Helgarpósturinn - 27.03.1986, Side 11
Braun rakvél af
gerðinni Synchorn
213 kostar nú aðeins
3.900,-
(kostaði áður kr. 4.900,-)
Þessi hárblásari
kostar aðeins kr.
1.590,-
(kostaði áður
kr. 1.980,-)
Verslunin
Borgartúni 20
síöasta blaði skýrðum við frá
mannahreyfingum innan Sam-
bandsins í framhaldi af því, að Þor-
steinn Þorsteinsson er að hætta
sem framkvæmdastjóri Steinullar-
verksmiðjunnar á Sauðárkróki.
Okkur er sagt, að frétt Helgarpósts-
ins hafi valdið talsverðum taugatitr-
ingi í herbúðum SÍS-manna, því
þessar upplýsingar séu enn flokkað-
ar sem hernaðarleyndarmál. Nú
getum við bætt við fréttina, að flutn-
ingur Eggerts Á. Skúlasonar til
London átti alls ekki að fréttast í bili,
og jafnframt skal það leiðrétt, að
Þorsteinn Þorsteinsson verði fram-
kvæmdastjóri fjárhagsdeildar, því
eftir því, sem við heyrum núna eru
allar líkur á því, að hann fari til
Norræna fjárfestingarbankans með
aðsetri í Finnlandi. Þá getum við
upplýst um enn eina breytingu, en
hún er sú, að Sigurður Sigurðar-
son taki við framkvæmdastjóra-
starfi af Hjalta Pálssyni í verslana-
deild. Hjalti hefur verið ákærður
ásamt Erlendi forstjóra vegna kaffi-
baunamálsins og mun vera kominn
á brottfararaldur. Þá mun einnig
spila inn í þessa breytingu, að halli
var á verslanadeildinni. . .
A
fundi sl. föstudag hjá Lög-
mannafélagi Islands krafðist stjórn
félagsins að lögfræðingarnir Þor-
valdur Ari Arason og Magnús
Þórðarson yrðu reknir úr félaginu.
Þorvaldur Ari hefur fengið á sig
kærur frá yfirborgarfógetanum í
Reykjavík, yfirborgardómaranum í
Reykjavík, starfsbróður sínum og
nokkrum einstaklingum. í öllum til-
vikum er hann sakaður um að nota
óviðurkvæmilegt orðbragð í bréf-
um, sem ofangreindir aðiljar hafa
fengið frá honum. Sem dæmi má
nefna að hann titlar Jón Skaftason
yfirborgarfógeta ávallt í bréfum
„keyptur kommúnisti". Jón Skafta-
son mun hafa kært Þorvald Ara til
dómsmálaráðuneytisins. Krafan um
brottrekstur Magnúsar er til komin
vegna aðildar að fjársvikamálum.
Magnús mun ekki hafa staðið í skil-
um við skjólstæðinga sína og nú
berst Ábyrgðarsjóði Lögmannafé-
lagsins straumur af fjárkröfum
vegna vanskila Magnúsar. Við þess-
ar lögmannafréttir má bæta að Lög-
mannafélagið hefur kært til dóms-
málaráðuneytis seinagang í útgáfu
Hæstaréttardóma frá 1971 og 1977.
Magnús Torfason hæstaréttardóm-
ari mun hafa átt að vinna skrár mála
fyrir þessi tvö ár en þær hafa enn
ekki sést...
Góðar og
ódýrar
fermingar-
gjafir
BRflun
Örvar afköst!
LAUS
LOKSINS
FÉKKST GJALDSVÆÐI
OKKAR ÚTFÆRT
Allir í rétta röð.
Nýtt og fullkomið tölvustýrt símaborð tryggir snögga sím-
svörun og afgreiðslu eftir réttri röð. Þegar þú hringir í Hreyfil
og heyrir lagstúf, veistu að þú hefur náð sambandi við
skiptiborðið oc færð afgreiðslu von bráðar.
Hafnarfjörður, Garðabær og Mosfellssveit.
Höfum opnað nýjar biðstöðvar við Ásgarð i Garðabæ,
Esso-stöðina við Reykjavíkurveg i Hafnarfirði og við Þverholt
í Mosfellssveit. Þetta tryggir enn betri þjónustu.
Höfuðborgarsvæðið er nú eitt gjaldsvæði.
Nú getur Hreyfill ekið þér frá Laxnesi
að Bessastöðum eða frá Austurvelli í Straumsvík
á innanbæjartaxta Reykjavíkur
UREVF/LL
68 55 22
ÆÐISLEGIR PÍTURÉTTIR SEM KITLA BRAGOLAUKANA
PITU-HUSIÐ Iðnbúð 8 Garðabæ — Sími 641290
HELGARPÓSTURINN 11