að finna upp hjólið aftur."
i síðustu viku birti Verðlagsstofnun verðkönnun sem var unnin á annan
hátt en nokkrar fyrri kannanir. Tekið var tillit til vægi varanna í neyslu
heimilanna, þannig var miðað við að meðal heimili notaði 150 g af rasp
en ekki miðað við kílóverðið á rasp, það gerði aftur á móti KRON í eigin
könnun en þar á bæ voru menn óhressir með breytta tilhögun hjá Verð-
lagsstofnun. I könnuninni frá síðustu viku kom í Ijós að verðlag var
2,6% hærra út á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu. Allt vekur
þetta spurningar sem HP leitaði svara við hjá Guðmundi Sigurðssyni
forstöðumanni hagdeildar Verðlagsstofnunar.
HELGARPÓSTURINN 3