Helgarpósturinn - 27.03.1986, Side 9
Á ÍSLANDIHEFUR VERIÐ SINNTIÁRATUGI
UPPLVSINGATILAÐ TRYGGJA ÖRVGGIRIKISINS
athygli í sambandi við þessa um-
ræðu núna. í fyrsta lagi er staðfest
með Varðbergsfundinum að „innri
öryggismál" Islands séu í nánum
tengslum við öryggismál Bandaríkj-
anna, svo nánum tengslum að full-
trúar þess rikis eru boðnir á fund
þar sem starfsmenn dómsmálaráðu-
neytisins og utanríkisráðherra fjalla
um þessi viðkvæmu mál að því er
virðist án þess að hafa áhyggjur af
veru fulltrúa Bandaríkjanna. „Innri
öryggismál" Islands eru því hætt að
vera einkamál íslendinga og eru
sameiginlegt „hagsmunamál" okk-
ar og Bandaríkjamanna. Þetta vek-
ur ótal spurningar, t.d. varðandi
sjálfstæði okkar, varðandi tengsi
okkar við Bandaríkin og önnur
NATO-ríki og þá sérstaklega sam-
starf okkkar við leyniþjónustur
þessara landa.
Hitt sem vekur athygli er að utan-
ríkisráðherra virðist ekki hafa fulla
vitneskju um hvernig þessum mál-
um er háttað innan dómsmálaráðu-
neytisins. Þótt hann geti að vissu
leyti sagt, sem og hann gerir, að
huga verði betur að hryðjuverkum,
sérstaklega í ljósi morðsins á Olof
Paime forsætisráðherra Svíþjóðar,
telja heimildarmenn blaðsins að
hugur ráðherrans stefni frekar í þá
átt að fylgjast betur með vinstrisinn-
um í landinu, þ.e. hugsanlegum „tre-
holtum", og felst það í orðunum
„ólögmæt upplýsingastarfsemi".
Þar með telja ýmsir að ráðherrann
sé í vondum málum og að hér reyni
á lýðræðið í landinu og sjálft frelsið.
Þetta leiðir hugann að því sem að
ofan er getið að tilgangur þessarar
umræðu sé að koma á fót opinberri
leyniþjónustu sem myndi þá verða
sérstök skrifstofa annað hvort í
dómsmálaráðuneytinu eða í utan-
ríkisráðuneytinu. Þó auðsætt sé að
um innanríkismál sé að ræða þá
virðist utanríkisráðherra vera að
reyna að ná tangarhaldi á málinu
með því að koma af stað þessari um-
ræðu. Rökin fyrir því að slík skrif-
stofa, sem leyniþjónusta fslands
yrði, ætti heima í utanríkisráðu-
neytinu er líklega tilvist varnar-
málaskrifstofunnar þar og öryggis-
málanefndar sem hvortveggja heyr-
ir undir utanríkisráðuneytið.
íslensk leyni-
þjónusta
Niðurstaða þessa máls er því sú að
Matthías Á. Mathiesen, utanríkisráð-
herra: Með umræðunni um „innri örygg-
ismál" hefur hann sannað tilveru íslenskr-
ar leyniþjónustu.
hér á landi hefur um áratuga skeið
verið starfrækt leyniþjónusta. Ekki
hefur verið um sérstaka skrifstofu
að ræða heldur hefur verið unnið að
Ieyniþjónustumálunum innan út-
lendingaeftirlitsins, sem er deild
innan lögreglustjóraembættisins,
eða a.m.k. í samvinnu við eftirlitið.
Útlendingaeftirlitið hefur jú það sér-
staka starf með höndum að fylgjast
með fólki, og kann þar af leiðandi til
verka! Öll þessi ár hefur það verið
stefna stjórnvalda að segja ekkert
um þessi mál, þ.e. hvorki játa né
neita. Nú gerist það hinsvegar að ut-
anríkisráðherra fer að spila með
þessi mál á eigin spýtur að því er
virðist í óþökk þeirra manna sem
um þessi mál sjá í dag. Tilgangurinn
er ef til vill sá, eftir því sem einn
heimildarmanna HP sagði, að sýna
það að einnig hann ætli að láta til
sín taka í utanríkisráðuneytinu líkt
og Geir Hallgrímsson. Afleiðingin
er sú að umræðan um þessi mál hef-
ur staðfest grun margra um að á ís-
landi sé starfrækt og hafi verið starf-
rækt um áratuga skeið vísir að leyni-
þjónustu og ber að þakka utanríkis-
ráðherra það. íslensk leyniþjónusta
er staðreynd.
F R E E
STYLE
FÖRMSKIM
L'OREAL
íiXís
*
Já — nýja lagningarskúmið
frá L'ORÉAl!
og hárgreiðslan verður
leikur einn.
FUNDARSALIR
Höfum fundarsali fyrir
hverskonar minni og stœrri fundi.
Öll þjónusta og veitingar.
Gerum föst verðtilboð.
Hafið samband tímanlega.
Pétur Sturluson
RISID
Veislu- og fundarsalir
Hverfisgötu 105
Símar 29670 - 22781
FLUGFARÞEGAR!!
HEIMAKSTUR!!
Ódýrt — þœgilegt
Aðalstöðin h/f býður ykkur þægilega heimkomu. Keyrum gegn föstu far-
gjaldi til hótels eða heimilis, hvert sem er á Reykjavíkursvæðið fyrir aðeins
kr. 500 á mann. Aðeins rúmgóðir bflar.
Ekið heim að dyrum og aðstoðað með farangur.
Fjölskylduafsláttur.
ADALSTÖÐIN
Hafnargata 86 230 Keflavík
ALHLIÐA LEIGUBÍLAÞJÖNUSTA
ALLAN SÓLARHRINGINN
92-1515
HELGARPÓSTURINN 9