Helgarpósturinn - 27.03.1986, Side 25

Helgarpósturinn - 27.03.1986, Side 25
POPP Tvœr íslenskar og litir vorsins eftir Ásgeir Tómasson Transmit — Herbert Guðmundsson Bjartsýni 1986 Fyrsta sólóplata Herberts Guðmundssonar kom út árið 1977. Sú næsta síðla árs í fyrra og nú hefur þriðja sólóplata hans verið gefin út. Að vísu aðeins fjögurra laga og þar af voru tvö þeirra á síðustu plötu. Öðru, Tonight, hefur verið breytt nokkuð. Hitt lagið er Can't Walk Away. Það er eins og í frumút- gáfunni nema það hljómar vitaskuld mun betur á 45 snúninga fjögurra laga plötu en á venjulegri breiðskífu. Nýja sólóplatan er því eiginlega aðeins tveggja laga með tveimur bónuslögum og myndi því flokkast með smáskífum erlendis. Titillagið, Transmit, er hratt danslag í diskó- stíl sem hefur verið kenndur við New York. Hitt er róleg og hugljúf fluga, Won‘t Forget, sem þegar er farin að láta til sín taka á vin- sældalista rásar tvö. Hvorugt þessara nýju laga er meðal þess besta sem Herbert Guðmundsson hefur látið frá sér fara. Það er til að mynda býsna djúpt á laglínunni í Transmit. Það er nánast ekkert nema takturinn. Sem sagt vel fallið til dans og einskis annars. Won't Forget er einnig frekar veik lagasmíð að því leytinu að krók- inn vantar svotil alveg. Það sleppur hins veg- ar fyrir horn með snoturri útsetningu. Tæknilega séð er platan Transmit aldeilis frambærileg. Hljóðritun er í hágæðaflokki, hljóðfæraleikur er fagmannlegur og Herbert beitir söngrödd sinni ágætlega. Hann ætti hins vegar að láta líða lengri tíma en þrjá til fjóra mánuði áður en næsta plata kemur út og vera þá með sterkari og sölulegri efnivið. Og sleppa uppsuðunni. Bensínskrímslið skríður — Suarthvítur draumur erðanúmúsík 1986 Kópavogsbúar hafa eignast nýtt tríó sem lætur að sér kveða á plötumarkaði. Tæpast á tríóið Svarthvítur draumur þó eftir að láta jafn mikið að sér kveða og Ríótríóið. Og þó. Sagan af upptrekkta karlinum og Jón á lík- börunum voru sossum engin tímamótaverk á sínum tíma. Mér heyrist Svarthvítur draumur vera nokkrum árum á eftir tímanum. — John Lydon er orðinn poppari, Mick Jones kom- inn í danstónlist, Generation X gæarnir bún- ir að afneita fortíðinni. Bubbi kominn í hús- mæðrapoppið og óskalög sjúklinga. — Þó ættum við alls ekki að afskrifa hljómsveitina né plötuna Bensínskrímslið skríður. Þre- menningarnir Gunnar Hjálmarsson, Guðjón Birgisson og Haukur Valdimarsson, sýna kjark að gefa hana út og það á tíma sem á að vera steindauður til hljómplötuútgáfu. Von- andi selja þeir svo mikið að þeir geti haldið áfram að þróa tónlist sína og samstarfið. Bensínskrímslið skríður er tíu tommu plata — fjögurra iaga. Titillagið hefur lítillega heyrst á rás tvö en önnur lög ekkert sem heit- ið getur. Þau eru þó ámóta sterk öll fjögur. Svo sem engin snilldarverk en mörgum sinn- um verri músík hefur verið gefin út á plötum og selst. Öll útgáfan ber keim af neðanjarð- arstarfsemi: umslag er groddalegt, svo og plötumiðar, og sjálfir virðast Svarthvítu draumarnir hafna ríkjandi markaðslögmál- um bæði með tónlistarstefnu og útgáfutíma. Vonandi verða þeir þó ekki þagaðir í hel. The Colour ofSpring — Talk Talk EMI/Fálkinn Mark Hollis og félagar hans í Talk Talk eru ekki afkastamiklir piltar. Á þeim fimm árum sem liðin eru síðan hljómsveitin var stofnuð hafa þeir einungis sent frá sér þrjár stórar plötur. The Party is Over kom út um mitt ár ‘82, It's MyLifei febrúar í hitteðfyrra og síðla í febrúar kom loksins sú þriðja, The Colour of Spring. I stað þess að dæla út einni til tveimur skífum á ári hafa þremenningarnir t Talk Talk sem sagt ákveðið að fara sér rólega en vanda þeim mun betur til verka. Það var með plötunni lt‘s My Life og þó sér í lagi titillagi hennar sem augu íslendinga opnuðust fyrir Talk Talk. Á þeirri plötu voru nokkuð fleiri lög sem náðu tökum á hlust- endum. Lög eins og Dum Dum Girl og Such a Shame. Því miður er ekkert lag á The Colour of Spring jafngott lt‘s My Life. Það væri líka ósanngjarnt að krefjast meistara- verks á hverri plötu. The Colour of Spring er plata sem þarf að fá að snúast nokkrum sinnum á plötuspilar- anum áður en tónlistin fer að vinna á. En þol- inmæðin þrautir vinnur allar. Hollis, Lee Harris og Paul Webb virðast ekki vera ýkja glaðlyndir piltar og lög eins og April 5th og Time It‘s Time eru eiginiega full dapurleg fyrir minn smekk. En önnur bæta það upp, svo sem Life's What You Make It og Living in Another World sem reyndar er eftirminni- legasta lag plötunnar. The Colour of Spring á ekki eftir að gera Talk Talk að poppstjörnum á borð við Duran Duran og Wham! gengið. Enda efast ég stór- lega um að það sé markmið þremenning- anna. Hins vegar mættu þeir að skaðlausu hafa reynslu félaganna í Echo and the Bunnymen i huga. Þunglyndið getur gert menn gjaldþrota og það kostar ekkert að sýna smá bjartsýni öðru hverju. Tónlistar- lega er Talk Talk á beinu og breiðu brautinni en það er enginn betri þótt hann klökkni meðan platan snýst á fóninum. Að síðustu er einn stór plús í hnappagat Talk Talk piltanna. Þeir hafa með öllu leitt hjá sér synthesizera við gerð The Colour of Spring. Það er sannarlega tilbreyting. Líttu við hjá LÚMEX — öðruvísi lampaverslun en þú átt að venjast. VERSLUN - RAFVÖRUR TEIKNISTOFA Síðumúla 21 108 Reykjavík Símar 91-688388 og 84019 ©ELTEVA Lumiance artimGta “010USI ■ C9SSS pcntLp BECM MALNING- MÁLNIN GARVÖRUR Áður en þú byrjar að mála er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir hvar best er að kaupa efni til verksins. JL-Byggingavörur hafa mikið úrval af málningarvörum og ráðleggingar starfsmanna okkar eru fyrsta skrefið í vali á besta og hagstæðasta efninu. Afsláttarkjörin okkar á málningu er hagstæðasta verðið í dag. 5% afsláttur af kaupum yfir kr. 2500,- 10% afsláttur af kaupum yfir kr. 3200,- 15% afsláttur af kaupum yfir kr. 4600,- 20% afsláttur af heimkeyrðum heilum tunnum. MÁLNINGARVÖRUDEILD, HRINGBRAUT 120. RENNDU VIÐ EÐA HAFÐU SAMBAND HELGARPÓSTURINN 25

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.