Helgarpósturinn - 27.03.1986, Page 20
BÍLEIGENDUR
BODDÍHLUTIR!
Framleiöum trefjaplastbretti á eftirtaldar bifreiðar: Lada
1600, 1500, 1200 og Lada Sport, Subaru '77, '79, Mazda
323 '77, '80, Mazda 929 '7&-’78, Mazda pickup '77-'82,
Daihatsu Charmant '78, '79. Brettaútvíkkanir á Lödu Sport.
BÍLPLAST
Vagnhöfða 19, sími 688233. I Tökum að okkur trefjaplastvinnu
Póstsendum. I Veljið íslenskt.
sjálfra okkar
vegna!
SPENNUM
BELTIN
l skoðanakönnun Hagvangs um
fylgi fiokka og samtaka fyrir borg-
arstjórnarkosningarnar í Reykjavík
virðist ekki hafa fundist einn einasti
kjósandi reiðubúinn til að veita
Flokki mannsins atkvæði sitt. FM
fær sem sagt 0,0% atkvæða meðal
hins 171 sem gaf Hagvangi upp
afstöðu sína, samkvæmt þvi sem
fram kemur í Morgunblaðinu að
minnsta kosti. Hagvangur velur til-
viljanakennt úrtak úr þjóðskrá, en
samt hefur fyrirtækinu einhvern
veginn tekist að sniðganga 2.700
félaga sem Flokkur mannsins segir
að séu á skrá hjá sér í Reykjavík
(sem gerir um það bil 4% kjósenda
í borginni). Eru stuðningsmenn
Flokks mannsins ef til vill í feluleik?
Svo mætti ætla. , .
va
nema í tíma sé fddð
Það er betra að panta í tíma þegar Reykjalundarrörin
eru annars vegar. - Við höfum varla undan, enda hefur
ekkert vatnslagnaefni reynst betur íslenskum aðstæðum.
Meðferð röranna er auðveld, möguleikarnir endalausir
og endingin gerist varla betri.
REYKJALUNDUR
Mosfellssveit, 270 Varmá
Sími 91-666200
Telex 2268varis
l síðasta blaði sögðum við frá
því, að Gísli Bragi Hjartarson
múrari hefði lent í öðru sæti í próf-
kjöri hjá krötum á Akureyri og gæti
þetta orðið krötum mikill styrkur í
bæjarstjórnarkosningunum í vor.
Við létum það fylgja með, að Gísli
Bragi ætti syni tvo, þá Alfreð lands-
liðsmann í handbolta og Gunnar
landsliðsmann í knattspyrnu. Við
hefðum að sjálfsögðu átt að láta það
fylgja með, að þrír aðrir synir Gísla
Braga eru íþróttagarpar hinir mestu
og allir landsliðsmenn. Þeir eru
Hjörtur landsliðsmaður í lyftingum
og frjálsum íþróttum og Gardar og
Gylfi, sem báðir eru landsliðsmenn
í lyftingum. Semsé sannkölluð
landsliðsfjölskylda...
s
^^^kemmtistaðirnir finna upp á
ýmsu til að trekkja til sín skemmt-
anaþyrsta íslendinga. Eins og menn
rekur e.t.v. minni til þá var efnt til
„blautbolakeppni" á skemmtistaðn-
um Hollywood fyrir allnokkru. Á
sunnudagskvöld var hátíð í Holly-
wood og ýmislegt á dagskrá fyrir
gestina. Og meðal skemmtiatriða
var eitthvað sem kallað var „blaut-
buxnakeppni" fyrir karlmenn. Ekki
vitum við hvernig keppnin fór fram
né hvað þurfti til að vinna. En langt
er seilst til þess að þóknast gestun-
um. . .
KJÖTMIÐSTÖDIN
686511
62 2511
20 HELGARPÓSTURINN