Helgarpósturinn - 27.03.1986, Page 29

Helgarpósturinn - 27.03.1986, Page 29
Helgi E. Helgason, einn þriggja Tvíbura í sjónvarpsfréttamennsku. að ofmetnast við þetta, því um þá segir ennfremur: „Marga galla hefir það, sem þurfa rannsóknar við og leiðréttingar. Það tvístrar kröftum sínum og hefir of margt í takinu; ímyndar sér alt ilt og er sí og æ að draga upp myndir af einhverjum yf- irvofandi hættum. Alt þetta hefir mjög slæm áhrif á það sjálft." Eins og fyrr er getið, dreifast hinir fréttamenn sjónvarpsins á fimm stjörnumerki. Einar Sigurdsson og Ögmundur Jónasson eru Krabbar, Bjarni Felixson og Edda Andrés- dóttir eru Steingeitur, Gudni Braga- son og Helgi H. Jónsson eru Naut. Fréttamennirnir Omar Ragnarsson og Sigurueig Jónsdóttir eru í Meyjar- merkinu, en Sonja B. Jónsdóttir er ein í Voginni. Það ætti að öllum líkindum vel við Sonju að vera á þingi. Þar væri hún að minnsta kosti i miklu fjölmenni fólks í Vogarmerkinu, en það er al- gengasta stjörnumerkið meðal þingmanna. Næstalgengast er síðan Krabbamerkid. Ellefu þingmenn eru í því fyrrnefnda, en tíu í því síð- arnefnda. Vogir á þingi Eftirfarandi alþingismenn eru í Vogarmerkinu: Albert Gudmunds- son, Alexander Stefánsson, EllertB. Schram, Fridrik Sophusson, Gud- mundur Bjarnason, Jóhanna Sig- urdardóttir, Jón Helgason, Kolbrún Jónsdóttir, Kristín Halldórsdóttir, Stefán Benediktsson og Þorvaldur Garðar Kristjánsson. Sé flett upp í stjörnuspádómarit- inu góða, má sjá eftirfarandi lýsingu á ,,Metaskálamerkinu" eða Voginni: „Fólk það, sem fætt er undir þessu merki, er að eðlisfari kappsamt, metorðagjarnt, veglynt og göfugt. í tilraunum sínum er það djarft og Birgir Isleifur Gunnarsson, „leikfang í höndum annarra"? hugrakt, og tekið getur það missi og óláni betur en nokkurt annað fólk. Mennirnir hafa mikla sjálfstjórn, leitast við að hafa alt eftir eigin geð- þótta, velja sjálfir vini sína og at- vinnuveg. Snemma nema þeir, að snúa huga sínum og glöggskygni að fjárhaldslegu hliðinni, eru oft brakúnar, verzlunargróðamenn, ráðabruggarar og stundum fjár- spilamenn.....Tap eða ólan hefir engin áhrif á þá, og tapi þeir, ná þeir sér fljótt upp aftur.“ Samkvæmt þessum fræðum, virð- ist svo sem þingmennirnir ellefu séu einmitt á hárréttri hillu í lífinu, því þessi lýsing hlýtur að eiga einkar vel við þá, sem vilja hafa atvinnu af því að berjast á Alþingi. Þeim er hins vegar hollt að hafa eftirfarandi klausur úr títtnefndu riti í huga, en hún á einnig við um fólk í Meta- skálamerkinu: „Forðast skal það hégómagirnd, drambsemi og sjálfs- hól.“ Þingkrabbar Næstalgengasta stjörnumerki al- þingismanna er Krabbamerkid, en í því eru Birgir ísleifur Gunnarsson, Haraldur Olafsson, Karvel Pálma- son, Olafur G. Einarsson, Pétur Sig- urösson, Ragnar Arnalds, Salome Þorkelsdóttir, Steingrímur Her- mannsson, Svavar Gestsson og Þór- arinn Sigurjónsson. Þetta eru greini- lega hinar flóknustu sálir: „Erfitt er að skilja og þekkja fólk það, sem fætt er undir merki þessu, enda eyðir það oft æfi sinni án þess að vera annað en ráðgáta fyrir sína beztu vini. Margir hinna mestu manna heimsins eru fæddir undir því og einnig eru líka margir þeirra, sem hefir algjörlega misheppnast lífið. . . . Mjög fáar hamingjusamar mann- eskjur og sem lifa í samræmi við sjálfa sig finnast á meðal fólks fæddu undir merki þessu; samt er það eitthver hið auðveldasta merki að ná sigri á, ef þeir sem undir því eru fæddir hafa einlægan og stað- fastan vilja." Hrútur21. mars—20. apríl Naut 21. apríl—21. maf Tvíburi 22. maí—21. júní Krabbi 22. júní—23. júlí Ljón 24. júlí—23. ágúst Meyja 24. ágúst--23. september Vog 24. september—23. október Sporðdreki 24. október— 22. nóvember Bogamaður 23. nóvember— 21. desember Steingeit 22. desember—20. janúar Vatnsberi 21. janúar—19. febrúar Fiskar 20. febrúar—20. mars Helgi H. Jónsson er naut. Kjósendur framangreindra þing- manna þurfa þó ekki alveg að ör- vænta um þessa fulltrúa sína á lög- gjafarsamkundunni vegna fjölda Krabba við Austurvöll. í ritinu stendur nefnilega ennfremur: „Sumir hinna skynsömustu og lærð- ustu manna, fæðast undir merki þessu, og eru margir þeirra allgóðir ræðumenn. Og margir ágætir véla- fræðingar eru á meðal fólks þessa. Karlmennirnir sérstaklega vel vald- ir til verzlunar, en kvenfólkið vel valið til þess að stjórna góðgjörðar- stofnunum. Bókhlöður margar, sjúkrahús, háskólar og opinberar stofnanir, eiga tilveru sína að þakka fólki, fæddu undir krabbamerkinu." Sé hrósið farið að stíga einhverj- um til höfuðs, ætti sá hinn sami að meðtaka eftirfarandi: „Sí og æ reyn- ir (þetta fólk) að koma nafni sínu þannig fyrir augu almennings, að það fái hól; fé og jafnvel mannorð er hægt að láta það gefa fyrir smjaður og hól. Það er leikfang í höndum annarra sem þekkja veikleik þess og hefur það að ginningar-fífli." Þetta þyrfti að koma fram á kjör- seðlum í næstu kosningum. Það hlýtur að vera jafn nauðsynlegt að þekkja stjörnumerki frambjóðand- ans og stefnuskrá flokksins hans, svo kjósendur glepjist t.d. ekki á Al- þýðubandalagsmanni sem lofar að senda herinn burt, en lætur svo hafa sig að ginningar-fífli og leyfir hern- um að vera! Sporðdrekar í þingmannalíki Þau stjörnumerki, sem komast næst Voginni og Krabbanum í fjöl- menni á Alþingi, eru Sporddrekinn og Tvíburamerkid. Sporðdrekar eru þeir Eiður Guðnason, Garðar Sig- Einar örn Stefánsson, „hefur heillavæn- leg áhrif á aðra". urðsson, Guðmundur Einarsson, Hjörleifur Guttormsson, Pálmi Jóns- son, Stefán Valgeirsson og Þorsteinn Pálsson. Þeir fá heldur en ekki góð meðmæli frá stjörnunum: „Viðurkennt er (þetta fólk) fyrir sitt stilta hugrekki sem engin heimska hefir áhrif á. Þó það oft hafi verið ásakað fyrir að vera lilfinn- ingalaust og harðbrjósta, sem að eins er vegna þess einbeitta vilja- krafts, er það samt sem áður hið hjarta bezta fólk í heiminum. í mikil- vægum og óvæntum atburðum þekkir það dýrmæti stillingar og sjálfsstjórnar. ... Án þess væri heimurinn ekki eins langt á veg komin með mentun og siðmenning og hann er. Margt af því er málsnjalt og góðir ræðumenn, vinsælir og sannfærandi prestar. Mentaði hluti fólks þessa hefir rhikið vald yfir máli sínu og gjörir sig skiljanlegt, um leið og það er sannfærandi, orðheppið og kemur hugsunum sínum í skemtilegan og viðfeldan búning." Eftir þessa lýsingu er ekki að efa að þeir, sem bjóða fram Sporðdreka- flokk í næstu kosningum, þurfa ekki að kvíða atkvæðaleysi. Sex þingmenn eru í Tvíburamerk- inu. Það eru þau Eyjólfur Konráð Jónsson, Guðrún Agnarsdóttir, Jón Kristjánsson, Karl Steinar Guðna- son, Ragnhildur Helgadóttir og Stef- án Guðmundsson. Þessu stjörnu- merki hefur þegar verið lýst lítillega og við þá lýsingu er aðeins að bæta eftirfarandi: (Þetta fólk) er óþolin- mótt og getur ekki orðið sigursælt nema með mikilli baráttu. Hvað sem það tekur að starfa, þá annað- hvort gjörir það mjög vel eða mjög illa; stafar það af óþolinmæði og ákaflyndi þess. Því hættir við að dæma aðra eftir útliti og sér oft eftir fljótfærni sinni.“ Eftirlegukindurnar Fyrir þá, sem áhuga hafa á að kynna sé nánar samsetningu þing- manna í „stjörnuflokka", er rétt að láta eftirfarandi lista fylgja með. eftir Jónínu Leósdóttur myndir Jim Smart Albert Guðmundsson. Er hann „verslun argróðamaður", „ráðabruggari", eða jafn vel „brakún"? I Meyjarmerkinu eru Guðrún Helgadóttir, Halldór Ásgrímsson, Halldór Blöndal, Skúli Alexanders- son og Valdimar Indriðason: „Reglusemi og samræmi er nauð- synleg fyrir hamingju þess.“ I Fiskamerkinu eru Árni Johnsen, Gunnar G. Schram, Jón B. Hanni- balsson, Páll Pétursson og Sverrir Hermannsson: „Vegna ráðvendni sinnar er (þetta fóik) vel fallið fyrir ábyrgðarmiklar stöður." 1 Bogmanninum eru Davíð Aðal- steinsson, Egill Jónsson, Kjartan Jóhannsson og Ólafur Þ. Þórðar- son: „Ekki ætlar (þetta fólk) sér að hafa nefið í hverfisteininum alla æfi vegna óforsjálni." I Ljónsmerkinu eru Matthías Bjamason, Matthías Mathiesen, Sig- ríður Dúna Kristmundsdóttir og Steingrímur J. Sigfússon: „Fólk þessa merkis verður að læra að verða ekki fljótt mótfallið öðrum og forðast hleypidóma" í Steingeitarmerkinu eru Kristín S. Kvaran, Björn Dagbjartsson og Helgi Seljan: „Aðalgallar þess eru sjálfselska og vantraust á sjálfu sér, einnig er það oft málgefið og finnast erfiðleikar sínir meiri en annarra." í Vatnsberamerkinu eru þeir Frið- jón Þórðarson og Guðmundur J. Guðmundsson: „Krafta hefir það á við uxa eða ljón, en veit ekki af því.“ í Hrútsmerkinu eru Geir Gunnars- son og Ingvar Gíslason: „Vit þeirra og gáfur draga athygli áheyrend- anna til sín og heilla þá.“ Aðeins einn einasti þingmaður er fæddur í Nautsmerkinu, en það er Eggert Haukdal:,, Hvaða stefnu sem hugur þess tekur, fylgir það henni af ákefð og fastheldni. Oft er það sið- bætandi og i stjórnmálum hinir beztu leiðtogar." Þarna skyldi þó aldrei vera komin skýringin á því hvers vegna Alþingi nýtur svo lítillar virðingar nú á tímum? Líklega skortir einfaldlega fleiri Naut á þing! HELGARPÓSTURINN 29

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.