Helgarpósturinn - 27.03.1986, Side 20

Helgarpósturinn - 27.03.1986, Side 20
BÍLEIGENDUR BODDÍHLUTIR! Framleiöum trefjaplastbretti á eftirtaldar bifreiðar: Lada 1600, 1500, 1200 og Lada Sport, Subaru '77, '79, Mazda 323 '77, '80, Mazda 929 '7&-’78, Mazda pickup '77-'82, Daihatsu Charmant '78, '79. Brettaútvíkkanir á Lödu Sport. BÍLPLAST Vagnhöfða 19, sími 688233. I Tökum að okkur trefjaplastvinnu Póstsendum. I Veljið íslenskt. sjálfra okkar vegna! SPENNUM BELTIN l skoðanakönnun Hagvangs um fylgi fiokka og samtaka fyrir borg- arstjórnarkosningarnar í Reykjavík virðist ekki hafa fundist einn einasti kjósandi reiðubúinn til að veita Flokki mannsins atkvæði sitt. FM fær sem sagt 0,0% atkvæða meðal hins 171 sem gaf Hagvangi upp afstöðu sína, samkvæmt þvi sem fram kemur í Morgunblaðinu að minnsta kosti. Hagvangur velur til- viljanakennt úrtak úr þjóðskrá, en samt hefur fyrirtækinu einhvern veginn tekist að sniðganga 2.700 félaga sem Flokkur mannsins segir að séu á skrá hjá sér í Reykjavík (sem gerir um það bil 4% kjósenda í borginni). Eru stuðningsmenn Flokks mannsins ef til vill í feluleik? Svo mætti ætla. , . va nema í tíma sé fddð Það er betra að panta í tíma þegar Reykjalundarrörin eru annars vegar. - Við höfum varla undan, enda hefur ekkert vatnslagnaefni reynst betur íslenskum aðstæðum. Meðferð röranna er auðveld, möguleikarnir endalausir og endingin gerist varla betri. REYKJALUNDUR Mosfellssveit, 270 Varmá Sími 91-666200 Telex 2268varis l síðasta blaði sögðum við frá því, að Gísli Bragi Hjartarson múrari hefði lent í öðru sæti í próf- kjöri hjá krötum á Akureyri og gæti þetta orðið krötum mikill styrkur í bæjarstjórnarkosningunum í vor. Við létum það fylgja með, að Gísli Bragi ætti syni tvo, þá Alfreð lands- liðsmann í handbolta og Gunnar landsliðsmann í knattspyrnu. Við hefðum að sjálfsögðu átt að láta það fylgja með, að þrír aðrir synir Gísla Braga eru íþróttagarpar hinir mestu og allir landsliðsmenn. Þeir eru Hjörtur landsliðsmaður í lyftingum og frjálsum íþróttum og Gardar og Gylfi, sem báðir eru landsliðsmenn í lyftingum. Semsé sannkölluð landsliðsfjölskylda... s ^^^kemmtistaðirnir finna upp á ýmsu til að trekkja til sín skemmt- anaþyrsta íslendinga. Eins og menn rekur e.t.v. minni til þá var efnt til „blautbolakeppni" á skemmtistaðn- um Hollywood fyrir allnokkru. Á sunnudagskvöld var hátíð í Holly- wood og ýmislegt á dagskrá fyrir gestina. Og meðal skemmtiatriða var eitthvað sem kallað var „blaut- buxnakeppni" fyrir karlmenn. Ekki vitum við hvernig keppnin fór fram né hvað þurfti til að vinna. En langt er seilst til þess að þóknast gestun- um. . . KJÖTMIÐSTÖDIN 686511 62 2511 20 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.